Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
Í
upphafi bókarinnar Örugg tjáning –
Betri samskipti eftir Sirrý þakkar höf-
undurinn manninum sínum, Kristjáni
Franklín, fyrir ástina, traustið og
hvatninguna í gegnum árin. Árin eru
nákvæmlega 28. Það er sennilega langur tími
hjá fólki sem hefur verið svo lengi í sviðs-
ljósinu. Frá því að hún var tvítug hefur
Sirrý staðið vaktina á íslenskum fjölmiðlum,
blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Álíka lengi
hefur Kristján Franklín leikið í fjölda leik-
rita. Hvað liggur að baki langlífu sambandi?
Sirrý „Jú, þetta er langur tími. Það er al-
veg rétt. Í okkar tilfelli var galdurinn ein-
faldlega sá að við vorum svo heppin að hitta
á sálufélaga. Við stöndum saman, treystum
en við höfum líka alltaf leyft hvort öðru að
blómstra með því að veita svigrúm og frelsi.
Þá er líka svo gaman að deila lífsreynslunni
og því sem maður hefur upplifað þegar mað-
ur kemur heim. Maður hefur alltaf frá ein-
hverju nýju að segja.“
Kristján „Ég er til að mynda að fara í
vikuferð til Sardiníu að leika íslenskan útrás-
arvíking sem á snekkju í kvikmyndinni Von-
arstræti eftir Baldvin Z. Smá ævintýri sem
maður mun geyma með sér og verður eflaust
gaman að hafa upplifað. Og mér hefur þótt
mjög gaman að takast á við ýmis verkefni
hér og þar svo sem ferðalög með Vesturporti
til Síberíu og ýmislegt annað.“
Sirrý „Ég hugsa að það hafi líka hjálpað
að við erum lítið fyrir að flækja hlutina. Við
erum heimakær og gefum okkur alltaf tíma
til að rabba saman um það sem við erum að
hugsa eða lesa en við höfum bæði mikinn
áhuga á bóklestri. Það er þessi samstaða,
vinátta og svo um leið svigrúm, að fá að
njóta sín sem einstaklingur. Við höfum líka
verið svo heppin að hafa getað skapað okkur
atvinnutækifæri sjálf. Við höfum bæði prófað
að vera fastráðin, hann sem leikari og ég
sem fjölmiðlakona, en líka losað okkur undan
slíku og látið vaða. Ég myndi telja að við
værum kraftmikil og dugandi en löt inn á
milli og þá hvílum við okkur vel.“
Kristján „Fyrir utan það náttúrlega að við
eigum tvo stráka og höfum verið að flengjast
með þeim, sá eldri er tvöfaldur Íslandsmeist-
ari í golfi þannig að ég hef eytt helgum í að
draga fyrir hann kerruna í gegnum árin en
hinn er í fótbolta og maður fer með hann á
æfingar og á leiki.“
Sirrý „Við erum svona golf- og fótboltafor-
eldrar.“
Bæði alin upp af
einstæðum mæðrum
Sagan á bak við það hvernig þau hittust er
ekki snúin.
Kristján „Við vorum á balli, sáum hvort
annað og svo endaði það bara með því að ég
þrýsti henni upp að vegg og kyssti hana. Það
var gengið mjög hreint til verks en þetta var
samt ekkert ruddalegt.“
Sirrý „Ég var sex árum yngri og var að
klára menntaskólann. Hann var leikari í Iðnó
– karl með hatt sem smellti á mig kossi á
dansleik. Ég vissi ekkert hvert okkar leiðir
myndu liggja en ég fann nánast strax að við
áttum rosalega vel saman.“
Þar með er þessari stuttu en ákaflega
hnitmiðuðu sögustund lokið. Sirrý og Krist-
ján eru alin upp af einstæðum mæðrum en
annars er baksvið þeirra ekki um margt líkt.
Afar þeirra beggja tóku þátt í Gúttó-
slagnum, afi Sirrýjar var hluti af verkalýðn-
um en afi Kristján stóð vörð um valdastétt-
ina. Eða þannig lagað, hann var læknir og í
bæjarstjórn.
Kristján „Svona hljómar þetta að minnsta
kosti skemmtilega en afi minn var orðinn
aldraður á þessum tíma og tók son sinn, sem
er faðir minn, með sér í þennan slag. Þeim
feðgum var hálfpartinn forðað undan áður en
öll þessi læti hófust.“
Sirrý „Ég er af
heldur róttækara fólki
en Kristján en hann er
ættaður úr KR-Vestur-
bæjaríhaldinu. Við
mamma vorum á leigu-
markaðinum, bjuggum
víða og ég þurfti
nokkrum sinnum að
skipta um skóla. Ég
man að þegar ég var
yngri vorkenndi ég
stundum sjálfri mér að
þurfa að flytja svona
oft og aðlagast upp á
nýtt. En þetta varð mér allt að gulli í lífinu
seinna meir og er reynsla sem hefur nýst
mér ótrúlega vel í starfi.“
Kristján „Ég bjó reyndar bæði hjá
mömmu og ömmu og bræðrum. Svo kom
móðurbróðir minn í heimsókn á hverjum
degi þannig að ég ólst nú upp við tiltölulega
hefðbundið fjölskyldulíf og fékk borgaralegt
uppeldi. En kannski vegna þess að maður
ólst upp hjá einstæðri móður var sterkara í
manni að langa sjálfan að vera í hjónabandi.“
Sirrý „Við erum bæði mikið fjölskyldufólk
og viljum hugsa um okkar börn saman. En
við erum alls ekki eins að upplagi. Til dæmis
kemst Kristján af með fjögurra tíma svefn
og ég vil helst sofa í níu klukkustundir. Ég
er úthverf, mannblendin og opinská. Kristján
er aftur á móti meira innhverfur og rólegur
yfirleitt. Eins og jú svo margir leikarar. En
það er fyndið hvernig strákarnir okkar tveir
hafa erft þessa eiginleika frá foreldrunum.“
Kristján „Sá yngri var snemma farinn að
standa á stól og halda tónleika. Að vísu var
hann alveg harðákveðinn í því að verða ekki
leikari. Eldri strákurinn var miklu meira fyr-
ir rólegheit, dunda sér sjálfur og með vinum
sínum.“
Kristján skipti um kúrs
Það lá fljótt fyrir að Sirrý myndi rata í fjöl-
miðla, hún segist hafa verið orkumikið barn
sem hafi haft mikla þörf fyrir að miðla ein-
hverju. Sirrý hefur mikla og brennandi
ástríðu fyrir því sem hún hefur verið að gera
undanfarin ár.
