Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2013
Helgi Seljan, Kastljósstjarna á RÚV, hefur sett íbúð sína á
sölu. Íbúðin er á fyrstu hæð í fjórbýli við Bústaðaveg og er
með sérinngangi. Íbúðin er 81,6 fermetrar og kostar 25,5
milljónir. Helgi og kona hans, Katrín Rut Bessadóttir, eiga
dæturnar Ylfu Matthildi og Indíönu Karítas sem nú þurfa að
kveðja pallinn og garðinn þar sem þær hafa leikið sér und-
anfarin ár.
Helgi hefur ekki setið auðum höndum. Hann endurnýjaði
baðherbergið í fyrra og þá var skólp tekið í gegn sama ár.
Baðherbergið er flísalagt, með upphengdu klósetti og rúm-
góðri sturtu. Þá er eldhúsið með uppþvottavél og nýlegri eld-
húsinnréttingu með nýjum sökkli og borðplötu. Stofan er rúm-
góð, rúmgott hjónaherbergi með stórum skáp og ágætt
barnaherbergi. Geymsla með glugga er innan íbúðar sem get-
ur einnig nýst sem lítið barnaherbergi. Nú er stefnan sett á
stærra þannig að stúlkurnar geti leikið sér í sérherbergi.
Pallurinn góði sem fylgir íbúð Helga. Þarna hafa margar gleðistundir átt sér stað. Verður sárt saknað.
HELGI SELJAN OG FJÖLSKYLDA
Seljan selur
Helgi Seljan í Kastljósinu. Ætlar að stækka við sig.
„Ég hef nokkrum sinnum tekið hann með mér í vinn-
una og þá situr hann á stól við hliðina á mér og bíð-
ur, þ.e.a.s. þegar enginn er að knúsa hann og kyssa
eða kalla hann tvist. Hann hefur það einnig á fer-
ilskránni að hafa hjálpað Karli Sigtryggssyni að
klippa þátt af Landanum og farið með mér á fót-
boltaleik uppi á Skaga þar sem hápunkturinn fyrir
hann var að fá pulsu í sjoppunni,“ segir Edda Sif
Pálsdóttir, íþróttafréttamaður á RÚV, en hún á
hundinn Fróða.
„Fróði er fáránlega kelinn og vill helst alltaf vera í
fanginu á mér með hausinn í hálsakotinu. Hann
þekkir hljóðið í bílnum okkar, greinir það frá öðrum
á einhvern ótrúlegan hátt og bilast úr gleði þegar
hann heyrir það, oft úr mikilli fjarlægð. Honum
finnst líka mjög gaman að fá gesti og litlir krakkar
eru í uppáhaldi þrátt fyrir að þeir togi í krullurnar
hans og troði höndunum ofan í kokið á honum,“ segir
hún og hlær.
„Hann er algjör grínari og hefur til dæmis étið
köku hjá ömmu sinni sem átti að vera á boðstólum í
barnaafmæli, týnst á aðfangadag og fundist í hangi-
kjötsveislu í Nóatúni og troðið í sig næstum heilum
Húbba búbba-pakka meðan ég skrapp í bað.“
GÆLUDÝRIÐ MITT
Hefur klippt þátt
af Landanum
Edda Sif og Fróði sem er þriggja ára af tegundinni
Bichon Frise. Tegundin fer ekkert úr hárum.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Bryan Adams
syngur fallega um ástina.
Yngsti
sonurinn
úr mynd-
inni Herra
ótrúlegur.
Dash minnir
á Jónas.
Jónas Sigurðsson
tónlistarmaður er
söngvari og textasmiður.
03.07. Laugavegurinn: Önnur ferð af fjórum
04.07. Náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu
05.07. Símahúsaferð um Haugsöræfi
06.07. Reykjanes: Úr borg í óbyggðir
06.07. Þverbrekknamúli-Hvítárvatn-Hvítárnes
07.07. Í tröllahöndum á Tröllaskaga
07.07. Um Jökulfirði og fjölvindahafsvíkur
07.07. Reykjarfjörður nyrðri
09.07. Grasaferð og galdralækningar Ferðafélag barnanna
10.07. Árbókarferð 2012 um Skagafjörð
10.07. Laugavegurinn með Ingimari og Pétri
11.07. Hornbjargsviti: Önnur ferð af fjórum
12.07. Undraheimar Eldhrauns og Hverfisfljóts
13.07. Saga, byggð og búseta
15.07. Umhverfis Langasjó
15.07. Á slóðum rekabænda
15.07. Sæludagar í Hlöðuvík
16.07. Þjórsárver: Náttúruperla á heimsvísu
17.07. Laugavegurinn: Þriðja ferð af fjórum
17.07. Hinn óeiginlegi Laugavegur
19.07. Fjölbragðaferð að Fjallabaki
20.07. FÍ Action Hraðferðir: Héðinsfjörður-Hvanndalir
22.07. Norður við fjölvindahaf
24.07. Kvennaferð um Laugaveginn
24.07. Fljót-Héðinsfjörður-Hvanndalir
25.07. Flakkað til Flæðareyrar
25.07. Fjölskylduferð í Norðurfirði
25.07. Friðland að Fjallabaki: Jökulgil og hverasvæði
25.07. Hornbjargsviti: Þriðja ferð af fjórum
28.07. Ratleikur og adrenalínklifur Ferðafélag barnanna
29.07. Klettaklifur í Lambafellsgjá Ferðafélag barnanna
29.07. Lónsöræfi
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Náðu þé
r í
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
FÍ ferðir í júlí
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS