Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingGetum við átt kröfu til launa ef við höfum ekki unnið? »22 Þ etta er fyrsta skrefið í þá átt að sérsníða greiningu sjúk- dóma að þörfum hvers og eins sjúklings,“ segir Ines Thiele, prófessor við Háskóla Íslands, í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðs- ins. Thiele er aðalhöfundur greinar sem birtist um málið á dögunum í vísinda- tímaritinu Nature Biotechnology. Hún segir vísindamenn víða um heim farna að nota líkanið, „götukortið“, við rannsóknir. Alþjóðlegum hópi vísindamanna, þar á meðal starfsmanna HÍ, hefur tekist að búa til fullkomnasta kort af efnaskiptum mannslíkamans (nefnt Recon 2), sem lýsir því í smáatriðum hvernig líkaminn um- breytir fæðu í orku og safnar saman öllum hormónum og próteinum sem frumur og vefir þurfa á að halda á degi hverjum. Gæti bætt heilsu og lengt líf Gen eru vissulega grundvöllur mann- legrar tilveru, en það er virkni þeirra, í líki afurðanna sem þau búa til – frá ensímum og hormónum til næringarefna og hvataþátta – sem stjórna því hvernig frumur hafa samskipti sín á milli og hvernig líkamskerfi virka, svo sem það hvernig við brjót- um niður fæðu til að mynda orku. „Það er eins og að vita hvar allir bílar í bænum eru staðsettir hverju sinni, en eiga ekkert götukort,“ segir Ines Thiele. Íslensk erfðagreining (deCODE) hefur rannsakað gen árum saman „og ef þær gríðarlegu upplýsingar sem fyrirtækið býr yfir yrðu settar inn í líkan eins og Recon 2 gætu áhrifin orðið stórkostleg og von- andi til þess að bæta heilsu og lengja líf fólks,“ segir Thiele. Spennandi skref Hún vill ekki nefna nákvæman tíma í þessu sambandi. „Þetta verður ekki á morgun en þó líklega á næstu árum; lík- anið er reyndar hægt að nota strax til rannsókna – og margir vísindamenn víða um heim byrjuðu á því strax og við gerð- um það aðgengilegt. Þegar er að sjá hvaða áhrif ákveðnar aðgerðir hafa og ég álít að þetta muni gagnast sjúklingahópum ein- hvern tíma á næstu 10 árum.“ Hún segir hér alls ekki um neina end- anlega lausn að ræða, miklu frekar ákveð- ið upphaf. „Við lærum í raun eitthvað nýtt á hverjum degi um efnaskipti, en með Re- con 2 er vissulega stigið mjög spennandi skref, sem mun leiða til aukinna lífsgæða þegar fram líða stundir.“ Með því að setja það saman hvernig gen og afurðir þeirra hafa samskipti innan heilla netkerfa er hinn alþjóðlegi hópur vísindamanna orðinn sannfærður um að Recon 2 gæti hjálpað til við að afhjúpa sumar af þeim orsökum sjúkdóma á borð við krabbamein og sykursýki sem enn eru óþekktar, ásamt því að leiða til betri með- ferða. „Á endanum sé ég fyrir mér að þetta verði notað til að sníða greiningu og meðferð að þörfum hvers einstaklings. Í framtíðinni gæti sú færni hjálpað læknum að þróa tölvulíkön af efnaskiptakerfum hvers og eins sjúklings og koma þannig auga á áhrifamestu meðferðina við ýmsum sjúkdómum og þar á meðal sykursýki, krabbamein og taugahrörnunarsjúkdóm- um,“ segir Ines Thiele. Segja má að Recon 2 líkist Google map, sem margir kannast við, þar sem það fell- ir saman í eitt gagnvirkt verkfæri allar smæstu upplýsingar um efnaskipti manns- líkamans og gerir notendum kleift að stækka myndina og sjá í eins miklum smáatriðum og þeir vilja, allt niður í ein- stakar frumur, einnig að þysja út til að sjá víðari heildarmynd af öllum þeim mismun- andi efnaskiptahvörfum sem gætu tengst tiltekinni virkni. Slík greining getur af- hjúpað virknimynstur sem að öðrum kosti myndu ekki blasa við vísindamönnum sem einbeittu sér að afmarkaðri verkefnum. Ef Miklabrautin lokast … Einn höfunda vísindagreinarinnar sem áð- ur var vitnað til er Bernharð Pálsson, pró- fessor í lífverkfræði við Jacobs verk- fræðisvið Kaliforníuháskólans í San Diego. Í tilkynningu skólans þar sem umfangi verkefnisins er lýst, sagði: „Þetta er ekki ólíkt því hvernig þú getur kallað fram götumynd af einstöku húsi eða þysjað út til að sjá hvernig húsið fellur inn í heilt hverfi, borg, ríki, land og hnött. Og rétt eins og Google maps dregur margs konar gögn – myndir, heimilisföng, götur og um- ferðarflæði – inn í verkfæri sem er auð- velt að nota, þá dregur Recon 2 saman gríðarlegt safn gagna úr birtum vís- indaritum og þeim líkönum sem til eru yf- ir efnaskiptaferli.“ Ines Thiele tekur nærtækt dæmi. „Ef ég er stödd í Háskóla Íslands og þarf að komast í Kópavog en Miklabraut og aðrar venjulegar leiðir eru lokaðar, get ég séð á götukorti hvaða aðrir möguleika ég hef. Recon 2 getur á sama hátt hjálpað sér- fræðingum að sjá hvaða leið sé fær fyrir hormón og prótein ef þær hefðbundnu er lokaðar af einhverjum ástæðum.“ Eins og ráða má af nafngiftinni var einnig til Recon 1, sem kortlagði 3.300 efnaskiptabreytingar sem eiga sér stað í vefjum og frumum. Recon 2 rúmlega tvö- faldar fjölda þessara efnaskipta með því að ná yfir meira en 7.400 ólík efnaskipti. NÝTT „GÖTUKORT“ EFNASKIPTALEIÐA Áhrifin gætu orðið stórkostleg HÓPUR ALÞJÓÐLEGRA VÍSINDAMANNA, M.A. VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS, HEFUR BIRT NÝTT LÍKAN AF EFNASKIPTAFERLUM MANNSLÍKAMANS, „GÖTUKORT“ SEM NÝTAST MUN VIÐ MARGSKONAR RANNSÓKNIR VÍÐA. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.