Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 19
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 John hefur skýringu á því hvers vegna eig- inkonu hans var ekki kennd íslenska. „For- eldrar Maxine voru af kynslóð sem var um- hugað um að börnin þeirra löguðu sig að samfélaginu vestra. Skæru sig ekki á neinn hátt úr fjöldanum.“ Býr til ljúffenga vínartertu Það styður þessa kenningu að öll fengu börn- in ensk nöfn, Lorraine, Warren, Teddy og Maxine. Enda þótt hún lærði ekki málið fékk Max- ine á marga lund íslenskt uppeldi. „Það voru Íslendingar allt í kringum mig, menningin var í hávegum höfð og íslenskir réttir voru iðu- lega á borðum; skyr, rúllupylsa, slátur, klein- ur, ástarpungar og síðast en ekki síst vín- arterta. Hún er ómissandi á öllum heimilum Vestur-Íslendinga og það er gaman að segja frá því að dóttir mín gerir ennþá betri vín- artertu en ég. Þeirri list megum við ekki tapa niður.“ Lítil hætta er raunar á því en Maxine og John staðfesta að mikil vakning sé meðal yngra fólks af íslenskum ættum í Manitoba. Það vilji halda uppruna sínum á lofti. „Mér finnst áhugi á Íslandi vera að aukast, unga fólkið vill heimsækja landið, læra tungumálið og efla menninguna. Þarna kemur margt til en Snorra-verkefnið vegur þungt.“ Íslendingadagurinn er snar þáttur í þessu. Hann er haldinn hátíðlegur í ágúst og að þessu sinni þarf Maxine að klæða sig sérstaklega upp; hún verður fjallkonan. Ís- lensk örnefni hafa löngum verið algeng í Manitoba, ekki síst á Heclu og bjó fjölskylda Maxine á Hóli. „Pabbi var Stefán á Hóli, það verður varla íslenskara.“ Hún hlær dátt. Maxine ólst upp við nauman kost og fyrir vikið kom aldrei til álita að heimsækja Ísland. „Við fórum varla til Winnipeg, hvað þá lengra.“ Byggð lagðist af á Heclu Þegar Maxine var sextán ára, árið 1966, lagð- ist byggð af á Heclu og flutti hún þá með fjölskyldu sinni til borgarinnar Selkirk sem einnig er í Manitoba-fylki. Þar kynntist hún John og gengu þau í heilagt hjónaband árið 1972. Maxine og John bjuggu sér heimili víðs- vegar um Kanada vegna starfa hans fyrir lögregluna og herinn, síðast í Nova Scotia, en þegar móðir hennar veiktist af krabbameini árið 1998 sneru þau aftur á fornar slóðir, til Selkirk. Maxine er hjúkrunarfræðingur og annaðist móður sína síðustu misserin. Hún hefur líka háskólapróf í sálarfræði upp á vas- ann, auk þess að leggja stund á listir, einkum málverk og ljósmyndun. Fyrir tólf árum komu John og Maxine sér upp sumarhúsi á Heclu og frá árinu 2007 hafa þau búið þar árið um kring. John fann gamalt hús sem hann lét flytja út í eyna. „Síðan hef ég verið að dytta að því hægt og rólega til að mæta þörfum Maxine.