Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 53
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Á sunnudag klukkan 14
ganga Harpa Þórsdóttir, for-
stöðumaður Hönnunar-
safnsins, og Sigríður Erla
Guðmundsdóttir leirlistakona um
sýninguna „Innlit í Glit“ í safninu.
Spjalla þær um íslenska leirinn og
reynslu Sigríðar af honum.
2
Íslenski dansflokkurinn sýnir
tvö verk í Borgarleikhúsinu
á sunnudagskvöldið, Walk-
ing mad og Óttu. „Verkin
eru nokkuð ólík í eðli sínu en eiga
það sameiginlegt að vera mjög kraft-
mikil, þau reyna á tæknilega færni
dansaranna auk þess sem tjáning
skiptir meginmáli,“ skrifaði rýnir.
4
Kvikmyndahátíðin Reykjavík
Shorts&Docs stendur nú yfir
í Bíó Paradís. Á laugardags-
kvöld er einnig sýnt í portinu
við KEX hostel, m.a. myndir kvenna.
Dögg Mósesdóttir og Helena Stef-
ánsdóttir eru meðal höfundanna.
5
Síðustu sýningar á leikverki
Lab Loka, Hvörfum, verða
í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á
laugardags- og sunnudags-
kvöld. Þetta athyglisverða leikverk
byggist á málsskjölum úr Guð-
mundar- og Geirfinnsmálinu. Það er
sett upp með fantasíuívafi og er
merkilegt innlegg í umræðu um ófull-
komleika rannsókna dómsmála hér á
landi.
3
Grande, einleikur eftir Tyrf-
ing Tyrfingsson, verður
sýndur í Tjarnarbíói á laug-
ardagskvöld. Verkið segir af
móður og syni í Hlíðunum sem eru
að æfa drag-sýningu og er sagt vera
um ödipusduldina.
MÆLT MEÐ
1
Á tónleikum Selkórsins og Sinfóníuhljóm-
sveitar áhugamanna í Seltjarnarneskirkju á
sunnudaginn klukkan 17 verður frumflutt
nýtt tónverk eftir Finn Karlsson, Óravél.
Einnig verður flutt „Pákumessan“ svokallaða
eftir Haydn, eða Missa in tempore belli. Ein-
söngvarar í messunni eru Hlín Pétursdóttir
Behrens, Sesselja Kristjánsdóttir, Egill Árni
Pálsson og Ágúst Ólafsson. Stjórnandi er
Oliver Kentish. Tónleikarnir eru haldnir í
Seltjarnarneskirkju og hefjast klukkan 17.
„Þetta er samstarfsverkefni kórs og hljóm-
sveitar,“ segir Oliver. „Í fyrra fluttum við
stutt verk eftir Brahms og okkur datt síðan í
hug að vinna með stærra verk á veglegum
tónleikum. Kór og hljómsveit slógu til.“
Hann segir messuna vera um 45 mínútur í
flutningi, nokkuð snúið verk í hefðbundnu
messuformi. „Haydn samdi margar messur
og þetta er ein sú best þekkta, frekar stórt
verk fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit.
Það heyrist að Beethoven hefur örugglega
haft það til hliðsjónar þegar hann samdi
Missa Solemnis. Maður undrast oft hvað
Haydn var langt á undan sinni samtíð,“ segir
hann.
Hljómsveitin pantaði þetta nýja verk, Óra-
vél, af Finni. Oliver segir þau í tvígang áður
hafa pantað ný verk, af Þórði Magnússyni og
Jónasi Tómassyni. „Finnur var að útskrifast
úr Listaháskólanum og þegar ég spurði
hvort hann gæti hugsað sér að semja fyrir
okkur var hann fljótur að segja já.
Þetta eru þriðju tónleikarnir í röð sem við
frumflytjum tónverk og við viljum halda því
áfram, og þá jafnvel í samstarfi við tón-
smíðadeild LHÍ.“
Oliver segir ganga ágætlega að manna
stöður hljómsveitarinnar, sem sé ekki full-
skipuð sinfóníuhljómsveit heldur frekar svo-
kölluð sinfóníetta. Einu atvinumennirnir sem
þau fá til liðs við sig eru tveir slagverksleik-
arar sem leika með í verki Finns.
SELKÓRINN OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÁHUGAMANNA SAMAN Á TÓNLEIKUM
Óravél og Pákumessa
NÝTT ÍSLENSKT TÓNVERK OG
KUNN MESSA HAYDNS VERÐA
FLUTT Á TÓNLEIKUM Í SELTJARNAR-
NESKIRKJU Á SUNNUDAG.
„Þetta er samstarfsverkefni kórs og hljómsveitar,“ segir Oliver Kentish stjórnandi. Hér má sjá Sel-
kórinn og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna á æfingu ásamt einsöngvurum.
Morgunblaðið/Kristinn
tekst eitthvað í þá veru, stundum ekki, en
það er gott fyrir fólk að vera vitandi um það
að þegar það talar þá er það að búa til tón-
list, því að tungumálið hefur allt. Ákveðið
raddsvið og ryþma. Mér hefur þótt gaman
að reyna að vinna með það. Að einhverju
marki hefur það tekist, þegar maður rembist
eins og rjúpan …“ Hann brosir.
„Það er gaman að hlusta á tal manna sem
tónlist. Ef maður er staddur þar sem fólk er
að tala saman í kringum mann, skýtur setn-
ingum á víxl og maður heyrir það úr öllum
áttum, þá er eins og maður sé staddur í tón-
leikasal; þessi eðlilegi ryþmi kemur saman
sem músík. Þetta er hljóðskúlptúr sem verð-
ur aldrei endurtekinn og er síbreytilegur.“
Til að upplifa þennan skúlptúr þarf maður
að vera opinn fyrir heiminum. Vakandi.
„Já, maður er þátttakandi í að búa til
þessa risasinfóníu. Sem er ótrúlega skemmti-
legt.“
Hvernig getur lata fólkið skilið þetta?
Magnús hlær og segir síðan: „Þetta síast
einhvern veginn inn.“
„Í minni framkvæmd á list síðustu
áratugi þá hef ég verið mikill aðdáandi
listglingurs, kits, og hef reynt að
brjóta upp það sem ég vil kalla stranga
trú á listina,“ segir Magnús Pálsson.
Morgunblaðið/Einar Falur