Morgunblaðið - 06.04.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.04.2013, Blaðsíða 15
Framleiðsla, útflutningur og efnahagur Hjá Fjarðaáli eru að jafnaði framleidd árlega rúmlega 340.000 tonn af hreinu gæðaáli og álblöndum. Álið er notað í byggingariðnaði og samgönguiðnaði, svo sem við framleiðslu á bílum, flugvélum, járn- brautalestum og geimferjum. Fjarðaál framleiðir einnig álvíra sem eru m.a. notaðir í ýmsar gerðir háspennustrengja. Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 99milljarða króna á árinu. Það sam- svarar rúmum 8 milljörðum króna að meðaltali í hverjum mánuði – rúmlega 271 milljón króna á hverjum einasta degi árið um kring. Af útflutningstekjum Fjarðaáls urðu um 38% eftir í landinu, eða um 38 milljarðar króna, m.a. í formi opinberra gjalda, launa, innkaupa frá innlendum birgjum á vöru og þjónustu auk samfélagsstyrkja. Fjarðaál keypti vöru og þjónustu innanlands fyrir rúma 14 millj- arða króna árið 2012 og eru raforkukaup þá undanskilin. Fjöldi inn- lendra birgja er á þriðja hundrað og greiddi fyrirtækið um tuttugu þúsund reikninga á árinu. Fjarðaál hefur frá því að álframleiðsla hófst árið 2007 varið tæpum 12 milljörðum króna til fjárfestinga vegna starfseminnar, þar af um 2,7 milljörðum árið 2012. Starfsmenn Starfsmenn Fjarðaáls eru 483, þar af eru konur rúmlega 20%. Um 92% starfsmanna eru íslenskir ríkisborgarar. Um 91 prósent starfsmanna eiga lögheimili í nærliggjandi byggð- arlögum. Í Fjarðabyggð búa 57% og 28% á Fljótsdalshéraði. Um 5% hafa lögheimili á höfuðborgarsvæðinu og 10% annars staðar. Auk starfsmanna Fjarðaáls vinna rúmlega 460 manns á vegum ann- arra fyrirtækja í álverinu eða á álverssvæðinu. Fjarðaál greiddi 5,0 milljarða króna í laun og launatengd gjöld árið 2012. Meðallaun voru um 8 milljónir króna. Samfélag Íbúum Mið-Austurlands hefur fjölgað um 12% frá því að fram- kvæmdir hófust við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers Alcoa við Reyðarfjörð. Þeir voru 8025 í lok árs 2002 og 8999 í lok árs 2012. Á árinu 2012 greiddi Fjarðaál 1,2 milljarða króna í opinber gjöld til ríkisins og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Starfsfólk Fjarðaáls greiddi á árinu um 1,3 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar til ríkis og sveitarfélaga. Alcoa og Alcoa Foundation vörðu um 130 milljónum króna hér á landi til samfélagsstyrkja á árinu 2012. Frá árinu 2003 hefur rúm- lega 800 milljónum króna verið varið til stuðnings ýmsum sam- félagsmálum í landinu, aðallega á Austurlandi. Starfsemi Alcoa Fjarðaáls 2012 Alcoa Fjarðaál Tekjuskattur og annað framlag Fjarðaál tók sem fyrirtæki til starfa árið 2003. Þá voru fyrstu starfsmenn ráðnir. Þrjú ár tók að byggja álverið, byggingar- kostnaður nam um 220 milljörðum króna. Álframleiðsla hófst í apríl 2007 en mörg ár tekur að ná fullum afköstum í framleiðsl- unni. Það eru þekktar aðstæður í rekstri fyrirtækja með miklar nýfjárfestingar að uppsafnað tap, háar afskriftir og háar afborganir af lánum valda því að ekki er greiddur tekjuskattur fyrstu rekstrarárin. Tekjuskattur er eingöngu einn liður í framlagi fyrirtækisins til þjóðarbúsins. Innlendur kostnaður Alcoa Fjarðaáls nam 38 milljörðum króna á árinu 2012 og stóð fyrirtækið fyrir um 10% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.