Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 51
24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 félagi. Heimur trygginga og heimur leik- hússins eru tveir gerólíkir heimar. Í leikhús- inu er ætlast til þess að maður sé alltaf að gefa af sér alls kyns tilfinningar – reiði og gleði. Í tryggingunum eru það trygg- ingalögin sem eru lokaniðurstaðan. Og það er ekkert annað í boði en að fara eftir lög- unum þegar ágreiningur rís, ekkert hægt að ræða það fram og til baka eins og í leikhús- inu. Á þessum tímapunkti var ég búinn að vinna á kvöldin og um helgar í aldarfjórð- ung en núna er ég frá níu til fimm. Það fannst mér vera stór kostur og var ásamt öðru það sem ég var að leita að þegar ég skipti. Það er mjög góður andi á þessum vinnustað, tryggingafélaginu Verði, og það er kannski aðalatriðið, ef ég hefði lent á ein- hverjum öðrum stað þar sem andinn væri ekki svona góður hefði ég líklegast ekki ver- ið svona ánægður. En ég verð líka að hafa eitthvað skapandi með og er svo heppinn að ég á afar skilningsríka vinnuveitendur. Það eru ekki allir sem myndu kannski vera ró- legir með að starfsmaðurinn í tryggingafyr- irtækinu þyrfti að fljúga til Sardiníu til að leika útrásarvíking. En við getum kannski orðað þetta svo að ég sé kominn í ótíma- bundið frí frá leikhúsinu, kannski fer ég þangað aftur, hver veit? En ég geri töluvert af því að lesa upp, meðal annars inn á hljóð- bækur, og þar fæ ég nokkra útrás fyrir sköpunarþörfina.“ Sirrý og Kristján verða eilítið vandræða- leg þegar þau eru spurð hvort þau séu alltaf sammála um allt. Þeim reynist í það minnsta erfitt að finna eitthvað sem þau eru ósammála um. Sirrý „Ég trúi því nú varla að það sé ekki eitthvað þarna til að deila um. Það hlýtur að vera eitthvað Kristján?“ Kristján „Ja, það sem ég hef lagt til er það smávægilegt að þér finnst asnalegt að telja það upp eins og hvernig ég fer yfir með ryksugunni.“ Sirrý „Eflaust hefur það hjálpað okkur að við höfum tekið á vandamálum sem hafa komið upp og ekki flúið af hólmi. En fólk er svo allavega. Mér finnst engin ástæða fyrir fólk að hanga saman í hjónabandi ef það hefur enga hamingju að gefa hvort öðru. Ég hugsa að okkar samband sé ekki nein fyr- irmynd að því hvernig fólk á að vera. Mér finnst ekkert unnið með því að segja fólki að það eigi að vera eins og ég eða við. Mér leiðast predikanir ákaflega og reyni að tala aldrei þannig til fólks.“ Kristján „Hver og einn verður að finna sína leið. Maður á einfaldlega að vera vel undir það búinn þegar hamingjan kemur og taka henni opnum örmum.“ Sirrý „Já og hamingjan getur komið yfir mann allt í einu í hvunndeginum. Til dæmis þegar maður situr úti í garði með kaffibolla og er í sátt við sjálfa sig og aðra og þá er að taka eftir þegar hamingjan bankar upp á. Eða eins og Ingibjörg Haraldsdóttir frænka mín sagði í kvæði sem hún orti: „Þarna er hún lifandi komin, hamingjan.““Morgunblaðið/Golli * „Ég er svo heppinnað ég á afar skiln-ingsríka vinnuveitendur. Það eru ekki allir sem myndu kannski vera rólegir með að starfs- maðurinn í trygginga- fyrirtækinu þyrfti að fljúga til Sardiníu til að leika útrásarvíking.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.