Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013 S tríðið gegn eiturlyfjum er dýrt, hvort sem talið er í mannslífum eða peningum. Um þessar mundir er einn blóð- ugasti vígvöllurinn í Mexíkó. Þar hafa rúmlega 70 þúsund manns fallið frá árinu 2006. Á und- anförnum sex árum hafa 20 þúsund manns horfið í landinu. Þriðjungur þeirra er á aldrinum 10 til 17 ára, fjórðungur á aldrinum 18 til 30 ára. Þessar tölur eru frá forsetatíð Felipes Calderons, sem skar upp herör gegn eiturlyfjabarónum landsins og sendi herinn á vett- vang. Í desember tók Enrique Pena Nieto við af Calderon. „Við þurfum að horfa til allrar álfunnar til að sigrast á þeirri félagslegu eyðileggingu, sem blasir við í lönd- um okkar,“ sagði Nieto á fundi leiðtoga Mexíkó og Mið-Ameríku í febrúar. „Við þurfum náið samráð til að styrkja friðinn.“ Á níunda áratug liðinnar aldar var Mið-Ameríka vettvangur borg- arastyrjalda. Nú eru eiturlyfin vettvangur blóðsúthellinga í álf- unni. Að sögn bandarískra yfir- valda farra 90% þeirra eiturlyfja sem koma frá Suður-Ameríku í gegnum Mið-Ameríku og Mexíkó. Í Mið-Ameríku er talað um þrí- hyrninginn í norðri, þrjú lönd þar sem ástandið sé verst. Það eru Hondúras, sem líkt hefur verið við stóran flugvöll fyrir eiturlyfja- smyglara, Gvatemala, þar sem of- beldisfyllsta eiturlyfjahringinn, Los Zetas, er að finna, og El Salvador, þar sem ofbeldinu hefur reyndar linnt eftir að helstu gengin gerðu með sér vopnahlé. Líkin hrúgast upp Stríðið gegn eiturlyfjum hefur farið fram með stuðningi Bandaríkja- manna. Nú er hins vegar svo kom- ið að æ fleiri lýsa yfir efasemdum um þær aðferðir, sem beitt hefur verið. Otto Perez Molina, forseti Gvate- mala, hefur á alþjóðlegum ráð- stefnum á borð við efnahags- ráðstefnuna í Davos í Sviss brýnt menn til að taka upp nýjar aðferðir og sagt að harðlínustefnan, sem Bandaríkjamenn styðji, leiði aðeins til þess að líkin hrúgist upp. Hann hefur lagt til lögleiðingu eiturlyfja til þess að taka gróðann úr hinu banvæna hagkerfi eiturlyfjanna. Gróðinn er slíkur að eiturlyfja- gengin svífast einskis, reyna jafn- vel að ráða þjóðarleiðtoga af dög- um þyki þeim þeir gerast of aðgangsharðir. Í fátækum löndum geta eiturlyfin verið eina leiðin til að komast í álnir og hún freistar jafnvel þótt henni fylgi lífshætta. Verðið hækkar síðan eftir því sem nær dregur markaðnum og hið endanlega verð er ekki í neinu samhengi við kostnaðinn, sem er í raun óverulegur. Áhættan er hins vegar veruleg og þeir sem eru gripnir lenda í fangelsi. Þegar mikið er gert upp- tækt hækkar verðið. Þeir sem eru háðir eiturlyfjum eru tilbúnir að borga hvað sem er, en þeir, sem ekki neyta þeirra, myndu ekki gera það hversu ódýr sem þau væru. Útgjöldin margfaldast Stríðið gegn eiturlyfjum hefur nú staðið í rúmlega 40 ár og hefur verið kallað lengsta stríð okkar daga. 17. júlí 1971 flutti Richard Nixon, þáverandi forseti Bandaríkj- anna, ræðu þar sem hann sagði að misnotkun eiturlyfja væri „helsti óvinur Bandaríkjanna“. Sú ræða hefur verið kölluð fyrsta skotið í stríðinu gegn eiturlyfjum. Það er háð gegn kókabændum í Kólumbíu, ópíumbændum í Afganistan og kannabisræktendum í Kaliforníu, gegn smyglurum og burðardýrum, framleiðendum metamfetamíns og krakks, og neytendum um allan heim. Árið 2010 neyttu 200 milljónir manna ólöglegra eiturlyfja að talið er. Sú tala hefur haldist óbreytt um árabil. Hin árlega neysla er sögð skiptast þannig: 40 þúsund tonn af maríjúana, 