“ Hann hlær og strýkur spúsu sinni blíðlega um axlir. Mjög fámennt er í eynni á veturna, aðeins fimmtán íbúar, en á sumrin fjölgar til muna, einkum um helgar, þegar á bilinu tvö til þrjú hundruð manns hafast við í eynni. Þegar Maxine og John sneru aftur hafði kirkjan á Heclu, þar sem Maxine var skírð og fermd, staðið auð í meira en þrjá áratugi. Þau fengu þá hugmynd að taka hana aftur í notkun og fengu til þess leyfi hjá þar til bær- um yfirvöldum. „Mér þótti dapurlegt að kirkjan væri lokuð og einn morguninn sagði ég sísona við John: Eftir hverju erum við að bíða, að Guð sparki í höfuðið á okkur? Í öll- um kristnum samfélögum er kirkjan brenni- punkturinn. Þannig var það á Heclu í gamla daga og þannig er það orðið aftur,“ segir Maxine en sextíu manns mættu í fyrstu messuna. „Eftir það var ekki aftur snúið.“ Ritningarlestur á íslensku Guðsþjónustur fara nú fram á hverjum sunnudegi yfir sumartímann. John leiðir at- höfnina enda þótt hann hafi ekki til þess formlega þjálfun og Maxine sér um tónlistina. Ísland er ennþá miðlægt í öllum guðsþjón- ustum og ritningarlestur fer bæði fram á ensku og íslensku. Þetta hefur mælst ákaf- lega vel fyrir hjá gestum, ekki bara þeim sem eru af íslensku bergi brotnir. „Þjóðverj- arnir eru sérstaklega ánægðir með þetta enda upp til hópa miklir áhugamenn um nor- ræna menningu,“ segir John og Maxine bæt- ir við að vel fari á þessu enda hafi íslensku innflytjendurnir verið ákaflega trúaðir og haft með sér bæði Biblíur og söngbækur frá gamla landinu. Sumt af því hefur varðveist. Starf Ingalls-hjónanna fyrir kirkjuna á Heclu er allt í sjálfboðavinnu. Allt fé sem kirkjunni leggst til fer óskipt í þróunarverk- efni erlendis, á Kúbu, í Súdan og víðar. Í Mexíkó hefur nú verið reist svokallað Heclu- hús. „Það þarf oft ekki mikið til að bæta líf fólks og mjög ánægjulegt að litla kirkjan okkar skuli geta látið gott af sér leiða,“ segir John. Ræðismenn Íslands í Winnipeg, fyrst Svav- ar Gestsson og síðan Atli Ásmundsson, hafa verið duglegir að koma með Íslendinga til Heclu. Í sumar tekur Hjálmar Hannesson við starfi ræðismanns. Maxine og John taka með glöðu geði á móti þessu fólki og bjóða smærri hópum gjarnan heim til sín. Þegar heilu hóp- arnir og kórarnir koma er tekið á móti þeim í kirkjunni. „Kirkjan er afskaplega íslensk á allan hátt og kórarnir eru ekki fyrr komnir þar inn að þeir bresta í söng,“ segir John. Á eftir kirkjunni er kirkjugarðurinn vin- sælasti áningarstaður Íslendinga sem koma vestur. „Fólk vill að vonum finna legstaði ættingja sinna. Það hafa ófá tárin fallið í kirkjugarðinum,“ segir John. Aldrei haft meira að gera Enda þótt hjónin séu komin á eftirlaun eru þau sammála um að þau hafi aldrei haft eins mikið að gera og þessi síðustu ár á Heclu. „Hvern hefði grunað að ég myndi enda sem prestur, smiður og fiskimaður á Heclu,“ segir John hlæjandi. Maxine er nú í sinni fimmtu heimsókn til Íslands og vald hennar á tungumálinu er allt- af að aukast. „Ég get sagt Eyjafjallajökull. Það var mikill áfangasigur,“ segir hún hnökralaust. „Ég hef reyndar ágæta tilfinn- ingu fyrir framburðinum. Veit til dæmis að ég fer ekki rétt með orðið Norður-Þingeyj- arsýsla,“ bætir Maxine við. Og jú, það orð fjarar svolítið út í hennar munni. Stærsti vandinn í Íslandsheimsóknum Maxine er að heimamenn vilja ólmir tala við hana ensku. „Ég hef á tilfinningunni að þeir vilji nota mig til að æfa sig í enskunni. Það er svolítið öfugsnúið,“ segir hún brosandi. Eftir viðtalið og kaffispjallið við forsætis- ráðherra er för Ingalls-hjónanna heitið út á land. Þau ætla að keyra Suðurlandið til Víkur og þaðan áfram til Egilsstaða og Vopna- fjarðar, þaðan sem Maxine er ættuð. „Þangað hef ég ekki komið áður og hlakka mikið til.