Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Page 42
*Fjármál heimilannaKostnaður við fermingar og veisluhöld vex mörgum foreldrum í augum
E
itt af því sem flestir for-
eldrar standa frammi
fyrir á ævinni er ferm-
ing afkvæmanna. Kostn-
aður við fermingar og tilheyr-
andi veisluhöld vaxa mörgum
foreldrum í augum enda eru
væntingar miklar og sam-
anburður við félagana óhjá-
kvæmilegur. Lára Ómarsdóttir,
fréttakona, heldur nú ferming-
arveislu í fjórða sinn en Hekla
Sól Hauksdóttir verður tekin í
fullorðinna manna tölu á
fimmtudaginn. Fjölskylda Láru
er fjölmenn og fjöldi gesta er
um 130 manns en þrátt fyrir
það er kostnaðurinn við veislu-
höldin og ferminguna innan
við120.000 krónur.
,,Aðalatriðið þegar halda á
ódýra fermingarveislu er að
skipuleggja hana vel. Það þýðir
að gera fjárhagsáætlun fyrir
hana sérstaklega, setja sér
markmið um kostnað og ákveða
svo snemma hvað á að hafa og
skoða vel tilboð og fleira áður
en keypt er inn. Þá er mik-
ilvægt að hafa fermingarbarnið
með í ráðum, láta það vita hve
mikið við höfum milli handanna
til að gera þennan viðburð ynd-
islegan og fá það með í ákvarð-
anir um hverju skuli halda og
hverju sleppa. Þannig eru minni
líkur á að það geri óraunhæfar
kröfur um ferminguna. Aðal-
atriðið ætti að vera fermingin
sjálf og samvera og samfögn-
uður með vinum og ættingjum.“
Baka allt sjálf nema
fermingartertuna
,,Við verðum með kaffi og kök-
ur og heita brauðrétti. Við bök-
um allt sjálf nema ferming-
artertuna, hana kaupum við.
Stundum hefur fjölskyldan
hjálpast að varðandi undirbún-
inginn eins og í síðustu ferm-
ingu hjá okkur en nú sjáum við
um þetta allt ein.
130 gestum er boðið til veisl-
unnar í safnaðarheimili kirkj-
unnar sem athöfnin fer fram í
en fermingin fer fram á skír-
dag. Skreytingar eru látlausar,
teljós, servéttur og borðar eru
keyptir í næstu verslun og
stórt kerti er sett á köku-
borðið. Kertið er ekki sérmerkt
heldur kaupa þau fallegt kerti
í búð.
Fermingarbarnið sjálft fær
ný föt og skó og nýja klipp-
ingu Hún fer ekki í hár-
greiðslu heldur ætlar fjöl-
skylduvinur að greiða henni og
farða. Fermingarbarnið fer
ekki í sérstaka myndatöku
heldur tekur einn ættinginn
myndir.
Lára segist hafa lagt sér-
staklega til hliðar vegna ferm-
ingarinnar tvenn síðustu mán-
aðamót en auk þess leggur
fjölskyldan fyrir mánaðarlega
og hafi sá sjóður verið nýttur
að einhverju marki vegna
fermingarinnar.
Fermingargjöfin frá for-
eldrum er oft ákveðinn haus-
verkur. Í tilfelli Láru er málið
einfalt. Þau hjónin eiga 5 börn
og reglan er skýr. ,,Gjöfin má
ekki kosta meira en ákveðna
upphæð sem miðast við þá gjöf
sem elsta dóttirin fékk á sín-
um tíma. Verðmæti gjafanna
sem hin börnin fá mega kosta
sömu upphæð uppreiknaða mið-
að við neysluvísitölu. Þannig fá
öll börnin okkar jafnmikið í
gjöf.“
LÁRA ÓMARSDÓTTIR KANN AÐ HALDA ÓDÝRA FERMINGARVEISLU
Gerir sérstaka fjárhagsáætlun fyrir
fermingarveisluna og nýtir tilboðin
Fermingarbarnið Hekla Sól Hauksdóttir með móður sinni Láru Ómarsdóttur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
LÁRA ÓMARSDÓTTIR ER EKKI AÐEINS LANDSÞEKKT SEM FRÉTTAMAÐUR HELDUR SEM
EINSTAKLEGA HAGSÝN HÚSMÓÐIR. HÚN VEITIR LESENDUM INNSÝN Í ÞAÐ HVERNIG
HÚN SKIPULEGGUR FERMINGARVEISLU DÓTTUR SINNAR.
Hólmfríður Þórisdóttir holmfridur.thoris@gmail.com
Kostnaður
við fermingu
Heklu Sólar
Fermingarterta 6.990 kr.
Boðskort 12.000 kr.
Fatnaður 30.000 kr.
Snyrting
fermingarbarns 4.000 kr.
Kerti, og skreytingar 16.000 kr.
Kaffi og gos 10.000 kr.
Veitingar 35.000 kr.
Samtals 113.990 kr.
Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi
og kennari við Háskóla Íslands, ákvað
að leigja út húsið sitt í Hafnarfirði og
setja stefnuna á ferðalög. Því leigir hún
hjá vinkonu sinni þessa mánuðina í
Reykjavík og líkar vel.
„Eiginlega finnst mér ég vera komin
á seinni unglingsárin nema maður hef-
ur meira á milli handanna og er örugg-
ari með sig,“ segir Valgerður.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
„Egg, ávexti og grænmeti.“
Hvað fer fjölskyldan með í mat
og hreinlætisvörur á viku?
„Ég eyði mjög litlu í hreinlætisvörur,
hef t.d. ekki notað sjampó í mörg ár
nema þá þegar ég fer í ræktina, þá
skelli ég smá sturtusápu í hárið.
Eyðsla mín er mjög mismunandi en
ætli ég fari ekki með um þessar
mundir um það bil 12 þúsund krónur
á viku en þegar ég hef haldið heimili
hefur það verið töluvert meira.“
Hvar er helst keypt inn?
„Þeir sem eru með opnar búðir
seint á kvöldin græða á fólki eins og
mér. Er mjög léleg í verðsam-
anburði.“
Hvað freistar helst í mat-
vörubúðinni?
„Góðar steikur þegar von er á
fólkinu mínu í mat.“
Hvernig sparar þú í heim-
ilishaldinu?
„Fyrir utan að fara í mat til vina og
vandamanna þá tók ég þá stefnu að
sleppa vísakortinu, nú þarf ég að
hugsa áður en ég set í körfuna. Áður
fyrr átti ég fyrir öllu.“
Hvað vantar helst á heimilið?
„Góðan frystiskáp.“
Eyðir þú í sparnað?
„Nei, en það er á stefnuskránni,
nú nota ég peningana í ferðalög.“
Skothelt sparnaðarráð:
„Svipur og tónn vinkvenna minna,
Örnu og Hrannar, þegar þær spyrja
mig Ertu viss um að þú þurfir á þessu
að halda? Þá get ég ekki sagt annað
en „Nei, nei, – ég er bara að
skoða.““
NEYTANDI VIKUNNAR ER VALGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
Búðir sem eru opnar seint á kvöldin
græða á fólki eins og mér
Valgerður Halldórsdóttir segir að vinkonur hennar komi í veg fyrir að
hún geri slæm kaup.