Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013 B lakkát, leikrit eftir Björk Jakobsdóttur leikkonu og leikskáld, sem nú er sýnt i Gafl- araleikhúsinu nýtur mikilla vinsælda. Björk hefur átt góðu gengi að fagna sem leikrita- höfundur en eins og kunnugt er sló leikrit hennar Sellófon ræki- lega í gegn á sínum tíma og hefur verið sett upp víða um Evrópu. Ýmislegt bendir til að Blakkát feti sömu slóð en verið er að þýða leikritið á ensku og erlendir fram- leiðendur eru í startholunum, þar á meðal í Finnlandi og á Írlandi. Blakkát, sem Edda Björgvinsdóttir leikstýrir, er sýnt í Gaflaraleikhús- inu sem Björk rekur ásamt eig- inmanni sínum Gunnari Helgasyni og fleira góðu fólki. Leikritið fjallar eins og nafnið bendir til um áfengisvanda og auk þess að hafa skrifað leikritið fer Björk með að- alhlutverkið. „Mér finnst gaman að vinna með verk þar sem húmor mætir harmi,“ segir Björk. „Það er ekki gaman að skrifa verk sem er bara létt yfirborð en það er alveg jafn leiðinlegt að velta sér upp úr harminum. Það er ekki hægt að afgreiða Blakkát sem meinlaust grínleikrit, það er háalvarlegt og húmorinn dregur ekki úr alvarlega undirtóninum. Ef fólk sem er komið á minn aldur drekkur enn eins og það sé á útihátíð í Vest- mannaeyjum er það farið að nálg- ast botninn. Það er meira en að segja það að halda uppi fullri drykkju á fimmtugsaldri. Svo þekki ég óvirka alka. Ég er búin að sjá hvað þessi sjúkdómur gerir fólki og hef séð aðstandendur sem þjást. Mér liggur því ýmislegt á hjarta.“ Þetta er gamanleikrit, ertu ekki hrædd við að móðga eða særa alkóhólista? „Þeir alkar sem ég þekki eru fluggreint fólk, miklir húmoristar, stundum afar kaldhæðnir. Fram- leiðendum mínum fannst ég stund- um ganga fulllangt í gríninu og spurðu: Má virkilega segja svona um alkóhólista? Eigum við ekki eftir að móðga fólk? Svo kom í ljós að það má segja allt. Í þessu verki finnst mér ég ekki vera að leyna því hversu alvar- legur sjúkdómur alkóhólismi er. Það fer engan veginn á milli mála að aðalpersónan á afskaplega bágt. Það er erfitt að fjalla um alkóhól- isma í gamanleikriti og ætla að vera fyndin allan tímann. Leikritið var í upphafi ansi grimmt eftir hlé og það var nokkur glíma að halda í grínið til enda en svíkja ekki þann alvarleika sem einkennir sjúkdóminn því þessi sjúkdómur er líka ljótur og leiðir fólk í ömurleg- an áttir. Áfengið fletur út öll mörk og alkóhólistinn hlýðir engum reglum þegar hann drekkur. Alk- inn hlýðir ekki einu sinni reglum leikhússins. Þegar ég áttaði mig á því gat ég endurskrifað eftir hlé og haldið húmornum til enda þó að ég stingi að sjálfsögðu nokkrum sársaukastungum inni á milli.“ Glíma við óöryggi Þið hjónin starfið bæði í leiklist- inni. Gerir það hjónabandið skemmtilegra eða erfiðara að vinna á sama vettvangi? „Ég horfði á viðtal í 60 mínútum við konu sem er í yfirmannastöðu hjá Facebook. Hún sagði að það væri afar mikilvægur hlekkur í framaferlinum að finna sér réttan maka. Ég held að það sé alveg hárrétt. Við Gunni vinnum bæði í leikhúsbransanum. Ég á minn besta vin í Gunna og get talað við hann um vinnuna og treyst honum fullkomlega. Það er yndislegt. Svo eigum við tvo stráka sem virðast ætla báðir að sækja í leiklistina. Þetta er bara skemmtilegt.