Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Ítölsk og mexíkönsk áhrif í vegan-matarboði og girnileg hrákaka í eftirrétt »32 É g er ekki ástríðukokkur þótt ég hafi gaman af því að elda,“ segir Sigfríður Inga Karlsdóttir, ljósmóðir og dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Ak- ureyri. „Mínar uppáhaldsuppskriftir eru flestar tiltölulega einfald- ar og helst fljótlegar,“ segir hún, en leggur engu að síður áherslu á hollan og góðan mat. „Ég held til dæmis mikið upp á fisk, enda má segja að ég sé alin upp á fiski,“ segir Sigfríður Inga, sem fædd er og uppalin á Sauðárkróki. „Svo er ég líka alveg til í að dúlla við matinn þegar eitt- hvað sérstakt stendur til og hef mjög gaman af því að fá margt fólk í mat. Grínast stundum með það að ég hljóti að hafa verið ítölsk mamma í fyrra lífi.“ Talandi um Ítalíu; Sigfríður og vinkonur hennar fóru í hjólaferð um Ítalíu í fyrrasumar, sem hún segir hafa verið stórkostlega upplifun, svo góða reyndar að önnur hefur þeg- ar verið skipulögð í sumar. Og þá verður ekki bara hjólað, heldur borðaður sá frábæri matur sem Ítalir eru þekktir fyrir og alls staðar má finna. Tilhlökkunin skín úr aug- unum! Sigfríður Inga reynir eftir fremsta megni að sjá heimilinu sjálf fyrir ýmsu góðgæti. „Ég hef gaman af því að rækta grænmeti og er með garð á sumrin þar sem ég rækta jarð- arber, kál, kartöflur og allt mögulegt. Ég tíni mikið af berj- um sem ég nota svo í hristinga og eftirrétti. Mér finnst mjög gaman að nýta allt sem ég get úr náttúrunni.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson OFT MEÐ EITTHVAÐ FLJÓTLEGT EN GOTT Einfaldar kjötbollur UPPSKRIFTIR SIGFRÍÐAR INGU KARLSDÓTTUR ERU YFIRLEITT EINFALDAR OG FLJÓTLEGAR EN ENGU AÐ SÍÐUR GÓÐAR. EN HÚN HEFUR GAMAN AF FLÓKNARI MATSELD ÞEGAR TILEFNI GEFST TIL. Sigfríður Inga með kjötbollurnar girnilegu; sáraeinfaldan og fljót- legan rétt sem hún segir mjög vinsælan í fjölskyldunni. Fyrir 6-8 manns. 1 kg nautahakk 1 pakki Ritzkex 1 pk Knorr-púrrulaukssúpa 1 egg Smá mjólk Salt og pipar eftir smekk Myljið kexið, hrærið allt saman, mótið litlar bollur, steikið á pönnu, setjið síðan í eldfast mót og bakið í ofni í 20 mínútur við 180 gráðu hita. Sósan1 flaska Heinz-chilisósa ½ krukka rifsberjahlaup ¼ lítri rjómi eða minna, eftir smekk. Allt hrært saman og hellt yfir bollurnar áður en þær eru settar í ofninn. Borið fram með hrísgrjónum, brauði og sal- ati. Sigfríður Inga segir það gefa betri raun á sínu heimili að blanda grænmetinu ekki saman, heldur raðar hún því á disk þannig að hver get- ur valið sér það sem hann vill. Kjötbollur í chilisósu Mjög gott glænýtt með kjötbollunum. 1 dl heitt vatn 1 ½ dl mjólk 2 ½ tsk. þurrger 3 dl hveiti 2 dl heilhveiti 1 dl hveitiklíð 2 ½ msk. matarolía ¼ tsk. salt Pískuð egg til að smyrja með og birki, sólblómafræ eða önnur fræ til að setja ofan á. Blandið saman mjólk og vatni og leysið gerið upp í vökvanum; vökvinn þarf að vera volgur en ekki of heitur, um það bil 37 gráður). Setjið hveiti, hveitiklíð, salt, matarolíu og sykur saman við, hnoðið deigið á borði þar til það er slétt og sprungulaust, skiptið deiginu í þrjá jafna hluta, mótið það í lengjur og fléttið saman. Látið fléttubrauðið á pappírsklædda plötu, breiðið yfir á meðan það lyftir sér, í um það bil 20 mínútur. Áður en brauðið er sett í ofn smyrjið það með pískuðu eggjunum og stráið birki og sólblómafræðum ofan á. Bakið svo neðst í ofni við 200-220 gráðu hita í 20 mín. Fléttubrauð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.