Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Qupperneq 38
*Föt og fylgihlutir Tískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival var haldin um síðustu helgi »40
Ein klassísk – hver hafa verið bestu kaupin þín
fatakyns?
Ég er svo vandræðalega hrifin af fallega hönnuðum
fötum að mér finnst flíkurnar hafa verið margar mjög
góðar hjá mér í gegnum tíðina. Ég lít kannski inn í
fataskápinn og dreg fram eitthvað sem ég hef keypt
fyrir lifandis löngu og er enn mjög ánægð með. Þótt
það hafi mögulega kostað skildinginn finnst mér ein-
mitt vel hafa tekist til þegar flíkin nýtist í fleiri ár.
En þau verstu?
Verstu kaupin eru nokkur pör af of litlum skóm! Ég
hef kannski verið stödd á rosa útsölu einhvers staðar
þar sem úrvalið hefur verið takmarkað og ég hef troð-
ið mér í skó – í mjög góðri trú – sem eru einu númeri
of litlir. Ég tek það fram að þetta getur og hefur virk-
að því ég læt þau í Skóvinnustofu Hafþórs stundum
víkka aðeins skó vegna þess að ég er með svo háa rist.
En stundum nægir þessi viðleitni engan veginn og þá
fær yfirleitt kær vinkona að njóta þess.
Hvar kaupir þú helst föt?
Ég versla helst á útsölu, að minnsta kosti í dýrari
hönnunarbúðum. Hér heima sérstaklega Kron Kron og
GK. Starfsfólkið þar tekur líka einstaklega vel á móti
mér þegar verðmiðarnir eru enn í fullu fjöri, en þá er
ég meira að handfjatla flíkurnar, spá og spekúlera.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
Melabúðin. Hún er að minnsta kosti sú besta. Nei
ég hef nú haldið mig frá þeim allra flottustu þegar ég
er erlendis vegna þess að þá hef ég einfaldlega ekki
tíma til að láta mig dagdreyma um það sem þar er.
En við maðurinn minn duttum saman niður á eina í
Barcelona í fyrra sem heitir Massimo Dutti. Það er
keðja með vandaðar vörur og líka mjög góða sófa til
að bíða í sem er nauðsynlegt fyrir hann.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í?
Já þokkalega, meira kannski svona sjálfsmynd-
arkrísur sem ég fór í gegnum sem leitandi unglingur.
Einu sinni mætti ég með mikið stíliseraða mynd af
Björk þegar hún var með stutt svart hár og bað klipp-
arann minn á Selfossi um eins. Við mamma höfðum
brunað úr sveitinni, þar sem ég er uppalin, og hún
skroppið í kaupfélagið á meðan. Ég hafði ekki einu
sinni látið mér detta í hug að biðja um leyfi fyrir þess-
ari geggjuðu klippingu að mínu mati, vissi alveg að
viðbrögð mömmu yrðu neikvæð. Það var niðurlút og
tárvot 14 ára stúlka sem gekk út í bíl til mömmu sinn-
ar í hvítri hettupeysu frá Jónasi á milli, í skopp-
arabuxum sem voru sirka tíu númerum of stórar og
með svart hár með rauðum strípum í. Það var
óskemmtileg lífsreynsla að láta hvítu náttúrulegu lokk-
ana vaxa á nýjan leik.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt??
Gæði í efnum, gott snið sem passar vel og endingu.
Gæðin kosta vanalega meira en ég vel að kaupa frekar
fátt og gott en margt og lélegt. Eftir að aldurinn fær-
ist yfir verður líka auðveldara að velja eftir þeim stíl
sem maður hefur smátt og smátt þróað með sér. Und-
antekningin sem sannar þá reglu að verð fylgi gæðum
eru góðar vintage-vörur sem eru vel sniðnar og oft úr
betri efnum en almennt er boðið upp á í dag. Það er
hins vegar erfitt að finna þannig gersemar. Þó get ég
gefið upp að ég hef t.d. fundið margar mínar uppá-
haldsyfirhafnir í Rauðakrossbúðinni í Garðastræti sem
elegant frúr hafa gefið áfram.
