Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Side 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Side 27
12.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 G uðrún Valdimarsdóttir og Oddur Jóhannsson búa ásamt tveimur son- um sínum í notalegri íbúð á Langholtsveginum. Heimilið ber þess glögglega merki að þar býr hönnuður en Guðrún er vöruhönnuður og hefur mikinn áhuga á fallegri hönnun. „Lofthæðin og gluggarnir eru það besta við íbúðina því þeir gefa mikla birtu,“ segir Guðrún og segist hafa lit- ríkan stíl þannig að hún reyni að blanda litum inn í sem flest á heimilinu. Stofan, borðstofan og eldhúsið eru eitt rými en fyrsta verk Guðrúnar og Odds þegar þau keyptu íbúðina árið 2007 var að rífa niður hlaðinn glervegg sem skildi að borð- stofuna og stofuna. „Við erum alltaf í þessu rými og gott að geta verið þar saman þó allir séu að sinna sínu. Eins er ég mjög ánægð með eldhúsið sem við skipulögðum sjálf en það er opið og nóg af borðplássi,“ segir Guðrún. Hún á ekki langt að sækja list- ræna hæfileika sína en afi hennar var myndhöggvarinn Sæmundur Valdimarss- son. Á Guðrún þrjár styttur úr hans smiðju sem eru í miklu uppáhaldi á heim- ilinu en móðurafi hennar var einnig listrænn smiður og amma hennar mikill hönnuður og saumakona. Guðrún er nú með í vinnslu skrifborð sem hún hyggur á að setja á markað innan tíðar en hún hefur hannað ýmsa muni fyrir heimilið. Morgunblaðið/Eggert Appelsínuguli stóllinn er vinsæll til að lesa saman í, bakgrunni sjást styttur höggnar úr rekaviði eftir Sæmund Valdimarsson, afa Guðrúnar. Litagleði og hönnun FALLEGT HEIMILI Á LANGHOLTSVEGINUM BER ÞESS GLÖGG- LEGA MERKI AÐ HÚSMÓÐIRIN ER VÖRUHÖNNUÐUR. María Ólafsdóttir maria@mbl.is NOTALEGT HEIMILI Á LANGHOLTSVEGINUM Keilir (á efri mynd) og Gígur, kertastjakar sem hannaðir eru af Guðrúnu. Tjaldið er úr Tiger og setur skemmtilegan svip á herbergi bræðranna Torfa og Stígs. Hillan er lokaverkefni Guðrúnar frá Listaháskóla Íslands. Holtagörðum • Pöntunarsími 512 6800 www.dorma.is TAXFREE VERÐ KR. 119.442 FULLT VERÐ 149.900 NÝTTU TÆKIFÆRIÐ FRÁBÆR KAUP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.