Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaMargir eiga aura í sjóðum stéttarfélaga án þess að átta sig á. Því getur borgað sig að kanna málið
Berglind Steinsdóttir býr ein í hverfi 105 og starfar sem
ræðulesari og leiðsögumaður og segist helst kaupa inn í
hverfisbúðunum
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ost, lauk, engifer, papriku, ab-mjólk og undanfarið
trönuber sem ég keypti mikið magn af í ógáti. Á líka
granatepli sem ég þori ekki að skera upp, það er svo
drjúgt að ég held að afgangurinn eyðileggist. Klikka oft
illilega á nýmjólkinni en geymi gos á svölunum.
Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlæt-
isvörur á viku?
Ég er svakalega meðvitaður neytandi og skoðaði bók-
haldið ár aftur í tímann – 15.000 kr. að meðaltali.
Sjampóið vegur þungt.
Hvar kaupirðu helst inn?
Í hverfisbúðunum mínum Bónus, Nóatúni og Víði.
Hvað freistar helst í matvörubúðinni?
Gæðalegt mangó, sem reynist því miður oft ónýtt
þegar heim er komið, og lífræna deildin. Er líka búin að
þróa með mér smekk fyrir dökku súkkulaði. Ég er op-
in fyrir ýmsu forvitnilegu og mig langar alltaf í ís.
Hvernig sparar þú í heimilishaldinu?
Með því að nota það sem ég kaupi. Skoða endalaust
uppskriftir til að nýta umframbirgðir. Afgangar eru líka
uppáhalds.
Hvað vantar helst á heimilið?
Meira borðpláss í eldhúsinu svo ég geti haft hveiti,
heilhveiti, hrísgrjón, sykur, púðursykur og allt hitt í
dunkum sem sjást.
Eyðir þú í sparnað?
Nei.
Skothelt sparnaðarráð
Elda of mikið og borða afganga, bæði heima og
heiman. Frysta sumt til að eiga síðar.
NEYTANDI VIKUNNAR BERGLIND STEINARSDÓTTIR
Afgangar eru uppáhalds
Berglind Steinarsdóttir segist gjarnan elda meira en hún þarf og frysta afganga.
Morgunblaðið/Rósa Braga
* Er eitthvert vit í því að borgarúmlega hundraðkall aukalega fyrir
það að taka peninga út úr hrað-
banka? Varla. Náðu þér því í pen-
inga úr slíkri maskínu í viðskipta-
banka þínum ef kostur er. Ekkert
þjónustugjald þar. Einn hundraðkall
er ekki mikið en takir þú út úr
ókunnum hraðbanka einu sinni í
viku verður smotteríið að nokkr-
um þúsundköllum yfir árið. Það má
kaupa sér eitthvað fallegt fyrir þann
pening.
* Er eitthvert vit í því að borgaallt að því tvöfalt meira fyrir gos-
flösku en nauðsynlegt er? Varla.
Veldu réttu búðirnar ef þú drekkur
gos á annað borð. Ódýrara er auð-
vitað að drekka vatn og hollara.
* Farðu í bíó á þriðjudögum.Það er ódýrara en aðra daga.
* Ef þú ætlar að kaupa þérvetrarkort á skíði næsta vetur
mundu að gera það strax og sala
hefst, þótt skíðavertíðin sé ekki
byrjuð. Það er oft miklu ódýrara.
púkinn
Aura-
Vetrarkort
strax
S
tærsta stéttarfélag landsins,
VR, býður upp á ýmiss
konar styrki. Þar má nefna
styrki til menntunar, lík-
amsræktar, og sjúkraþjálfunar svo
eitthvað sé nefnt. Þá er hægt að
sækja um styrki til endurmennt-
unar úr starfsmenntasjóði. Í vara-
sjóði VR eru sameinuð réttindi úr
orlofssjóði og sjúkrasjóði og geta
félagsmenn varið þeim fjármunum
á ýmsan hátt. Flest stéttarfélög,
stór og smá, gefa félagsmönnum
færi á að sækja styrki í ýmsa sjóði
en það er félagsmanna sjálfra að
kynna sér reglur sjóðanna og
sækja um styrkina. Allur gangur
virðist vera á því að hve miklu
leyti félagsmenn nýta sér styrkina.
