Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 53
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Útskriftarnemendur á leik- arabraut LHÍ sýna Draum á Jónsmessunótt, hið kunna leikverk Shake- speares, á laugardags- og sunnudags- kvöld klukkan 20. Sýnt er í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. 2 Á sunnudag klukkan 14 verður Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands með leið- sögn á ensku um sýningarnar í safn- inu. Í „Gamlar gersemar“ getur að líta verk eftir löngu látna innlenda og erlenda listamenn. Á hinni sýningunni eru verk „erlendra áhrifavalda“. 4 Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir í Edinborgarhús- inu á laugardagskvöld klukk- an 21 söngsýninguna „Gúttó – Hlegið hátt og dansað dátt í 40 ár“. Saga Gúttó á Ísafirði er rifjuð upp í tali og tónum. 5 Músíktilraunum, hinni ár- legu grasrótarkeppni hljóm- sveita, lýkur með loka- tónleikum í Silfurbergi í Hörpu klukkan 17 á laugardag. Þar takast á þær ellefu sveitir sem komust áfram í forkeppninni. Mega gestir eiga von á að heyra allrahanda tónlist og margt gott, enda hafa margar sig- ursveitanna náð langt í kjölfarið. 3 Blúsáhugamenn eiga von á góðu næstu daga, því Blúshá- tíð verður haldin í vikunni í tí- unda sinn. Laugardagur er blúsdagur og klukkan 14 verður há- tíðin sett í Hörpu. Þar verður tilkynnt hver er blúsmaður ársins og lifandi blús verður fluttur á svæðinu. MÆLT MEÐ 1 Við snúum alltaf aftur norður að leika áhátíðinni því það er stemning yfirþví, allt önnur stemning en í Reykja- vík,“ segir Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Hún stendur í sextánda sinn fyrir tónlist- arhátíðinni Músík í Mývatnssveit um páskana. Tvennir tónleikar verða haldnir, þeir fyrri í Skjólbrekku klukkan 20 á skír- dag, þar sem flutt verður svellandi fjörug Vínartónlist, og kl. 21 í Reykjahlíðarkirkju að kvöldi föstudagsins langa. Flytjendur á hátíðinni að þessu sinni eru, auk Laufeyjar, þau Einar Jóhannesson klar- inettuleikari, Hávarður Tryggvason kontra- bassaleikari og Aladár Rácz píanóleikari. Sérstakur gestur á fyrri tónleikunum er Björn Jónsson tenór en þá, rétt eins og á seinni tónleikunum, kemur Þóra Einarsdóttir sópran einnig fram. Samkvæmt venju geta tónleikagestir geng- ið kringum Mývatn að morgni föstudagsins langa, eða notið þess að hvíla sig, skoða sveitina og borða góðan mat, áður en tón- leikarnir hefjast í Reykjahlíðarkirkju um kvöldið. Laufey segir helgiblæ verða yfir þeim en meðal annars verða flutt þrjú lög eftir Ingibjörgu Guðlaugsdóttur við kvæði ömmu hennar Jakobínu Sigurðardóttur frá Garði. Einnig verða á efnisskránni verk ítalskra snillinga á borð við Vivaldi og Ross- ini. „Í þessu umhverfi skapast oft mikil nánd, annars vegar milli flytjenda, og hinsvegar milli flytjenda og áheyrenda,“ segir Laufey. „Tónlistarfólkið kemst oft á flug og við höf- um átt ógleymanlegar stundir á þessum tónleikum. Þess vegna snúum við alltaf aft- ur.“ Afleikur á þingi Sú nýjung verður á tónleikunum í Skjól- brekku að í hléi munu metnaðarfullar mý- vetnskar konur bjóða gestum að bragða á mat úr héraðinu. Laufey vonast til þess að það mælist vel fyrir. Hún segir Hótel Reynihlíð að venju vera einn aðalbakhjarl tónleikanna og það bjargi framkvæmdinni að nokkur fyrirtæki styðji við bakið á þeim. Laufey segir róðurinn hafa þyngst þegar þessi tónlistarhátíð, sem aðrar, var tekin af fjárlögum. „Það er ekki auðvelt að láta enda ná sam- an og það ráðslag alþingismanna að taka tónlistarhátíðir út af fjárlögum var afleikur. Nema að tilgangurinn hafi verið að ganga af viðburðum sem þessum dauðum,“ segir hún og bætir við að það sé mikilvægt að tónlistarfólkið sem komi fram fái greitt fyrir sína vinnu. efi@mbl.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN MÚSÍK Í MÝVATNSSVEIT HALDIN Í SEXTÁNDA SINN „Ógleymanlegar stundir“ KUNNIR TÓNLISTARMENN TAKA HÖNDUM SAMAN Á TVENNUM TÓNLEIKUM Á TÓNLISTARHÁTÍÐ VIÐ MÝVATN UM PÁSKANA. „Tónlistarfólkið kemst oft á flug og við höfum átt ógleymanlegar stundir á þessum tón- leikum,“ segir Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Rósa Braga Félagarnir Rúnar Freyr Gíslason og Páll Steinarsson vilja glæða Edrúhöllina lífi og bjóða alla vel- komna á tónleika með Bigga Hilmars á þriðjudag. Biggi Hilmars Valdimar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.