Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 12
Úttekt 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013 D ómari sem dæmir knattspyrnuleik í efstu deild kvenna fær innan við 40% af þeirri greiðslu sem hann fær ef hann dæmir leik sem karlar spila í efstu deild. Í öllum boltaíþróttum er ákveðinn tröppu- gangur þegar kemur að greiðslum dómara á leik og minna greitt fyrir að dæma leiki í neðri deildum en þeim efri. Ólíkt er eftir íþróttagrein- um hversu miklu munar á því hvað dómari fær greitt. Ekki eru allir á einu máli um hvað skiptir máli þegar kemur að ákvörðun launagreiðslna. Dómarar sem rætt var við vegna úttektarinnar vilja fáir koma fram undir nafni. Dómari sem rætt var við telur hárrétt að vera með ólíkar greiðslur eftir því hve erfitt er að dæma leikina. „Það á að vera mun- ur. Það á að vera eftirsóknarvert að dæma í efstu deild karla. Dómari á að þurfa að leggja helling á sig til að komast þangað. Og hann á að fá umbun fyrir að standa sig og gera vel. Dómarar mæta ekkert með bumbuna út í loftið.“ Annar telur að það eigi að vera „gulrót“ að dæma í efstu deild karla. „Ef allir fengju sama pening þá væru allir tilbúnir að dæma í Pepsi-deild kvenna. Dæma fimm aukaspyrnur í leik og slaka á,“ segir dómari sem ekki vill láta nafns síns getið. Fleiri spjöld og meiri hraði þýða hærri greiðslur Þórir Hákonarson framkvæmda- stjóri KSÍ telur mikilvægt að fram komi að hjá KSÍ sé algjört launa- jafnrétti, engu skipti hvers kyns dómarinn sé þegar kemur að greiðslum. „Karlar og konur frá sömu greiðslu fyrir að sinna sama verkefni. Erfiðleikastig leikjanna er hins vegar misjafnt eftir því í hvaða deild þeir eru leiknir,“ segir Þórir. Hann leggur áherslu á að ekki eigi að ræða málið aðeins út frá kynjasjónarmiði og bendir á að greiðslur til dómara séu líka ólíkar eftir því í hvaða deild er spilað, óháð kyni leikmanna. „Ef við tökum bara karlaknattspyrnuna þá er það bara þannig að það er erfiðara að dæma í efstu deildinni heldur en neðri deild- um. Það kemur konum og körlum ekkert við,“ segir Þórir og bendir á að tröppugangur í greiðslum til dómara eftir erfiðleikastigi leikja sé ekki einskorðaður við Ísland. Mun- urinn sé síst minni annars staðar. „Það er ekkert bara á Íslandi, heldur er það alls staðar þannig að erfiðustu leikirnir eru í efstu deild karla. Fleiri spjöld, fleiri aukaspyrn- ur, hraðari leikur og álag á dómara meira. Þannig er það líka annars GREIÐSLUR TIL DÓMARA Í EFSTU DEILDUM BOLTAÍÞRÓTTA Ljósmynd/Eva Björk Birna H. Bergstað Þórmundsdóttir Þórir Hákonarson Halla Gunnarsdóttir LAUN KNATTSPYRNUDÓMARA HAFA VERIÐ TIL UMRÆÐU EFTIR AÐ SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS VARPAÐI LJÓSI Á MUN Á GREIÐSLUM Í EFSTU DEILD KARLA OG KVENNA. KSÍ TELUR MESTU SKIPTA AÐ GREIÐA SÖMU LAUN FYRIR SÖMU VINNU. KVENDÓMARI VILL JAFNAR GREIÐSLUR OG FYRRVERANDI ÞJÁLFARI LEGGUR TIL AÐ KONUR FÁI MEIRA GREITT Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Þorkell Máni Pétursson Efsta deild kvenna: 15.400 kr. Efsta deild karla: 39.450 kr. Greiðslur til dómara á leik í efstu deild Efsta deild kvenna: 13.100 kr. Efsta deild karla: 16.000 kr. Efsta deild kvenna: 15.900 kr. Efsta deild karla: 15.900 kr. Laun Undirbúningur Akstursgjald 10.300 2.800 13.200 2.800 11.200 1.000 3.200 27.250 9.000 3.200 HSÍ = 0% KKÍ = 28% KSÍ = 156% HÆRRI GREIÐSLA FYRIR KARLALEIK EN KVENNALEIK Aðaldómari í Pepsi-deild karla fær um 40 þúsund krónur á leik í deildinni (miðað við að leikurinn sé á höfuðborgarsvæðinu). Þá er lögð saman launatala 27.250 krónur, föst 9.000 króna greiðsla vegna und- irbúnings og akstursgjald innanbæjar 3.200 krónur. Að- aldómari í Pepsi-deild kvenna fær 15.400 krónur í laun, 3.200 krónur í akstursgjald og 1.000 krónur vegna undirbúnings. KSÍ ber allan kostnað vegna dómgæslu en þannig er það ekki hjá KKÍ og HSÍ. Hjá HSÍ eru greiddar 15.900 krónur vegna dóm- gæslu í úrvaldsdeild, óháð því hvers kyns leikmenn eru. Af þeirri upphæð greiða félögin sjálf 14.700 krónur en HSÍ greiðir 1.200 krónur. Félögin í körfuboltanum greiða sjálf kostnað vegna dómgæslu en tekið skal fram að hjá KKÍ eru fleiri gjald- flokkar fyrir dómgæslu en hjá hinum samböndunum. Á myndinni er miðað við greiðslu fyrir dómgæslu á venjulegum leik í Dominos-deild karla og kvenna en eins og sjá má er greitt 28% meira ef karlar leika. Dómari sem dæmir leik í úrslitakeppni, undanúrslitum eða bikarúrslitum fær hærri greiðslu hjá öllum félögun- um, þ.e. gjaldskráin hækkar eftir mikilvægi leikja. Í efstu deildum í körfuknattleik frá dómarar greitt samkvæmt gjaldskrá Körfuknattleikssambandsins sem er unnin í samstarfi við félag dómara, KKDÍ. „Gjaldskráin er ákveðin eftir erfiðleikastuðli sem dómarar og félögin leggja upp með. Félögin bera allan dóm- arakostnað nema við erum með jöfnunarsjóð sem við sjáum um. Í lokin borga þau allt jafnt,“ segir Hannes Sigurbjörn Jónsson, fram- kvæmdastjóri KKÍ. Þar sem margir dómarar séu búsettir í Reykja- vík leggi höfuðborgarliðin minna út, eða aðeins fyrir dóm- aralaunum. Hann segir félög úti á landi greiða meira vegna ferða og uppihalds dómara en eigi á móti inneign í sjóðnum sem greitt er úr tvisvar á ári. Gjaldskrá unnin í samvinnu við dómara HANNES SIGURBJÖRN JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KKÍ „Þetta er bara jafnt hjá okkur. Það skiptir ekki máli hvort það eru leikir í N1 deild karla eða N1 deild kvenna. Það er sama gjald í verðlaunfé í öllu og sömu greiðslur til dómara í karla- og kvennadeild og búið að vera þannig í nokkur ár. Það er því al- gjört jafnrétti hjá okkur,“ segir Einar Þorvarðarson framkvæmda- stjóri Handknattleikssambands Íslands, HSÍ. Sama greiðsla fyrir karlaleik og kvennaleik EINAR ÞORVARÐARSON FRAMKVÆMDASTJÓRI HSÍ Skiptir máli hver hleypur hraðast?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.