Innan við helmingur sækir
sína styrki hjá VR
Rósmarý Úlfarsdóttir, deildarstjóri
þjónustudeildar VR, segir að af
rúmlega 29.000 félagsmönnum fé-
lagsins hafi 13.086 félagsmenn sótt
um styrk í varasjóð VR og 4.736
sóttu um styrk úr starfsmennta-
sjóði á síðasta ári.
,,Greiðslur úr varasjóði 2012
skiptast þannig: 45,4% eru vegna
forvarna, svo sem líkamsræktar,
13,8% nýta sjóðinn vegna orlofs-
þjónustu, tæp 10% vegna lækn-
iskostnaðar, 9% vegna hjálp-
artækja og rúm 7 % vegna
endurhæfingar,“ segir Rósmarý.
Samkvæmt þessum upplýsingum
sækir vel innan við helmingur fé-
lagsmanna stærsta stéttarfélagsins
styrki í sjóðina og má gera ráð
fyrir að svipað sé uppi á ten-
ingnum hjá öðrum félögum.
Hægt að sækja um vegna
skólabóka og tómstunda
barna
Auk ofantalinna atriða þá er hægt
að nýta sjóðinn til kaupa á skóla-
bókum fyrir börn að 18 ára aldri
sem og í tómstundir barnanna.
Allir félagsmenn í VR greiða í
varasjóð.
Efling, stéttarfélag býður sínum
félagsmönnum ýmiss konar styrki
og aðgangur að þeim ræðst af því
hvar viðkomandi félagsmaður
starfar. Því eru aðrir sjóðir fyrir
félagsmenn sem starfa hjá Reykja-
víkurborg en fyrir þá sem starfa
hjá Skjóli svo dæmi sé tekið. Regl-
ur og eyðublöð er að finna á
heimasíðu Eflingar. Hjá KÍ er að
finna þrjá sjóði, orlofssjóð, endur-
menntunarsjóð og sjúkrasjóð. Sótt
er um rafrænt á heimasíðu KÍ þar
sem allar nánari upplýsingar er að
finna.
Því er full ástæða til að skoða
rétt sinn til úttektar úr sjóðum
stéttarfélags síns. Hjá sumum
sjóðanna fyrnist inneign eftir
ákveðinn tíma eftir að hætt er að
greiða í sjóðinn.
SJÓÐIR STÉTTARFÉLAGA
Áttu leynda sjóði hjá
stéttarfélaginu þínu?
FLESTIR LAUNÞEGAR GREIÐA Í STÉTTARFÉLÖG EN TALSVERÐ BREYTING HEFUR ORÐIÐ Á STYRKJAKERFI ÞEIRRA SÍÐUSTU
ÁR. ÞAÐ ER ÞVÍ EKKI BARA AÐGANGUR AÐ SUMARHÚSUM SEM ER INNIFALINN Í AÐILD AÐ STÉTTARFÉLAGI HELDUR
EINNIG AÐ ÝMISS KONAR SJÓÐUM SEM HÆGT ER AÐ SÆKJA STYRKI Í. VARASJÓÐUR VR NÝTIST MEÐAL ANNARS Í KAUP
Á SKÓLABÓKUM OG TÓMSTUNDIR BARNA.
Hólmfríður Þórisdóttir holmfridur.thoris@gmail.com
Morgunblaðið/Kristinn
Launþegar greiða
hluta launa sinna til
stéttarfélaga.
Ástæðulaust er að
láta peninga liggja
þar í sjóðum sem
hægt er að nýta.