Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013
Menning
É
g flutti hingað þegar ég komst
inn í Central St. Martins-lista-
háskólann fyrir næstum sex ár-
um. Þar stundaði ég BA-nám í
„Moving Image“ og var svo
heppin að fá vinnu með náminu hjá kvik-
myndafyrirtæki Ridleys Scotts, RSA Films.
Það var í raun betri skóli fyrir mig. En ég
hætti þar fyrir um ári til að einbeita mér
að mínum eigin leikstjóraferli,“ segir Þóra,
og hana hefur ekki skort verkefnin.
Gerði tónlistarmyndband
fyrir Þórunni Antoníu
Hún gerði tvö tónlistarmyndbönd á Íslandi
á síðasta ári, fyrir Samaris og Þórunni Ant-
oníu, og stefnir að því að vinna frekar við
gerð tónlistarmyndbanda en hún er einnig
byrjuð að vinna að handriti að kvikmynd í
fullri lengd.
Þóra býr í austurhluta Lundúnaborgar og
er með vinnuaðstöðu þar. „Í þessum borg-
arhluta er blanda af innflytjendum, óþekk-
um unglingum í gengjum og nútíma hipst-
erum sem eru allir rosa „töff“ og vinna
„freelance“ í nánast hverju sem er.“ Þar er
einnig blómabúðin sem er fyrirmynd sögu-
sviðs Sub Rosa (Undir rós). „Hugmyndin er
sprottin frá alvörublómabúð sem er opin all-
an sólarhringinn í frekar skuggalegu hverfi
í Austur-London. Ég átti samræður við
handritshöfundinn Snjólaugu Lúðvíksdóttur
og framleiðsluhönnuðinn Júlíönu Láru
Steingrímsdóttur fyrir um tveimur árum og
þá spruttu fram samsæriskenningar um
hvað væri að gerast á bak við tjöldin í búð-
inni. Við vissum um leið að við værum með
eitthvert gott efni í höndunum og ákváðum
að sækja um fjármögnun til að gera mynd-
ina sem best úr garði.“
Meðal þess sem Þóra og tökuliðið lögðu
mikla vinnu í var að afmá öll ummerki um
stað og stund. „Þó að Sub Rosa sé tekin
upp í þessum borgarhluta vildum við hafa
hana alveg tímalausa þannig að áhorfandinn
nái í raun aldrei að sjá hvar og hvenær
myndin gerist. Það var smáhausverkur
vegna búninga og leikmyndar en tókst vel
að lokum og gefur myndinni ákveðna dul-
úð.“
Leikstýrir aðalleikkonu
Fawlty Towers
Þær stöllur fengu styrk frá Kvikmyndasjóði
Íslands og Evrópu unga fólksins til að gera
myndina. „Þá fengum við Ágúst Jakobsson
kvikmyndatökumann og fleira toppfólk,
bæði Íslendinga og Breta, til liðs við okk-
ur.“
Meðal leikara sem fara með hlutverk í
myndinni er hin virta gamanleikkona Prun-
ella Scales en hún er sennilega þekktust
meðal Íslendinga fyrir hlutverk sitt í
Fawlty Towers, þar sem hún lék á móti
John Cleese.
„Hún fer með hlutverk ömmunnar í
myndinni. Við sendum henni handritið og
hún var mjög spennt fyrir hlutverkinu og
bauð okkur heim til sín til að ræða betur
um myndina. Klukkan var ellefu um morg-
un og hún spurði hvort það væri nokkuð of
snemmt að bjóða okkur upp á vínglas!“
Sub Rosa fjallar um Tildu, átta ára
stelpu. Hún elst upp hjá ömmu sinni sem
rekur blómabúð og Tilda, með barnslega
forvitni að vopni, fer að njósna um kon-
urnar sem starfa í búðinni og kúnnana sem
þangað koma. „Hún gerir sér fljótt grein
fyrir því að ekki er allt sem sýnist og fer
að kynna sér undirheima blómabúðarinnar –
á meðan sjálfsmynd hennar og hegðun mót-
ast. Myndin er nokkurs konar súrrealísk
túlkun á því hvernig ómótaður hugur tekur
sér stundum ranga aðila til fyrirmyndar,“
segir Þóra.
Nú tekur við eftirvinnsla á myndinni,
bæði í London og á Íslandi. „Við stefnum á
að senda Sub Rosa á flottar hátíðir bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum og einnig sýna
hana á Íslandi. Síðan er ég með nokkra
spennandi hluti í gangi hér í London sem
er fullsnemmt að segja frá eins og er,“ seg-
ir Þóra leyndardómsfull. „En í nánustu
framtíð er ég nú bara að fara að koma
heim í smátíma og halda upp á þrítugs-
afmælið mitt með látum!“
Þóra Hilmarsdóttir
hyggst einbeita sér
að leikstjóraferlinum
á næstunni.
STARFAÐI HJÁ KVIKMYNDAFYRIRTÆKI RIDLEYS SCOTTS
Skuggaleg blómabúð
endaði sem stuttmynd
ÞÓRA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDALEIKSTJÓRI HEFUR NÝLOKIÐ VIÐ AÐ LEIKSTÝRA ÞEKKTRI BRESKRI LEIKKONU
Í STUTTMYND UM LEYNDARDÓMSFULLA BLÓMABÚÐ Í AUSTUR-LONDON.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com