Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 16
*Afkomendur Ingalls fjölskyldunnar úr Húsinu á sléttunni hafa hreiðrað um sig á Heclu eyju »18Ferðalög og flakk
Kæru vinir.
Við erum búin að fara á víkingaslóðir á Mön og Írlandi og
óhætt að segja að víkingarnir hafi komið víða við og ekki alltaf
verið kurteisir við heimamenn. Þeir rupluðu víst bæði fé og fólk
í heimsóknum sínum hingað. Það er ekki félegt liðið sem við
erum komin af.
En við höfum verið friðsamari í okkar heimsókn og heima-
menn hafa fyrirgefið gamlar væringar og verið einstaklega
kurteisir við okkur.
Við hlökkum til að koma heim og segja frá því sem við höfum
séð.
Bestu kveðjur. Gunnar og Jóhanna Hin friðsömu hjón, Jóhanna Skarphéðinsdóttir og Gunnar Pálmason.
Á víkingaslóðum
PÓSTKORT F
RÁ ÍRLANDI
Eva Ólafsdóttir og Sigurður Sigurbjörns-son fóru í brúðkaupsferð til Wash-ington DC á dögunum. Aðspurð hversvegna höfuðborg Bandaríkjanna varð
fyrir valinu segir Eva það hafa verið tilviljun.
„Ég fæ alltaf send nettilboð frá Icelandair og
Wow í tölvupósti,“ segir hún. „Það kom gott
tilboð til Washington DC og við ákváðum því
að fara þangað. Það er allt svo dýrt í Evrópu
en í Bandaríkjunum er hægt að leyfa sér eitt-
hvað. Ef farið er út fyrir miðborg Washington
er allt frekar ódýrt. Við fundum gistingu með
morgunmat sem kostaði ekki nema tæpar
50.000 kr. fyrir okkur tvö í fimm nætur. Svo
tókum við Chrysler á leigu með GPS-tæki sem
kostaði 27.000 kr. fyrir alla dagana sem við
vorum þarna.“
Aðspurð um hvað þau hafi skoðað segir hún
að þau hafi farið á Smithsonian sem er svæði
með 19 söfnum og frítt inn á þau öll. Svo
gengu þau í kringum Hvíta húsið í sól og
blíðu. Þau fóru einnig inn í þinghúsið sem þau
höfðu gaman af. Eva hafði pantað skoðunarferð
um húsið á netinu áður en þau komu. Skoð-
unarferðin snerist að mestu um húsið og lista-
verkin en ekki þingstörfin. Þau komust að því
á staðnum að þau gætu fengið að sjá full-
trúadeildina og öldungadeildina án nokkurs fyr-
irvara og nýttu sér það. „Það kom okkur ann-
ars á óvart að Hvíta húsið var miklu minna en
við höfðum ímyndað okkur og þinghúsið miklu
stærra,“ segir Eva.
Eva segir að þau hafi aðeins borðað á einum
dýrum veitingastað í miðborginni, The Hamil-
ton, annars hefðu þau hrifist mest af veit-
ingastað sem heitir Outback Steakhouse. „Það
voru margir búnir að segja okkur að við yrð-
um að fara á þann stað og það var góð
ábending. Þetta er vinsæll og ódýr staður og
steikin guðdómleg. Þetta leit út fyrir að vera
fjölskyldustaður. Við þurftum að bíða eftir sæt-
um sem virtist ekki óalgengt þar sem okkur
var vísað á biðsal þar sem fólk sat og beið í
rólegheitum eftir borði.“
Eva segir að verðið í miðbæ Washington hafi
verið svipað og hér heima en í úthverfunum
hafi allt verið mun ódýrara. „Við keyptum allar
jólagjafirnar þarna og verðið var margfalt lægra
en hér á landi,“ segir Eva.
Eftirminnilegast segir hún að hafi verið að
koma í Arlington kirkjugarðinn sem er her-
mannagrafreitur þar sem byrjað var að grafa
hermenn í lok 18. aldar. Þar eru leiði nokk-
urra forseta Bandaríkjanna eins og John F. Ken-
nedy. „Ég er hrifin af kirkjugörðum. Það tengist
því kannski að æskuheimili mitt er við kirkju-
garð. Mér finnst eitthvað heilagt við þá,“ segir
Eva.
Ljósmynd/Sigurður Sigurbjörnsson
MIÐSTÖÐ STJÓRNMÁLA HINS VESTRÆNA HEIMS
Í höfuðborg
Bandaríkjanna
EVA OG SIGURÐUR FÓRU TIL WASHINGTON TIL AÐ SKOÐA BAKSVIÐ FRAMHALDS-
ÞÁTTANNA HOUSE OF CARDS. ÞAU GRIPU TÆKIFÆRIÐ OG KEYPTU JÓLAGJAFIR SEM
KOSTUÐU AÐEINS BROTABROT AF ÞVÍ SEM ÞÆR KOSTA VENJULEGA.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Eva Ólafsdóttir komin
á svæði stjórnmálamanna
Hvíta hússins í Washington.
Smá verslunarleiðangur í Dublin.
Írskur kross í Glendalough.