800 tonn af kók- aíni og 500 tonn af heróíni. Í upphafi áttunda áratugarins setti stjórn Nixons 100 milljónir dollara í baráttuna gegn eitur- lyfjum á ári. Í tíð Baracks Obama, núverandi forseta, er upphæðin komin í 15 milljarða dollara. Ef tekið er tillit til verðbólgu hefur upphæðin þrjátíufaldast. Því viðhorfi vex ásmegin að stríðið gegn eiturlyfjum sé á alger- um villigötum og þótt því fari fjarri að sátt hafi skapast um það hvað skuli koma í staðinn heyrist æ oft- ar talað um lögleiðingu. Veldur bannið vandanum? „Engin vara í heiminum býður upp á jafnmikinn hagnað og kókaín eða heróín,“ segir Ethan Nadelman, sem leiðir Samtök um eiturlyfja- stefnu (Drug Policy Alliance), í við- tali við Der Spiegel. „Hvers vegna? Út af banninu.“ Samtökin vilja að ný stefna verði tekin upp í barátt- unni gegn eiturlyfjum og njóta stuðnings Georgs Soros, sem er einn auðugasti maður heims. Nad- elman lærði í Harvard og kenndi í Princeton. Í 25 ár hefur hann unnið í þessum málaflokki, skrifað bækur, haldið fyrirlestra og gefið álit sitt. „Viðskiptin með eiturlyf eru kap- ítalismi,“ segir hann. „Á meðan það er eftirspurn verður framboð. Við getum auðvitað slökkt í eftirspurn- inni. Til þess þarf einfaldlega að fá 200 milljón eiturlyfjaneytendur til að hætta að kaupa eiturlyf. En hljómar það eins og það sé raun- hæft?“ Reyndar hefur mönnum dottið það í hug. Fyrir aldamót fór af stað herferðin Eiturlyfjalaust Ís- land fyrir 2000 og Sameinuðu þjóð- irnar blésu til herferðar undir kjör- orðinu Eiturlyfjalaus heimur: Við getum það. Umskipti í Kólumbíu Fyrir tveimur áratugum var Kól- umbía samnefnari fyrir kókaín. Þar réð Pablo Escobar lögum og lofum þar til hann lést 1993. Escobar stjórnaði 80% kókaínviðskipta í heiminum og var einn ríkasti mað- ur heims. Sagt er að hann hafi látið myrða 30 dómara, 450 lög- reglumenn og mörg hundruð borg- ara. Nú er ástandið betra í Kól- umbíu og vígvöllurinn hefur færst til Mexíkó. Eiturlyfjahringirnir berjast ekki lengur í Medellín í Kólumbíu heldur Ciudad Juares og Acapulco í Mexíkó. … en vandi enn til staðar Vandinn er hvergi nærri horfinn í Kólumbíu. Luis Alberto Perez hershöfðingi leiðir baráttuna gegn eiturlyfjum í Kólumbíu. Í fyrra gerðu menn hans 72 tonn af kók- aíni upptæk, um 9% heims- framleiðslunnar, eyðilögðu 1.200 kókaínframleiðslustöðvar, tóku 400 báta og 150 litlar flugvélar í sína vörslu, eyðilögðu 22 flugbrautir og handtóku 76 þúsund manns. Perez segir að hann geti stöðvað alla ræktun í landinu, hann þurfi bara meiri peninga og meiri mannskap. Aðrir telja að þessi barátta sé vonlaus og vilja binda enda á stríð- ið. Þungi þeirra sjónarmiða fer vaxandi. Vaxandi efa- semdir um 40 ára stríðið RÚM 40 ÁR ERU SÍÐAN NIXON BLÉS TIL STRÍÐS GEGN EITURLYFJUM. TUGIR ÞÚSUNDA MANNA HAFA LÁTIÐ LÍFIÐ Í ÞVÍ STRÍÐI, FANGELSIN ERU FULL, EN EITURLYFJAHRING- IRNIR LÁTA EKKI DEIGAN SÍGA. KRAFAN UM NÝJA STEFNU Í BARÁTTUNNI GEGN EITURLYFJUM VERÐUR NÚ HÁVÆRARI OG RADDIR HEYRAST UM LÖGLEIÐINGU. Karl Blöndal kbl@mbl.is Mexikó Ekvador Venesúela Kólumbía Medellín Cómbita Bogotá Perú BerlínLondon París Aruba Putumayo Kókaræktarsvæði Neytandi í Evrópu: 65 milljónir kr.* *Venjulega hefur kókaín verið margútþynnt við sölu Ein milljón kr. 210.000 kr. 650.000 kr. Helstu dreifingarleiðir kókaíns Kílóverð á hreinu kókaíni Sali í Evrópu: 4,9 milljónir kr. Grænt laufblað verður að hvítu gulli Úttekt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.