Litadýrð eða svart/hvítt?
Litadýrð. Ég eiginlega gerði mér ekki grein fyrir
því fyrr en ég hugsa um það, en ég er oft og iðulega í
fjölmörgum litum í einu. Það er samt ómeðvitað. Mér
finnst svart og hvítt líka mjög fallegt en með þannig
fatnað og samsetningu er jafnvel skýrari krafa um að
sniðin séu fullkomin og efnin falleg.
Hefurðu augastað á einhverju fallegu fyrir
páskana?
Nei, ég get ekki sagt það. En ég mun kaupa mikið
af góðu hráefni í fallegan mat. Ég er nýbúin að eiga
afmæli og fékk svo mikið af gjöfum að ég er góð í all-
nokkurn tíma.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Mér finnst heillandi þegar fólk er sjálfstætt og sam-
kvæmt sjálfu sér í fatavali. Þá skiptir ekki máli hvort
um er að ræða Karl Lagerfeld eða Steve Jobs. Sá síð-
arnefndi var með sinn stíl sem samanstóð af rúllu-
kragabol og 501 Levis-buxum upp í mitti. Ég myndi
kannski ekki velja það sjálf en mér finnst heillandi
þegar fólk er rólegt og yfirvegað og heldur stefnu
þrátt fyrir tískustrauma hvers tíma. Svo er Birgitte
Nyborg vinkona mín einstaklega töff þar sem
hún hjólar um mátulega ligeglad á beygl-
uðu hjóli um stræti Kaupmannahafnar í
gallabuxum og hvítri skyrtu. Og kannski
Chanel-jakka sem toppar lúkkið.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð??
Já, allnokkra enda finnst mér mjög gaman
að fylgjast með tísku. Alexander Wang,
Ann Demeulemeester, Balmain og Bal-
enciaga eru þeir erlendu hönnuðir sem
ég hef gaman af vegna einstakra list-
rænna hæfileika. Allmargir íslenskir
fatahönnuðir eru líka í háum gæða-
flokki. REY eftir Rebekku Jónsdóttur
er í sérstöku uppáhaldi, ekki síst eftir
sýningu hennar núna á RFF, og svo er
Gummi í JÖR ofboðslega flinkur og
einstakt óskabarn þjóðarinnar, skil
ekkert af hverju Ragnhildur Steinunn
er ekki búin að fá hann í Ísþjóðina fyrir
löngu.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verð-
miðann, hvaða flík eða fylgihlut mynd-
irðu kaupa??
Porsche 911. Árgerð 1963. Flottasti fylgi-
hluturinn.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem
gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og
þú fengir dag til að versla, hvaða ár mynd-
irðu velja og hvert færirðu?
1920. Art deco, flapper-kjólarnir og allt
sem fylgdi er einstaklega fallegt og afslappað
en á sama tíma flatterandi og skemmtilegt. Ég
er kannski búin að horfa eilítið of mikið á þætt-
ina Boardwalk Empire en ég myndi bara skella
mér beint þangað til Nucky Thompson, smella mér
í eina dömubúð við höfnina og svo beint á Ritz-
hótelið og skála við karlinn í gamaldags kampa-
vínsglösum.
REY er í
miklu uppá-
haldi hjá
Björt.
Björt vill að Ragnhildur
Steinunn fái JÖR í
heimsókn í Ísþjóðina.
14 ára fór Björt í klippingu
með mynd af Björk. Labbaði
út með svart hár og grátandi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
BJÖRT ÓLAFSDÓTTIR
Bjarkarklippingin
gleymist seint
BJÖRT ÓLAFSDÓTTIR LEGGUR NÚ DRÖG AÐ LOKARITGERÐ SINNI Í MEISTARANÁMI
Í HEILSUHAGFRÆÐI. HÚN SEGIST HELST AF ÖLLU VERSLA ÞEGAR ERU ÚTSÖLUR EN AÐ
VERSTU KAUP SÍN SÉU NOKKUR PÖR AF OF LITLUM SKÓM.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Morgunblaðið/Golli