Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 37
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Óskarsverðlaunamynd fjár- mögnuð með Kickstarter Það vakti töluverða athygli á dög- unum þegar kvikmyndin Innocente hlaut Óskarsverðlaun sem besta stutta heimildarmyndin, en hún var að fullu fjármögnuð í gegnum Kick- starter. Handritshöfundurinn Char- lie Kaufmann (Being John Malko- vich, Eternal Sunshine of the Spotless Mind) fjármagnaði nýlega gerð sinnar fyrstu teiknimyndar á Kickstarter, og í síðustu viku bárust fréttir af því að aðdáendur hefðu að hluta fjármagnað kvikmynd um Veronica Mars, byggða á vinsælum sjónvarpsþáttum með sama nafni á móti Warner Bros-kvikmyndaverinu (framleiðendur leituðu að $2 millj- ónum, en fengu alls loforð fyrir $3,7 milljónum). Þá voru 12% þeirra mynda sem kepptu á síðustu Sund- ance-kvikmyndahátíð fjármögnuð í gengum Kickstarter. Flest verkefni sem leitað er eftir stuðningi við tengjast einmitt myndbanda- og kvikmyndagerð og um 40% þeirra hafa fengið fjár- mögnun. Þar á eftir eru tónlistar- verkefni ýmiss konar, og svo aðrar listgreinar, en sem dæmi má nefna að ljósmyndarinn Spencer Tunnick, sem er frægur fyrir hópnekt- armyndir sínar, nýtti Kickstarter til að fjármagna tökur í Ísrael nýlega. Þegar horft er á tölur um árangurs- ríka fjármögnun snýst þetta við. Tónlist er sá flokkur sem á flest fjármögnuð verkefni, en um 54% þeirra verkefna hljóta fjármögnun. Þannig hafa minna þekktir tónlist- armenn líkt og Íslandsvinirnir Am- anda Palmer og Daniel Johnston, sem spilar í Fríkirkjunni í sumar, notið stuðnings frá Kickstarter- samfélaginu við að gefa út plötur undanfarið. Það eru þó ýmiskonar tæknivörur sem hafa fengið mestan stuðning frá Kickstarter-samfélaginu. Vin- sælasta verkefni Kickstarter til þessa er Pebble, armbandsúr sem tengist snjallsíma og birtir upplýs- ingar um SMS og tölvupósta á skjánum. Pebble aflaði rúmlega $10 milljóna en upphafleg beiðni um stuðning nam $100.000. Það er rúm- lega 10.000% fjármögnun. Þá söfn- uðu framleiðendur Ouya-leikjatölv- unnar rúmlega $8 milljónum til að hefja framleiðslu þessarar nýju leikjatölvu sem mun byggjast á Android-símastýrikerfinu. Tölvu- leikir hafa líka notið talsverðrar vel- gengni, en enginn flokkur hefur safnað hærri upphæð. Alls hafa rúmlega 4.000 verkefni í tölvu- leikjum safnað rúmlega $90 millj- ónum, sem er um 20% allar þeirrar fjármögnunar sem safnað hefur fyr- ir tilstilli Kickstarter. Samt jafn- gilda tölvuleikir einungis 5% þeirra verkefna sem hafa leitað eftir fjár- mögnun þar. Engar tryggingar í boði En þrátt fyrir að margir hafi látið drauma sína rætast fyrir tilstilli Kickstarter heyrast gagnrýn- israddir. Margir hafa vakið máls á að engar tryggingar séu fyrir því að vara verði að veruleika, þrátt fyrir að full fjármögnun náist. Þá hefur verið bent á að verkefni tengd ým- iskonar áhugamálum eða sérvitr- ingslegri söfnunaráráttu eigi mun auðveldara með að fá hljómgrunn hjá Kickstarter-samfélaginu en ann- að. Að sama skapi hefur talsvert verið fjallað um það hvað nýleg fjármögnun á hluta framleiðslu- kostnaðar við mynd um Veronicu Mars kunni að þýða þegar fram í sækir. Margir telja að þetta verði til þess að fleiri kvikmyndaver fari þessa leið til að draga úr óvissu- kostnaði við framleiðslu kvikmynda, sem kynni að hafa slæmar afleið- ingar, bæði fyrir kvikmyndagerð, sem og Kickstarter-samfélagið. Hvernig á tilvonandi sjálfstæðum heimildamyndum á borð við Ósk- arsverðlaunamyndina Innocente eft- ir að vegna í samkeppni um pen- inga við næstu Hollywood-stórmyndina? Þá hafa rannsóknir sýnt að nær 75% verk- efna sem fá fjármögnun koma seinna úr framleiðslu en lofað var, þó að mikill meirihluti verkefna komi, sum seint og um síðir. *Stofnendur Kickstarter hafa bent á aðMozart og Beethoven hafi þurft aðtreysta á fyrirfram fjármögnun verka sinna frá velgjörðarmönnum þeirra tíma. Hjá Kickstarter er tónlist sá flokkur sem á flest fjármögnuð verkefni, en um 54% tónlistar- verkefna hljóta fjármögnun. Jake Bronstein er fyrrverandi ritstjórikarlatímaritsins FHM, en hefur í dagsnúið sér að gerð slitsterks karl-mannafatnaðar sem framleiddur er í Bandaríkjunum fyrir tilstilli Kickstarter. Bronstein hóf framleiðsluna á nærbuxum úr gæðabómull undir merkinu Flint and Tin- der, sem hann lofaði að væru slitsterkari, þægilegri og endingarbetri en aðrar nær- buxur. Og þar að auki framleiddar í Banda- ríkjunum. Hann óskaði eftir fjármögnun upp á 30.000 dollara en fékk tæplega tíu sinnum þá upphæð og fyrirfram pantanir fyrir 23.000 nærbuxur. Nú óskar Bronstein eftir fjármögnun fyrir hettupeysu sem hann lofar að endist í tíu ár. Ef hettupeysan skemmist á þeim tíma geturðu sent hana til baka og hún verður löguð þér að kostnaðarlausu. Enn er um mánuður eftir af fjármögn- unarlotunni á Kickstarter, en þegar þetta er skrifað hefur verið heitið rúmlega 600.000 dollurum, sem er talsvert yfir 50.000 dollara markinu sem óskað var eftir ÚR TÍMARITUM Í KARLAFATNAÐ Velgengni Jakes Bronsteins Jake Bronstein hefur nýtt Kickstarter við fjármögnun á karl- mannafatnaði undir merkinu Flint and Tinder. Smáralind | Sími 512 1330 Laugavegi 182 | Sími 512 1300 Lækkuðverð iPhone5 iPhone4 Verð: 129.990.- Verð áður: 139.990.- Vörunr. IPHONE516GBB Verð: 79.990.- Verð áður: 84.990.- Vörunr. IPHONE516GBB 1.000 kr. símnotkun á mánuði í 12 mánuði hjá NOVA fylgir iPhone5, keyptum hjá epli.is Gildir í áskrift og frelsi. 1.000 kr. símnotkun á mánuði í 6 mánuði hjá NOVA fylgir iPhone4S, keyptum hjá epli.is Gildir í áskrift og frelsi. 16GB 8GB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.