Sirrý „Ég hef alltaf haft þörf fyrir að
miðla. Ég byrjaði að gefa út blöð þegar ég
var lítil, var alltaf að taka upp viðtöl út um
allt og vinur minn, sem er leikari í dag, fékk
það hlutverk að leika alla viðmælendur. Jú,
það er kannski skondið að þetta hefur hald-
ist svona. Ég hef tekið viðtöl við allar stéttir,
forseta sem og félagsfælið fólk. Það hefur
hjálpað mér mikið í starfinu, fyrirlestrum og
námskeiðum að ég hef alltaf átt auðvelt með
að ná góðu sambandi við fólk og fólk er mitt
helsta áhugamál. Ég er eins og svampur sem
drekkur í sig fróðleik úr öllum áttum. Og ég
vil fá að miðla því sem ég skynja og læri
áfram. Mér finnst svo gaman að tendra
neista hjá fólki, laða fram það besta og
hvetja fólk til að blómstra.“
Kristján „Ég má til með
að skjóta því hér inn að
þar hjálpar eflaust líka að
Sirrý man nöfn þannig að
maður trúir því stundum
ekki. Hún man jafnvel
hvar hún hitti fólkið síðast.
Ég gæti ekki fyrir mitt
litla líf gert þetta. En
þetta sýnir líka hve sam-
skipti eru henni í lófa lag-
in.“
Sirrý „Til að vera
áhugaverður þarftu að
vera áhugasamur. Mér
finnst svona hlutir skipta
máli; að ég kynni mig og læri nafnið þitt og
hafi áhuga. Ég kenni fólki ræðumennsku og
örugga tjáningu í Háskólanum á Bifröst.
Maður horfir á hvern glæsilega einstakling-
inn á fætur öðrum standa upp og halda tölu
og þarna sem og oft við svona aðstæður
kemur það manni á óvart hve margir halda
að sviðsskrekkurinn sjáist á þeim og að
frammistaðan hafi ekki verið nógu góð. Ég
man eftir framkvæmdastjóra sem var í
einkakennslu hjá mér. Ég fór og fylgdist
með honum halda fyrirlestur einu sinni og
dáðist að þessari miklu útgeislun sem hann
hafði. Hann var hins vegar viss um að hann
hefði ekki staðið sig, ekki verið nógu góður.
Við dæmum okkur sjálf svo hart og mér
finnst það ekki nóg gott. Þetta stafar meðal
annars af æfingarleysi. Það er til fólk, sem
er að fara að kynna mastersverkefnið sitt og
er andvaka í margar nætur af því að það
hefur aldrei áður í skólakerfinu þurft að
standa upp og setja mál sitt fram í ræðu.“
Kristján „Til samanburðar má nefna að
meðan krakkar í skólakerfinu hér heima eru
teknir upp og þeim hlýtt yfir eru börn í
Bandaríkjunum kölluð upp og látin ræða við-
fangsefnið við bekkjarfélagana.“
Sirrý „Sviðsskrekkur er bara hræðsla við
það hvernig þér verður tekið og það eru til
alls konar ráð til að takast á við hann.“
Kristján hefur ekki verið jafnáberandi í
leikhúsinu undanfarið og hann var. Hann
segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun.
Kristján „Ég skipti alveg um kúrs fyrir
fimm árum og fór að vinna hjá trygginga-
Úthverf Sirrý
og hlédrægur Kristján
HJÓNIN SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR, SIRRÝ, OG KRISTJÁN FRANKLÍN MAGNÚS HAFA EINATT FARIÐ EIGIN LEIÐIR
OG VERIÐ ÓHRÆDD VIÐ AÐ GEFA HVORT ÖÐRU FRELSI TIL AÐ GERA ÞAÐ SEM ÞAU HAFA HUG Á.
SIRRÝ ER NÝBÚIN AÐ GEFA ÚT BÓK UM BETRI SAMSKIPTI EN KRISTJÁN ER AÐ FARA AÐ LEIKA ÚTRÁSARVÍKING
Á SNEKKJU Í NÝRRI ÍSLENSKRI KVIKMYND.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
„Hver og einn verður að finna
sína leið. Maður á einfaldlega að
vera vel undir það búinn þegar
hamingjan kemur og taka henni
opnum örmum,“ segir Kristján
Franklín Magnús.
* „Mér finnst ekkert unnið meðþví að segja fólki að
það eigi að vera eins
og ég eða við. Mér
leiðast predikanir ákaf-
lega og reyni að tala
aldrei þannig til fólks.“
Viðtal