Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 23
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
É
g er búinn að vera að þessu síðan
2006. Menn komu með þessa hug-
mynd hér innan háskólans að skella
sér í sjóinn og ég er alinn upp í Mý-
vatnssveit þannig að ég hef svo sem synt í
köldu áður. Ég var því meira en til í þetta,“
segir Arnar Egilsson sjósundskappi með
meiru.
Arnar og félagar fóru fyrst bara yfir sum-
artímann þegar hægðist á í skólanum en eft-
ir að skólinn fluttist nánast við hliðina á
Nauthólsvík var farið að synda allt árið.
„Okkur hefur farið fækkandi sem förum ofan
í allt árið. Í vetur höfum við aðeins verið tvö
en um leið og það fer að vora fjölgar í hópn-
um. Í maí þegar sjórinn tekur við sér og hit-
inn hækkar erum við allt upp í 12 sem skell-
um okkur ofan í.“ Arnar segir að fyrir sína
parta sé sjósund gott fyrir háræðarnar og
líkamshitann. „Það er allavega oft verið að
kvarta undan að ég opni gluggana. Ein sem
hefur stundum komið með okkur á miðviku-
dögum segir að hún þurfi ekki teppi og
inniskó alveg fram á sunnudag þegar hún fer
upp í sófa á kvöldin.“
Arnar segir að með réttu tækninni sé
þetta ekkert mál þótt veðrið sé vont og sjór-
inn ískaldur. „Líkaminn lærir á þetta. Hug-
arástandið skiptir líka máli og öndunin. Það
þarf að passa sig að anda alla leið ofan í
maga. Ekki fara í grunna öndun. Svo venst
þetta.
Ég hendi mér bara út í. En ég ætla ekki
að segja að þetta sé ekkert mál. Númer eitt,
tvö og þrjú er að hugsa um öndunina.“
Rétti árstíminn til að byrja í sjósundi
Arnar segir að ef menn hafi áhuga á því að
byrja að stunda sjósund sé þetta rétti tíminn.
„Sjórinn og hitinn er að hækka. Svo þarf að
byrja rólega og aldrei fara einn. Vera alltaf
með einhvern með sér. Því meira sem maður
venst þessu verður maður kaldari. Maður fer
lengra og það eru dæmi um að menn hafi
lent í vandræðum vegna straums eða vinds.
Það er því betra að hafa einhvern með sér.
En það er alveg sami sjórinn við ströndina
og úti á flóa. Það þarf ekkert að synda langt
út. Synda bara meðfram ströndinni.“
Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref
í sjósundinu er mælt með því fara niður í
Nauthólsvík, þjónustuhús Ylstrandarinnar.
Þar taka starfsmenn og reyndir sjósunds-
garpar vel á móti fólki og leiðbeina því.
Mikilvægt er að fara varlega fyrstu ferð-
irnar. Yfir veturinn er sjórinn frá -1,5° til 4°.
Þeir allra hörðustu eru 5-15 mín. úti en byrj-
endur 30 sek. til 1 mín. Á sumrin er sjórinn
8°-15° og þá er hægt að njóta hans mun leng-
ur.
„Svo er nauðsynlegt að fara í pottinn. Það
er voða gott. En það er ekki gott að fara
beint úr sjónum og í pottinn. Líkaminn þarf
smáaðlögunartíma. Ég er ekkert viss um að
ég myndi stunda þetta allt árið ef ég hefði
ekki pottinn.“
Arnar kemur upp úr
eftir stutt og ískalt
sund. En gott var það.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
ARNAR EGILSSON STUNDAR SJÓSUND
Ekkert mál með
réttu tækninni
SJÓSUND HRESSIR, BÆTIR OG KÆTIR EN GETUR VERIÐ VARHUGAVERT.
ARNAR EGILSSON, ÞJÓNUSTUSTJÓRI UPPLÝSINGATÆKNISVIÐS HJÁ
HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK, STUNDAR SJÓSUND ALLT ÁRIÐ.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Arnar úti
í Atlantshafinu.