Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 48
VELKOMIN Á OPNUN REKSTRARLANDS
11. maí kl. 11, Skeifunni 11
Verslun Rekstrarlands er í Skeifunni 11 en þar er mikið úrval
af almennum rekstrarvörum og margvíslegar lausnir fyrir
minni fyrirtæki og einstaklinga, svo sem kaffistofuvörur,
hreinlætisvörur, pappír, þurrkubox, plastpokar, vinnufatnaður,
borðbúnaður og ýmsar sérvörur. Tilboð
1.190 kr.
1.937
Löber 40x2400 cm
Kerti – 12 cm, verð frá 369 kr.
Kertavasi – egglaga, verð frá 890 kr.
Servíettur – 40x40, 3ja laga, verð frá 199 kr.
FRÁBÆR
TILBOÐ
Grillaðar
SS-pylsur
& Svali
í boði
Servíettur, dúkar, kerti og kertastjakarPIPAR
\T
BW
A
•
SÍ
A
Viðtal
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013
elinu sé rými sem ætlað sé fyrir böll, gleðskap og annan
tónlistarflutning.
„En sagan endar alltaf eins. Þegar það er talið í giggið –
hverjar verða afleiðingarnar? Hótelgestir á hótelinu brjálast
og kvarta og sagan endar alltaf eins. Tónlistarflutningurinn
lúffar fyrir hótelrekstrinum. Bassinn smitast alltaf upp í
svefnherbergi. Þetta er óumflýjanlegt og ég hef ekki enn
hitt neinn nógu brjálaðan vísindamann sem hefur fundið upp
hina fullkomnu hljóðeinangrun til að blokkera bassabústið
frá dansiballinu og upp í svefnherbergið. Nema þú ætlir að
reka bara partýhótel sem ég held að sé mjög erfitt. Ég held
að lausnin sé að Alþingi og Reykjavíkurborg kaupi hús-
næðið af Pétri Þór. Nasa-salurinn á að fá að standa. Það
má þó svo sannarlega flikka upp á hann. Það má sannarlega
hjálpa honum að líta betur út en þetta er síðasti salurinn í
Reykjavíkurborg sem er með sál.
Með fullri virðingu fyrir Hörpunni þá er Harpan lítið
barn sem er ennþá á bleyjunni við hliðina á þessum Nasa-
sal. Hann er falinn demantur í miðri Reykjavíkurborg með
ofsalega mikla sögu og sál. Ekki nóg með það – arkitekt-
úrinn þarna inni hefur haldist nær óbreyttur frá opnun sal-
arins 1945.
Við eigum líka að hlúa að sögu innanhúss byggingalistar á
Íslandi. Það er eins og enginn sé að pæla í henni. Það er
ekki hægt að selja mér þá hugmynd að það sé í lagi að rífa
þetta allt niður til þess að byggja það upp í sömu mynd.
Það er engu líkara en að Besti flokkurinn og allir í stjórn
Reykjavíkurborgar elski þessa hugmynd með þetta hótel.
Það er upplifun mín af þessu máli. Þessi hótelást er þar að
auki í algerri andstöðu við Alþingi Íslendinga, sem nú hefur
mótmælt þessum fyrirhugðu framkvæmdum, því Alþingi
fengi inngang hótelsins beinlínis í hlaðið hjá sér.
Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með Besta flokkinn í sam-
bandi við þetta hótelmál. Þetta er fólk sem ég leit upp til.
Ég er búinn að líta upp til þessa fólks í Besta flokknum í
rúmlega 20 ár. Þessi ákvörðun er örugglega ein stærstu
vonbrigði lífs míns. Ég biðla til þeirra að hverfa frá þessari
hugmynd og ég vona að Alþingi kaupi þetta húsnæði til
sinna eigin nota. Það sárvantar húsnæði. Það er vel hægt að
reka veitingahús, kaffihús og einhverja þjónustu og lunda-
búðir handa túristum á jarðhæðinni þó skrifstofur Alþingis
séu á efri hæðunum. Samhliða þessu er svo hægt að reka
Nasa áfram sem tónleika- og viðburðasal.“
Hann segir að það að reka skrifstofur með sal eins og
Nasa fari mjög vel saman því hljóðprufur og annað líf sé að
færast inn í salinn á Nasa á þeim tíma sem fólkið er að fara
heim af skrifstofunum.
Vill gera tilraun í Hafnarhúsinu á Gay Pride
„Ég er búinn að reyna mitt besta til að finna annað hús-
næði fyrir þessa tvo viðburði vegna þess að ef ég myndi ná
að halda bara tvo viðburði í Reykjavík á ári, bara Eurovisi-
on-ball og Gay Pride, yrði ég mjög ánægður. Það eru ekki
allir viðburðir sem passa hér í Hörpuna. Tónleikarnir mínir,
Ragga Bjarna og Diddúar passa örugglega vel hérna inn.
Ég og Sinfóníuhljómsveit Íslands smellpössum hérna inn.
En ég get ekki farið með Eurovision-ballið mitt inn í Silf-
urberg. Til þess þyrfti ég að breyta Silfurbergi í klúbb og
það gerist aðeins með gríðarlegum tilkostnaði. Þessi partý
gengu út á að ég var fyrir framan nefið á áhorfendum að
troða upp. Þessi nánd næst ekki í Silfurbergi,“ segir Páll
Óskar.
„Þetta er viðráðanlegt í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu. Það er hægt með því að drappera og setja tjöld
með öllum veggjum og strengja síðan tjöld og drapperingar
uppi, yfir allt heila þakið nærðu að búa til bæði nánd og
gott sánd og þú hefur ágætis stjórn á hlutunum þarna inni.
Þar að auki er listasafnið sæmilega hrátt. Nógu hrátt til
þess að þú viljir labba þarna inn í partýstuð og á sama tíma
nógu glæsilegt til þess að viðburðirnir geti verið „glamoro-
us“. Málið er bara að það er ekkert þak á Hafnarhúsinu.
Það var aldrei smíðað þak þannig að hljóð berst mjög auð-
veldlega upp um þakið og í réttri vindátt, sérstaklega þegar
blæs úr norðaustanátt, fer allt heila hljóðið – allir heilu tón-
leikarnir yfir í Grjótaþorp. Þetta hef ég prófað að hlusta á
sjálfur,“ segir hann þegar hann fór með hljóðmæli um
páskana og mældi þetta.
„Við ætlum okkur að finna lausn á þessu og okkur langar
að gera tilraun með hljóðdeyfingu í húsinu. Ég vona að ég
fái að gera þessa tilraun á Gay Pride. En ég get ekki verið
að halda svona ball þarna í óþökk íbúanna í Grjótaþorpinu.
Þetta verður að vera framkvæmt í sátt og samlyndi við þá
og ég ætla að biðla til þeirra að leyfa mér að prófa að gera
svona tilraun í Listasafninu á Gay Pride og biðla til þeirra
að hafa þolinmæði fyrir þessu Gay Pride partýi þessa nótt
og þeirra þolinmæði verði þeirra framlag til GayPride. Ef
þessi tilraun heppnast vel og ef okkur tekst að klappa niður
hljóðið þá verð ég vonandi í betri aðstöðu að gera
Eurovisionpartý árið 2014.“