“ Þeim er að skilnaði óskað góðrar ferðar og viðtalinu lýkur ekki bara með handabandi, heldur innilegu faðmlagi. „Svona gerum við á Heclu!“ Stefanía Þorláksdóttir, amma Maxine, ásamt systur sinni Sigþóru. Þær fæddust á Íslandi. Nafnið Ingalls vekur óhjákvæmilega forvitni manns sem ólst upp við Húsið á sléttunni í sjónvarpinu. Og viti menn, þau eru skyld, John og Laura Ingalls, söguhetjan úr þeim þáttum. „Ég vissi af rithöfundinum Lauru Ingalls Wilder, sem skrifaði bækurnar um Húsið á sléttunni, frá því ég var barn en fór ekki að velta því fyrir mér hvort við værum skyld fyrr en ég var orðinn fullorðinn. Ætli það séu ekki áhrif frá Maxine, hún var alltaf að rekja sínar íslensku ættir,“ segir John. Hann linnti ekki látum fyrr en hann var kominn aftur til ársins 1080. Þá settust nor- rænir menn með keimlíku nafni að í Eng- landi. „Eftir því sem ég kemst næst merkir nafnið Ingalls „í krafti Þórs“. Það er ekki lítið.“ Hann slær sér á lær. Árið 1629 sigldi Edmund nokkur Ingalls vestur um haf og nam land í Massachusetts. Hann mun vera sameiginlegur forfaðir þeirra Lauru. „Edmund átti þrjá syni, Ro- bert, John og Henry. John flutti norður á bóginn, Robert vestur og Henry suður. Ég er afkomandi Johns en Laura kemur út af Robert. Eftir því sem ég kemst næst eru all- ir sem bera nafnið Ingalls í Norður-Amer- íku tengdir blóðböndum, niðjar Edmunds.“ Laura Ingalls Wilder fæddist árið 1867 og óx úr grasi í Hnetulundi, Minnesota. Hún lést í Mansfield, Missouri, árið 1957, níræð að aldri. Horfst í augu við birni John dreymdi um að verða fiskimaður, eins og faðir hans, og byrjaði þegar á unglings- aldri að róa til fiskjar. „Föður mínum var ekkert um það gefið. Vildi að ég fengi mér vinnu með lífeyrisréttindum. Hann skráði mig því í lögregluskóla. Til að byrja með ætlaði ég ekki að fara en eftir að báturinn sem ég var á sökk með öllu kaupinu mínu skipti ég um skoðun. Það var árið 1968,“ segir John sem komst heill á húfi úr þeim hildarleik. Upp frá því vann John sem lögreglumað- ur víðsvegar um Kanada en um tíma var hann hundaþjálfari hjá hernum og glímdi við allskonar snúin verkefni í skógum og á fjöll- um, svo sem leit að týndu fólki. „Ég hef horfst í augu við birni,“ segir hann. Það sló John ekki út af laginu að langafi hans, sem einnig var lögreglumaður, féll við skyldustörf. Faðir Johns hefur líka hildi háð, barðist í seinni heimsstyrjöldinni. Hann er enn á lífi, 97 ára gamall. Situr við gluggann í Seal Cove, New Brunswick, horfir út á Atlants- hafið og fer með forn kvæði. Það er töggur í þeim, Ingallsum. Rithöfundurinn Laura Ingalls Wilder. Melissa Gilbert í hlut- verki Lauru Ingalls. FRÆNDI LAURU INGALLS FR ÍT T EI NT AK IKMYNDIR SJÓNVA RP, LEIKHÚS, LIST IR, ÍÞRÓTTIR, MATU R OG ALLT ANNAÐ RÍ TT AK FR ÍT T EI NT AK RÍ TT AK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.