Morgunblaðið - 06.04.2013, Side 15
Framleiðsla, útflutningur og efnahagur
Hjá Fjarðaáli eru að jafnaði framleidd árlega rúmlega 340.000 tonn
af hreinu gæðaáli og álblöndum. Álið er notað í byggingariðnaði og
samgönguiðnaði, svo sem við framleiðslu á bílum, flugvélum, járn-
brautalestum og geimferjum. Fjarðaál framleiðir einnig álvíra sem
eru m.a. notaðir í ýmsar gerðir háspennustrengja.
Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 99milljarða króna á árinu. Það sam-
svarar rúmum 8 milljörðum króna að meðaltali í hverjum mánuði
– rúmlega 271 milljón króna á hverjum einasta degi árið um kring.
Af útflutningstekjum Fjarðaáls urðu um 38% eftir í landinu, eða um
38 milljarðar króna, m.a. í formi opinberra gjalda, launa, innkaupa
frá innlendum birgjum á vöru og þjónustu auk samfélagsstyrkja.
Fjarðaál keypti vöru og þjónustu innanlands fyrir rúma 14 millj-
arða króna árið 2012 og eru raforkukaup þá undanskilin. Fjöldi inn-
lendra birgja er á þriðja hundrað og greiddi fyrirtækið um tuttugu
þúsund reikninga á árinu.
Fjarðaál hefur frá því að álframleiðsla hófst árið 2007 varið tæpum
12 milljörðum króna til fjárfestinga vegna starfseminnar, þar af um
2,7 milljörðum árið 2012.
Starfsmenn
Starfsmenn Fjarðaáls eru 483, þar af eru konur rúmlega 20%. Um
92% starfsmanna eru íslenskir ríkisborgarar.
Um 91 prósent starfsmanna eiga lögheimili í nærliggjandi byggð-
arlögum. Í Fjarðabyggð búa 57% og 28% á Fljótsdalshéraði. Um 5%
hafa lögheimili á höfuðborgarsvæðinu og 10% annars staðar.
Auk starfsmanna Fjarðaáls vinna rúmlega 460 manns á vegum ann-
arra fyrirtækja í álverinu eða á álverssvæðinu.
Fjarðaál greiddi 5,0 milljarða króna í laun og launatengd gjöld árið
2012. Meðallaun voru um 8 milljónir króna.
Samfélag
Íbúum Mið-Austurlands hefur fjölgað um 12% frá því að fram-
kvæmdir hófust við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers Alcoa
við Reyðarfjörð. Þeir voru 8025 í lok árs 2002 og 8999 í lok árs
2012.
Á árinu 2012 greiddi Fjarðaál 1,2 milljarða króna í opinber gjöld
til ríkisins og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Starfsfólk Fjarðaáls
greiddi á árinu um 1,3 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar til ríkis
og sveitarfélaga.
Alcoa og Alcoa Foundation vörðu um 130 milljónum króna hér á
landi til samfélagsstyrkja á árinu 2012. Frá árinu 2003 hefur rúm-
lega 800 milljónum króna verið varið til stuðnings ýmsum sam-
félagsmálum í landinu, aðallega á Austurlandi.
Starfsemi Alcoa Fjarðaáls 2012
Alcoa Fjarðaál
Tekjuskattur og annað framlag
Fjarðaál tók sem fyrirtæki til starfa árið 2003. Þá voru fyrstu
starfsmenn ráðnir. Þrjú ár tók að byggja álverið, byggingar-
kostnaður nam um 220 milljörðum króna. Álframleiðsla hófst í
apríl 2007 en mörg ár tekur að ná fullum afköstum í framleiðsl-
unni. Það eru þekktar aðstæður í rekstri fyrirtækja með miklar
nýfjárfestingar að uppsafnað tap, háar afskriftir og háar
afborganir af lánum valda því að ekki er greiddur tekjuskattur
fyrstu rekstrarárin.
Tekjuskattur er eingöngu einn liður í framlagi fyrirtækisins til
þjóðarbúsins. Innlendur kostnaður Alcoa Fjarðaáls nam 38
milljörðum króna á árinu 2012 og stóð fyrirtækið fyrir um 10% af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar.