Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2013, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2013 Matur og drykkir Á hugi minn á matargerð kviknaði einhvern tímann í menntaskóla held ég og var ástæðan líklega sú að mér finnst einfaldlega mjög gott að borða góðan mat,“ segir Karl. „Stuttu eftir að ég fór að hafa áhuga á listum og þeirri menningargreiningu sem henni fylgir, og svo enn frekar eftir að við eignuðumst fyrsta barnið okkar, áttaði ég mig á því að matur og matarmenning er ótrú- lega merkilegt og eldfimt umræðuefni. Nútímamatvælafram- leiðsla hlýtur til að mynda að teljast til eins af undrum ver- aldar því ekki aðeins er hún grundvölluð á örfáum hráefnum eins og hveiti, maís, soja og hrísgrjónum, heldur byggist hún nánast ein- vörðungu á stærð- fræðilegri lógík án allra tenginga við raunveru- lega virkni náttúrunnar. Hið eðlilega og hefð- bunda hefur einhvern veginn skolast til og nú er normið að ala nítján fullvaxna kjúklinga per fermetra innandyra, að henda að lágmarki 50% alls matar og rækta kartöflur í eyðimörkum. Mér finnst ein- faldlega mjög áhugavert að skoða og greina þessa þróun því í henni birtist fegurð hinnar þversagnakenndu hegðunar mannsins og samfélagsins. Það er aðallega áhugi minn á þess- ari þversögn og á góðum mat sem ýtti mér út í að blogga. Núna er þetta reyndar orðið stór hluti af list minni og verk- efnum tengdum henni en framsetning matar í list í samhengi við menningarástand og samfélagið í gegnum söguna er mjög áhugaverð.“ Berlín er suðupottur fjölbreytileika „Berlín er frábær matarborg,“ segir Karl. „Hér mætast marg- ar þjóðir og hefðir, og úr verður suðupottur fjölbreytileika. Hér fær maður óteljandi útgáfur af alvöru þýskum pylsum, reyktu kjöti og kröftugu brauði. Tyrknesk matarmennig er mjög áberandi og hér var Döner-kebabinn fundinn upp, bjór- inn hefur ekki breyst síðan á Sturlungaöld. Víetnam og Kórea eru út um allt, ódýrir Michelin-stjörnustaðir, mikil villibráð úr skógunum, óteljandi markaðir með ólíkum áherslum og frá- bært úrval af árstíðabundnum og lífrænum matvörum sem kosta ekki handlegg og nýra. Fiskurinn er kannski það sem ég sakna mest frá Íslandi en þegar vorið kemur í apríl með villtum hvítlauk, brenninetlum, rabarbara, baunum, vorlauk og ferskasta aspas sem til er nennir maður ekki mikið að kvarta. Árstíðirnar eru svo áberandi hluti matarmenningarinnar hérna sem gerir það að verkum að ferskleiki og fjölbreytni hráefnanna fer að skipta meira máli en heima á Íslandi. Hér er epli ekki bara rautt, gult eða grænt heldur eru vel yfir þúsund yrki ræktuð í Þýskalandi, hvert með sína eiginleika og bragðtóna. Reyndar er mjög erfitt að átta sig á því hvað felst í hinu eina sanna hefðbundna berlínska eldhúsi annað en Currywurst, kartöflur og kebab, sem er reyndar áhugaverð stúdía út af fyrir sig. Einmitt núna er aspasuppskeran í hámarki en þessi tími er tekinn mjög alvarlega og hátíðlega hér í Berlín, jafnvel meira en graskersuppskeran í lok september. Hefðbundna aðferðin við að elda aspas hér er að sjóða hann aðeins of lengi í sölt- uðu vatni og hella svo yfir hollandaise-sósu úr fernu. Þjóð- verjar elska hvítan aspas frá bænum Beelitz suður af Berlín en mér finnst sá græni einfaldlega aðeins betri og kaupi hann því frekar ef ég ætla að gera eitthvað annað en súpu. Beikon og aspas eru bestu vinir. Gott er t.d. að vefja beikon utan um spergilinn og grilla sem léttan forrétt en enn betra er að bæta honum út í almennilegt og vel piprað carbonara,“ segir Karl. Karl er ekki aðeins listarinnar kokkur heldur einnig listamaður sem hefur gert matargerð að stórum þætti í list sinni. Ljósmynd/Sigríður Soffía Gunnarsdóttir Að sögn Karls eru beikon og aspas bestu vinir og því er hann með aspas í uppskrift sinni að spaghetti carbonara. BLOGGAR UM MAT Á MATARKARL.WORDPRESS.COM Matargerð er eldfimt umræðuefni MATARÁHUGI KARLS ÞORBERGSSONAR KVIKNAÐI ÚTFRÁ ÁHUGA HANS Á LISTUM EN HANN NEMUR VIÐ UNIVERSTÄT DER KÜNSTE Í BERLÍN. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Karl með barnið sitt í Berlín. Spaghetti fyrir fjóra (u.þ.b. 500 g) 200 g gott beikon (Pylsugerð- armeistarinn/Frú Lauga) 500 g ferskur grænn aspas 4 eggjarauður skvetta af rjóma væn lúka af rifnum parmesan vel af nýmöluðum pipar Vatn sett í stóran pott, saltað og hitað að suðu og pastað út í. Beik- onið skorið í bita og steikt á stórri pönnu með smáolíu. Aspasinn snyrtur (trénaði hlutinn skorinn af) og skrældur og skorinn í hæfilega stóra bita, þumlungs, og þeir settir út í vatnið með pastanu og soðnir þar í max þrjár mínútur. Aspasinn tekinn frá og bætt við beikonpönn- una og steikt áfram á lágum hita í örfáar mínútur. Bolli af pastavatn- inu tekinn til hliðar. Eggjarauðum, rjóma og osti blandað vel saman í skál. Nú fer pastað að verða tilbú- ið. Aspasinn og beikonið piprað eins og enginn sé morgundagurinn. Spaghettíið í sigti og út á pönnuna. Slökkt undir og blandað aðeins saman. Þegar hættir að snarka í pastanu er eggjablöndunni bætt út á og hrært hratt, vel og örugglega. Skvettu af pastavatninu bætt við til að gera sósuna flauelsmjúka og fína. Ekki salta því það er nóg salt í beik- oninu, sérstaklega ef þið eruð í Þýskalandi, og líka í pastavatninu. Borðið strax takk. Hvítt með. SPAGHETTI CARBONARA MEÐ GRÆNUM ASPAS (FYRIR FJÓRA)

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.