Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 13
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Eiturflyfjafíkill kveikir í pípu í
„Crackolandia“ þar sem fíklar koma
saman til að reykja krakk í miðbæ
Sao Paulo í Brasilíu.
AFP
*Viðskiptin með eiturlyf eru kapútal-ismi. Á meðan það er eftirspurn verð-ur framboð. Við getum auðvitað slökkt í
eftirspurninni. Til þess þarf einfaldlega að
fá 200 milljón eiturlyfjaneytendur til að
hætta að kaupa eiturlyf.“
Tímamót urðu í júní 2011 þegar
Heimsnefnd um eiturlyfjamál hélt
blaðamannafund í New York. Þar
voru samankomnir Kofi Annan,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, Javier Solana,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, George
Shultz, sem var utanríkisráðherra í
forsetastíð Ronalds Reagans, og
Paul Volcker, fyrrverandi yfirmaður
bandaríska seðlabankans. Á fund-
inum lögðu þeir fram 20 síðna
skýrslu. „Heimsstríðið gegn eitur-
lyfjum hefur misheppnast með
hræðilegum afleiðingum fyrir fólk
og samfélög um allan heim,“ sagði í
upphafi hennar.
Ómögulegt er að segja hver
verður niðurstaða þeirra umræðu,
sem er farin af stað um nýja nálgun
í baráttunni gegn eiturlyfjum. Enn
er langt í lögleiðingu. Andstæð-
ingar hennar telja að það gæti haft
skelfilegar afleiðingar og hafa sín
rök. Júrí Fedotov, sem leiðir stofn-
un Sameinuðu þjóðanna um bar-
áttu gegn eiturlyfjum og afbrotum,
bendir á að árlega felli hið löglega
eiturlyf áfengi 2,3 milljónir manna í
valinn. 5,1 milljón manna verði tób-
aki að bráð. Fórnarlömb ólöglegra
eiturlyfja séu mun færri. Tvö
hundruð þúsund manns láti lífið á
ári vegna neyslu heróíns, kókaíns
eða krakks. Að hans mati er það
árangurinn af því að banna þessi
eiturlyf.
Ljóst er að kostnaðurinn af
stríðinu gegn eiturlyfjum er óheyri-
legur og erfitt að réttlæta hann.
Um leið eru lausnirnar umdeildar
og engin leið að segja hvað til
dæmis yrði leyst úr læðingi með
því að lögleiða eiturlyf. Víða er þó
verið að stíga skref í þá átt, meðal
annars í Portúgal og Bandaríkj-
unum þar sem kjósendur greiddu
atkvæði með því að lögleiða mari-
júana í tveimur ríkjum í síðustu
kosningum. Reynslan af þeirri þró-
un mun væntanlega veita vísbend-
ingar um framhaldið.
ÞUNGAVIGTARMENN RÍSA UPP
Afganskur bóndi vinnur á valmúaakri
sínum í Nangarhar-héraði. Talibanar
nota hagnaðinn af heróíni til að
kaupa sér vopn.
AFP
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Faxafeni 5, Reykjavík | Sími 588 8477
Skeiði 1, Ísafirði | Sími 456 4566
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.isLeggur grunn að góðum degiwww.betrabak.is
ÞÍN STUND – ÞINN STAÐUR
PRIME
Hægindastóll fullt verð 299.990
Skemill fullt verð 79.990
Til í mörgum útfærslum
F
Y
R
IR
ÞÍ
NA
R BESTU STU
N
D
IR
10%
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR