Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 40
Fatamerkið Freebird, hannað af Gunnari
Hilmarssyni og Kolbrúnu Petreu Gunn-
arsdóttur, opnaði á dögunum nýja verslun
á Laugavegi 46. Ný vetrarlína frá fyrirtæk-
inu kemur á markað í ágúst/september og
undirbúningur fyrir næsta vor er í fullum
gangi hjá fyrirtækinu.
„Við erum ákaflega stolt af því að hafa
opnað Freebird-búðina á Laugaveginum í
samstarfi við Eydísi Björgu Sæmunds-
dóttur og Hólmgeir Hólmgeirsson, sam-
starfsfólk okkar til margra ára. Við höfðum
saknað þess að vinna með þeim. Með
versluninni þá tekst okkur að endurspegla
alla Freebird-veröldina á einum stað. Línan
er stór og margbreytileg og það kemur
sterkt fram í búðinni,“ segir Gunnar.
Vorlínan 2014 frumsýnd í júlí
Um þessar mundir er vorlínan fyrir 2014 í
undirbúningi og að sögn Gunna er verið að
klára að teikna hana. „Við erum búin að
vera dag og nótt síðustu vikur í því verk-
efni. Sú lína verður frumsýnd víða um heim
núna í júlí. Við erum ákaflega spennt fyrir
því,“ segir hann að lokum.
NÝ VERSLUN FREEBIRD OPNUÐ
Vetur og næsta vor
undirbúið hjá Freebird
Íslensk vetrarrómantík er ráðandi á
myndum Ara Magg fyrir vetrarlínu
Freebird, AW 13, en yfirskriftin er
„Winter Fairytale“ eða vetrarævintýri.
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013
Föt og fylgihlutir
N
ýleg rannsókn í Bretlandi bendir á að 74%
iðkenda í yngstu aldursflokkunum 7-12
ára notast við skóbúnað sem ekki er
svartur. Hér á Íslandi má gera ráð fyrir
að tölurnar séu svipaðar. Sé kíkt á Norðurálsmótið
eða á Gull- og Silfurmótið í Kópavogi þar sem yngstu
iðkendurnir etja kappi þarf að leita lengi til að finna
svarta skó.
Árið 1996 voru tölurnar öðruvísi. 100% spiluðu í
svörtum skóm. Skömmu síðar kom ungur Englend-
ingur fram í sviðsljósið með Manchester United sem
átti eftir að breyta tískuvitund fótboltamanna.
Knattspyrnuheimurinn eltir Ball og Beckham
Alan Ball er sagður fyrstur hafa spilað í hvítum
skóm. Mætti þá til leiks með Everton í leik um góð-
gerðarskjöldinn 1971. Hummel var á höttunum eftir
leikmanni til að spila í hvítum skóm og Ball var mað-
urinn. Fékk 2000 sterlingspund fyrir. En auðvitað var
það David Beckham sem gerði þetta töff. Eftir mark-
ið hans margfræga gegn Wimbledon 1996 varð Beck-
ham tískugoð. Engu virðist skipta hvort það er sítt
hár, stutt hár, aflitað hár, hanakambur, hvítir skór
eða neonskór. Ef Beckham gerir það þá fylgir knatt-
spyrnutískuheimurinn með.
Gulir, rauðir, grænir og bláir
Í efstu deild hér heima er svarti skórinn nánast út-
dauður og litirnir teknir við. Árni Vilhjálmsson, leik-
maður Blika, er í grænum, Gunnar Már í ÍBV er í
rauðum og svona mætti lengi telja. Reyndar er það
svo að leikmenn sem spila í svörtum skóm er hægt
að telja á fingrum annarrar handar. Sé farið í búð
sem selur fótboltaskó er erfitt að finna svarta skó.
Nike, PUMA og ADIDAS framleiða þá varla lengur.
Allar stórstjörnur fótboltaheimsins spila í skóm sem
eru bjartir og glansa. Enda skiptir máli hvernig mað-
ur lítur út – líka inni á vellinum.
Morgunblaðið/Kristinn
Gulir með rauðum reimum. Meira að
segja reimarnar eru komnar í lit.
Skórnir í dag. Frá leik KR-Stjörnunnar í
fyrstu umferð. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
spilar í skóm sem mega teljast svartir.
Grænn og glæsilegur. Árni Vilhjálms-
son á þessa skó. Skiluðu honum
tveimur mörkum í fyrsta leik.
Svarti
skórinn nánast
útdauður
ÞAÐ ER AF SEM ÁÐURVAR ÞEGAR ÞEIR SEM SPARKA Í FÓTBOLTA
KLÆDDUST SVÖRTUM SKÓM ÚR LEÐRI. NÚNA ER SKÓRINN ORÐINN
MARGLITAÐUR OG SVARTSKÓA MENN KOMNIR Í MINNIHLUTA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
FÓTBOLTAMENNVELJA LITI