Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Síða 15
heima einhvers staðar annars stað-
ar á hnettinum. Núna finnst mér
ástandið hér á Íslandi mun eðli-
legra og ég finn fyrir bjartsýni í
loftinu.“
Of mikil sorg
Foreldrar þínir skildu og móðir
þín Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
giftist Ólafi Ragnari Grímssyni og
þau urðu seinna forsetahjón á
Bessastöðum. Hafði það einhver
áhrif á líf þitt að móðir þín var
forsetafrú?
„Það hafði ekki nein áhrif á mig,
ég var orðin fertug þegar það
gerðist. Forsetaembættið er bara
eins og það er og það er ekkert
listrænt við það. Ég var úti í Sví-
þjóð þegar mamma hringdi til að
segja mér að þau Ólafur Ragnar
hefðu ákveðið að bjóða sig fram í
forsetakosningum. Mamma var for-
setafrú í tvö ár, hún varð opinber
persóna og þegar hún dó var hún
jörðuð í beinni útsendingu. Þetta
var opinber harmur sem var mikið
álag fyrir fjölskylduna. Fáum mán-
uðum áður hafði pabbi dáið. Hann
var yfirlæknir gjörgæsludeildar
Landspítalans, vel liðinn, og þegar
hann var jarðsettur var kirkjan
troðfull. Mánuði eftir lát mömmu
dó minn góði vinur Þorgeir Kjart-
ansson. Þannig að þetta var mjög
erfitt ár og mikill harmur. Ég varð
tilfinningasljó, fannst ég varla vera
til. Þetta var of mikil sorg. Ég
hugsaði: Hver deyr næstur? Mér
fannst undarlegt að vera á lífi. Ég
gat ekki sofið en svo fór ég að
stunda jóga og það styrkti mig.
Þessi mikli missir hafði líka áhrif á
myndlist mína og ég fór að gera
verk þar sem ég lagði áherslu á
tímann og ljósið. Ég varð að gera
ljóshylki fyrir fólkið mitt. Á þess-
um tíma var ég staurblönk en sótti
um bandarískan styrk sem ég fékk
og gat því unnið í heilt ár án þess
að hafa fjárhagsáhyggjur. Það var
bæði galdur og blessun. Það var
mikil heilun sem felst í því að
vinna. Það verða allir fyrir áföllum
og þá er nauðsynlegt að fara í
gegnum sorgarferlið en festast
ekki í sorginni.“
Hvernig er samband þitt við
Ólaf Ragnar Grímsson?
„Ég er elsta barnið og hann
þurfti ekki að ala mig upp því ég
fór svo ung til útlanda en við höf-
um gott fjölskyldusamband.“
Þú býrð ein og ert barnlaus.
Hefur þig aldrei langað til að
eignast barn?
„Það hefur aldrei verið á dag-
skrá hjá mér að eiga barn. Ég er
elsta systirin og hef passað mikið
af börnum, það hefur alveg nægt
mér.
Frá því ég var sautján ára var
ég alltaf með kærasta en und-
anfarin þrjú ár hef ég verið ein.
Það þýðir að ég hef getað hagað
lífinu á minn hátt, get verið mjög
einbeitt og líka haft tíma til að
hugleiða. Það er enginn að trufla
mig. Fyrst fannst mér skrýtið að
vera ein því ég er óvön því. En
svo uppgötvaði ég hversu gott
þetta er. Núna á ég mig sjálf.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Veisluþjónusta
Við erum með tilboð
sem koma sér vel við öll
tækifæri, s.s. fermingar,
útskrift, skírnina eða
afmælið.
Snittur, tapas, heitir
ofnréttir og brauðtertur.
Allar nánari upplýsingar
færðu í síma 533-3000
virka daga milli kl. 8-16.
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Fingramatur, kökur
og konfekt
Tapas, snittur, sushi, kjúklinga-
spjót, heitir ofnréttir, konfekt,
franskir súkkulaðikökubitar,
kransabitar, jarðarber í súkku-
laðihjúp og marsipanterta.
Verð kr. 2.390 á mann
Ókeypis
lyfjaskömmtun
Borgartúni 28, sími 553 8331, lyfjaborg.is
- sjálfstætt apótek
Kíktu við
hjá okkur í
Borgartúni 28
og fáðu nánari
kynningu á
þjónustunni