Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
F
æturnir eru kannski ekki jafn kvikir og áð-
ur, hann spilar ekki alla leiki og allar mín-
útur í búningi Chelsea en Frank Lampard
veit svo sannarlega hvar markið er. Um
síðustu helgi skoraði hann sitt 200. mark í
búningi Chelsea, merkilegt nokk á Upton Park, sín-
um gamla heimavelli.
Stuðningsmenn West Ham hafa aldrei tekið honum
opnum örmum. Ekki einu sinni þegar hann var hjá
félaginu. Þá var hann kallaður feitur, hann vill meina
að einhverjir hafi hlegið þegar hann fótbrotnaði í
unglingaleik og margir vildu ekkert að hann væri í
liðinu. Frændi hans og þáverandi stjóri Harry Redk-
napp þurfti að sitja við hliðina á honum á blaða-
mannafundi og verja liðsvalið sitt. Lampard hefur
heldur aldrei farið leynt með andúð sína á sínu
gamla félagi. Í ævisögunni sinni sagðist hann brosa í
hvert sinn sem hann sæi að West Ham hefði tapað.
„Núna leita ég ekki einu sinni að úrslitunum þeirra,“
bætti hann við og slíkum ummælum gleyma stuðn-
ingsmenn West Ham seint eða jafnvel aldrei.
Frá því hann fór frá Upton Park, eða Boylen Gro-
und eins og völlurinn heitir í raun og veru, hefur
West Ham fallið tvisvar. Á meðan hefur Lampard
vaxið og dafnað og var um tíma einn allra besti
miðjumaður heimsins. Hann spilaði sinn 95. landsleik
í gær, hefur unnið deildina þrisvar, FA-bikarinn fjór-
um sinnum og var fyrirliði Chelsea sem lyfti Meist-
aradeildarbikarnum í fyrra. Það getur enginn sagt að
það hafi verið vitlaus ákvörðun að fara frá uppeldis-
félaginu.
Rauður djöfull næsta tímabil?
Lampard er fæddur 1978 og er kominn á síðari hluta
ferils síns. Meira að segja vill eigandi Chelsea, Rom-
an Abramovich, meina að ferill hans sé búinn og
neitar að semja aftur við þennan meistara. Það þarf
allavega margt að gerast til að Lampard verði í
Chelsea-treyjunni á næsta tímabili. Hins vegar berast
þau tíðindi að sjálfur Sir Alex Ferguson sjái nokkur
nothæf ár í Lampard og hver veit nema hann verði
djöfull í rauðu á næsta tímabili.
Lampard hóf feril sinn hjá West Ham þar sem
hann sýndi lipur tilþrif. Þótti svolítið bústinn og hef-
ur gælunafnið Fat Frank eða feiti Frank loðað við
hann. Eftir að faðir hans, Frank Lampard eldri og
Harry Redknapp, voru reknir var ljóst að hann
myndi yfirgefa uppeldisstöðvarnar. Hann var keyptur
af Ítalanum Claudio Ranieri og Chelsea árið 2001 og
borgaði félagið 11 milljónir punda fyrir þjónustu
Lampards. Félagið hafði betur í kapphlaupi við Aston
Villa sem einnig bauð gull og græna skóga. Ekki
voru allir innan Chelsea sáttir við kaupverðið enda
hafði Lampard einungis verið talinn efnilegur en ekki
góður. En hann hefur endurgreitt þetta kaupverð oft-
ar en einu sinni og oftar en tvisvar með mörkum sín-
um og stoðsendingum.
Lampard gekk í einkaskólann Brentwood þar sem
hann fékk meðal annars A í latínu. Faðir hans spilaði
með West Ham og þótti góður vinstri bakvörður.
Lék með númer þrjú á bakinu alls 551 sinni fyrir
West Ham. Móðir hans, Pat, lést árið 2008 en þau
voru mjög náin. Sex dögum eftir andlát hennar skor-
aði Lampard gegn Liverpool úr vítaspyrnu og fögn-
uðurinn var einlægur þar sem hann brast í grát við
hornfánann. Þetta var ekki hans fallegasta mark en
eitt af þeim sem standa upp úr.
152 af 200 í fyrstu snertingu
Lampard hefur alltaf skorað mikið af miðjumanni að
vera og yfirleitt skorar hann í fyrstu snertingu.
Þannig hafa 152 mörk af 200 eða 76% af Chelsea-
mörkum hans komið í fyrstu snertingu sem er ótrú-
leg tölfræði. Ekki er til tölfræði yfir mörk sem hafa
farið í andstæðing á leiðinni í netið en þau eru mörg.
Lífið hefur þó ekki bara verið dans á rósum hjá
Lampard. Kynlífsskandall, skilnaður og drykkjulæti
eftir 11. september hafa komið honum í fréttirnar á
allt öðrum stað en á íþróttasíðunum. Um aldamótin
fóru þeir Lampard, Kieron Dyer og Rio Ferdinand
til Kýpur að slaka á og njóta lífsins eftir að hafa
misst af EM þetta sama ár. Þar tóku þeir upp kyn-
mök við innfædda konu á vídeó sem komst að sjálf-
sögðu í hendurnar á bresku pressunni sem gerði
mikið úr málinu. Þann fræga dag, 11. september,
voru Chelsea-leikmenn á Heathrow-flugvellinum og
drukku ótæpilega. Gerðu þar mikið grín að Banda-
ríkjamönnum og þeirra harmi. Eitthvað sem sló ekki
í gegn hjá heimspressunni. Þá skildi hann við barns-
móður sína, Elen Rivas, árið 2008. Fékk hún 12,5
milljónir punda við skilnaðinn. Hann er nú trúlofaður
sjónvarpskonunni Christine Bleakley sem væntanlega
mun fylgja honum hvar sem hann endar næsta tíma-
bil.
AFP
Nýi tíminn. Lampard um-
kringdur mönnum sem eiga
að taka við. Eden Hazard og
Juan Mata.
AFP
Mörkin tala sínu máli
FRANK LAMPARD SKORAÐI MARK NÚMER 200 Í BÚNINGI CHELSEA UM SÍÐUSTU HELGI.
HANN ER Í DÝRLINGATÖLU HJÁ STUÐNINGSMÖNNUM LIÐSINS EN SAMT VILL EIGAND-
INN EKKI SJÁ HANN Á NÆSTA TÍMABILI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Ferill Lampard
með Chelsea
Ár Leikir Mörk Stoðsendingar
2001–02 53 7 0
2002–03 48 8 2
2003–04 58 15 7
2004–05 58 19 19
2005–06 50 20 10
2006–07 62 21 16
2007–08 40 20 13
2008–09 57 20 19
2009–10 51 27 17
2010–11 32 13 5
2011–12 49 16 10
2012–13 37 14 2
Alls 595 200 114
Lampard skoraði
mark númer 200
með skalla.
„Við ættum að leggja treyju númer 8 til hliðar til heiðurs Frank
Lampard.“
John Terry, félagi hans hjá Chelsea og einn besti vinur.
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is