Morgunblaðið - 06.04.2013, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2013
4.900
5.300
6.600
6.500
6.4006.600
8.500
7.950
12.000
950
7.300
Gjafir sem gleðja
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Faxafeni 5, Reykjavík | Sími 588 8477
Skeiði 1, Ísafirði | Sími 456 4566
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.isLeggur grunn að góðum degiwww.betrabak.is
ÞÍN STUND – ÞINN STAÐUR
PRIME
Hægindastóll fullt verð 299.990
Skemill fullt verð 79.990
Til í mörgum útfærslum
F
Y
R
IR
ÞÍ
NA
R BESTU STU
N
D
IR
10%
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
um. Þær reka með jökunum og þegar
þeir bráðna fljóta þær í hafinu og
senda upplýsingar um staðsetningu
og fleira.
Ingibjörg sagði að öll vinnubrögð
leiðangursmanna hefðu verið mjög
góð og í takti við það sem hún þekkti
úr öðrum leiðöngrum við söfnun sýna
og mælingar.
Hvítabirnirnir forðuðu sér
Tveir vopnaðir fylgdarmenn voru
alltaf með í för þegar farið var út á ís-
inn, ef hvítabirnir gerðust nærgöng-
ulir. Aldrei reyndi á það.
Tveir hvítabirnir sáust frá skipinu
og spor eftir mun fleiri birni þegar
leið á ferðina. Birnirnir sem sáust frá
skipinu áttu það báðir sameiginlegt
að vera að gæða sér á nýveiddum sel-
um. Í kringum þá vomuðu máfar eftir
molum af gnægtaborði bjarnanna.
Annar björninn gerði sér lítið fyrir
og tók selinn í hvoftinn og synti burt
með bráðina þegar skipið nálgaðist.
Ný spor sem sáust í snjóföli og krapi
bentu til þess að birnirnir hefðu forð-
að sér þegar þeir urðu varir við skip-
ið. Ingibjörg sagði að spor hafi líka
sést oft á stökum jökum sem bendir
til þess að þar hafi birnirnir áð á
sundi sínu.
Mikilvægur árangur
Snædrekinn lagðist að bryggju í
Sjanghæ 27. september 2012 eftir að
hafa siglt 18.500 sjómílur (34.262 km)
á sex vikum. Skipinu og áhöfn þess
var tekið með mikilli viðhöfn. Áhöfn-
in klæddist hvítum hátíðarbúningum
og rannsóknarfólkið klæddist einnig
einkennisbúningum. Skólabörn
færðu hverjum og einum um borð
blóm og blævængi.
Ingibjörg sagði að í ferðinni hefði
verið mælt magn loftmengunar, það
er ýmissa efna sem sest hafa á ísinn
úr andrúmsloftinu. Einnig ástand
hafíssins, þykkt hans og ýmsir aðrir
eiginleikar. Þá fengust mjög mik-
ilvægar mæliniðurstöður um geislun
úr geimnum og endurkast hennar frá
hafísnum. Þær er m.a. hægt að bera
saman við fjarkönnunargögn frá
gervihnöttum og mun hjálpa við að
bæta túlkun slíkra gagna. Það er
gríðarlega mikilvægt, að mati Ingi-
bjargar. Enn er verið að vinna úr
gögnum sem safnað var og skrifa
fræðigreinar á grunni þeirra.
Annar mikilvægur árangur er
samstarfið við Kínversku pólstofn-
unina og fleiri stofnanir. Ingibjörg
nefndi að ný gervitungl hefðu verið
nýkomin í gagnið og niðurstöðurnar
hefðu stuðlað að góðu samstarfi við
ýmsa sem stunda fjarkönnun.
„Það var mikilvægt fyrir mig per-
sónulega að fara á staðinn og fá til-
finningu fyrir ástandinu. Maður get-
ur lesið sér til um alla hluti og kynnt
sér það sem aðrir hafa gert. En það
kemur ekkert í staðinn fyrir að fara á
staðinn. Við það að sjá ferlin í gangi
vakna einnig margar rannsóknar-
spurningar,“ sagði Ingibjörg. Hún
hefur áður farið í hafísleiðangra um
Grænlandshaf og þótti mikilvægt að
geta farið um þennan hluta Norður-
Íshafsins.
eraldar
Ljósmynd/Ingibjörg Jónsdóttir
Hvítabjörn Tveir hvítabirnir sáust frá Snædrekanum og voru báðir að éta
sel. Mikið sást af sporum eftir birni og virtust þeir hafa forðast skipið.
Ljósmynd/Ingibjörg Jónsdóttir
Vísindamenn Ingibjörg Jónsdóttir hafísfræðingur er þriðja frá vinstri í
hópi kínverskra vísindamanna sem fóru með Snædrekanum yfir Norður-
Íshafið. Aðeins tvö af 119 leiðangursmönnum töluðu ekki kínversku.
Pólrannsóknastofnun Kína á ís-
brjótinn og rannsóknaskipið
Snædrekann (Xue Long).
Skipið er stærsti ísbrjótur í
heimi sem er ekki knúinn kjarn-
orku. Það var smíðað í Úkraínu
sem sérstyrkt flutningaskip til
siglinga í ís árið 1993. Skipið
getur brotið 1,1 metra þykkan
ís. Nú er skipið notað sem fljót-
andi rannsóknastofa til rann-
sókna á pólsvæðunum.
Kínverjar vinna nú að smíði
nýs ísbrjóts sem taka á í notkun
á næsta ári.
Snædrekinn
KÍNVERSKUR ÍSBRJÓTUR
OG RANNSÓKNARSKIP
Ljósmynd/Rannís
Norður-Íshaf Fyrsta kínverska skip-
ið sem sigldi norðurleiðina.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/