Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 40
Andersen & Lauth Pallíetturnar
eru ákveðið einkennismerki hjá
þessu fatamerki. Línan var fjöl-
breytileg en munúðin var aldrei
langt undan.
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
Föt og fylgihlutir
Mundi 66°Norður Nýtt samstarf var kynnt með stuttmynd á RFF, auk þess sem nokkrir leikaranna komu á svið, gang-
andi á bretti. Línan kallast snjóblinda og sameinar súrrealískan heim Munda og tæknilega hlið fatnaðar frá 66°Norður.
HÁTÍÐIN RFF HALDIN Í FJÓRÐA SINN
Tískuveisla í Hörpu
TÍSKUHÁTÍÐIN REYKJAVÍK FASHION FESTIVAL VAR HALDIN Í FJÓRÐA SKIPTI UM SÍÐUSTU
HELGI OG FLÉTTAÐIST AÐ ÞESSU SINNI VIÐ DAGSKRÁ HÖNNUNARMARS. SJÖ ÍSLENSK
TÍSKUMERKI TÓKU ÞÁTT OG MÁ SJÁ HÉR BROT AF ÞVÍ BESTA.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Eva Björk Ægisdóttir evabjork7@gmail.com
Farmers Market Borgarvænn útivistarfatnaður Farmers Market á víða upp á
pallborðið og gengur við mörg tækifæri. Efnin eru náttúruleg og sniðin klæðileg.
Huginn Muninn Þetta merki er þekktast fyrir fjölbreytilegar og nýstárlegar
herraskyrtur sínar en þarna var bæði karl- og kvenfatnaður til sýnis og mátti
greina ákveðinn víkinga- og valkyrjuanda í sýningunni þó að hann væri tónaður
niður.
S
jö íslensk tískumerki tóku þátt í Reykjavík
Fashion Festival sem fram fór í Hörpu síð-
astliðinn laugardag. Þetta er í fjórða sinn sem
þessi mikla tískuhátíð fer fram en í þetta
skipti var hún með breyttu sniði og sýningarnar fóru
allar fram sama dag en var ekki skipt niður á tvö
kvöld. Hátíðin var að þessu sinni hluti af Hönn-
unarmars og var margt um að vera í húsinu á sama
tíma.
Hátíðin er haldin til að vekja athygli á því sem ís-
lenskir hönnuðir eru að gera og koma fjölmargir er-
lendir gestir til landsins af þessu tilefni og hefur það
nú þegar skilað sér í einhverri alþjóðlegri umfjöllun,
meðal annars á vefsíðu þýska Vogue.
Fatamerkin sem tóku þátt voru Huginn Muninn,
REY, Mundi 66°Norður, JÖR by Guðmundur Jör-
undsson, Andersen & Lauth, Farmers Market og
ELLA og sýndu hönnuðir haust- og vetrartískuna
2013-14. Á meðfylgjandi myndum má sjá brot af því
besta sem var sýnt á pöllunum um síðustu helgi.