“ Það eru til fræg dæmi um að gamanleikarar og þeir sem skrifa í gamansömum tóni glími við innra óöryggi. Hvað um þig, ertu glað- lynd og sjálfsörugg að eðlisfari? „Ég er glaðlynd að eðlisfari en ekki ofvirk eins og sumir virðast halda. Þið eruð svo ofvirk hjónin, heyri ég fólk oft segja en þá er verið að horfa á yfirborðið. Þegar maður vinnur við það að vera hress og er kominn upp á svið fyr- ir framan fullt af fólki þá verður maður að setja í ofvirknigírinn bara til að halda athygli áhorfand- ans. Svo er maður allt öðruvísi heima hjá sér. Ég var óskaplega stressuð fyrir frumsýningu á Blakkáti. Þegar ég fór í viðtöl vegna sýningarinnar setti ég upp grímu og reyndi að vera skemmtileg. Ég glími við óör- yggi sem hefur þó farið minnkandi með árunum. Það er ágæt regla að viðurkenna fyrir sjálfum sér þegar maður gerir eitthvað vel. Fæstir eru tilbúnir að segja við mann: Þetta var frábært hjá þér og af því þú gerðir þetta svo vel þá ætla ég að gefa þér enn fleiri tækifæri. Þegar ég er spurð af hverju mér hafi gengið svona vel þá hef ég oft svarað því sem svo að ég hafi verið heppin eða að ég eigi svo góða vini sem hafi að- stoðað mig. Það er alveg rétt, en ég hef alltof oft þakkað öllum öðr- um en sjálfri mér. Ef þú spyrð karlmann þessarar sömu spurn- ingar þá svarar hann því yfirleitt þannig að velgengnin sé eigin verðleikum að þakka. Hann segir réttilega: Ég veit hvað ég er að gera. Þess vegna gengur mér vel. Þetta þurfum við stelpurnar að læra. Það tók mig langan tíma að uppgötva að ég gæti skrifað. Nú er kominn tími til að ég hætti að afsaka mig og átti mig á því að ég get skrifað leikrit.“ Snobbað fyrir því skrýtna Það er talað um að erfitt sé fyrir konur að vera í kvikmyndagerð á Íslandi. Fá konur sem skrifa fyrir leikhús eða leikstýra jafnmikla at- hygli og karlarnir? „Stundum er talað um að konur skrifi ekki nóg en hvernig væri þá að veita því athygli sem þær gera? Í þeim frábæra menningarþætti Djöflaeyjunni var fyrir örfáum mánuðum fjallað um ný íslensk leikrit og ekki var minnst á Blak- kát. Þetta er eins og verið væri að tala um bækur og einungis talað um karlhöfundana. Ég verð að við- urkenna að ég varð undrandi. Ég er ekki að biðja um neinn lúðra- blástur, ég er bara að biðja um að fá að vera með. Svo finnst mér þögnin í kringum Eddu Björgvins- dóttur mjög einkennileg. Edda er ein okkar fremstu gamanleikara og gríðarlega hæfileikamikil. Í Blakkáti er hún að leikstýra sinni fyrstu sýningu í atvinnuleikhúsi. Ég bjóst við að um það yrði fjallað og rætt því hún er þessi stóra kona í íslensku leikhúslífi. En það varð ansi hljótt um það.“ Eru þeir listamenn sem beita fyrir sig húmor í list sinni ekki oft vanmetnir og ekki taldir vera að gera jafn merkilega hluti og þeir sem sveipa sig alvöru? „Það er kannski meira við- urkennt erlendis en hér hvað það er mikil kúnst að skrifa gam- anleikrit. Það er gríðarlega erfitt að skrifa leikrit þar sem áhorf- endur geta hlegið svo að segja all- an tímann. Það eru ekki til mörg slík íslensk leikrit. Mér finnst við stundum snobba fyrir því skrýtna. Það þykir mjög fínt að skrifa skrýtið leikritið með afar opnum endi svo að áhorfandi Húmor mætir harmi VIÐ SNOBBUM STUNDUM FYRIR ÞVÍ SKRÍTNA, SEGIR BJÖRK JAKOBSDÓTTIR. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN UM GAMANLEIK OG LEIKRITAGERÐ OG GAGNRÝNIR STYRKJAKERFI ÞAR SEM VERK SEM FÆSTIR SKILJA FÁ HÁA STYRKI EN HORFT ER FRAMHJÁ VINSÆLUM LISTAMÖNNUM. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.