Morgunblaðið - 04.07.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
FRÓÐASTI FERÐAFÉLAGINN
Í Vegahandbókina er komin
ítarleg 24 síðna kortabók,
með yfirlitskortum,
1:500 000, sem gefa skýra
yfirsýn yfir landsvæði
Íslands og auðvelda notkun
bókarinnar.
Vegahandbókin Sundaborg 9 sími 562 2600 www.vegahandbokin.is
Allt í einni bók
Fullt verð 4.990 kr.
1.000 kr. afsláttur ef þú kemur með
gömlu bókina
( einungis hægt að skipta í
bókabúðum,
ekki bensínstöðvum )
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Verðið lækkar í kjölfarið hér heima
og þetta hefur svakaleg áhrif á allt
okkar starf,“ segir Magnús Stein-
þórsson gullsmiður en gull hefur
lækkað mikið í verði á heimsmörk-
uðum síðustu misseri.
Á öðrum ársfjórðungi 2013 hefur
gull lækkað um meira en 23% og er
það mesta hlutfallslega lækkun gulls
á einum fjórðungi síðan verslun með
gull í núverandi mynd hófst á Co-
mex-markaðinum í New York árið
1975.
Fólk selur miklu minna af gulli í
svona árferði að sögn Magnúsar en
hann fylgist vel með alþjóðlegu verði
á gulli og segist kíkja á stöðuna í sím-
anum sínum á fimmtán mínútna
fresti.
„Margir halda að sér höndum á
meðan gullverðið lækkar og ætla að
bíða með að taka ákvörðun um að
selja gullið sitt,“ segir Magnús en
hann metur og kaupir gull af ein-
staklingum samhliða gullsmíði.
„Allir skartgripir sem við erum að
framleiða í dag eru á um 20% lægra
verði en þeir voru fyrir síðustu ára-
mót vegna mikils verðfalls á gulli á
alheimsmörkuðum,“ segir Óli Jó-
hann Daníelsson gullsmiður.
„Eftir hrun er hlutfallið á milli silf-
urs og gulls orðið um 80/20 þar sem
fólk kaupir frekar silfur en gull. Fyr-
ir hrun var þetta kannski 50/50,“
segir Óli en hann telur heimsmark-
aðslækkun hafa mikil áhrif á gull-
smiði hér heima.
Bæði gull og silfur hefur lækkað
mikið á alþjóðamörkuðum og því er
eðlilegt að verðið lækki hérna heima
í kjölfarið að mati Óla. „Það getur
samt verið erfitt fyrir marga að
lækka verðið ef þeir keyptu gullið á
gamla verðinu.“ jonheidar@mbl.is
„Þetta hefur svakaleg
áhrif á allt okkar starf“
Morgunblaðið/Golli
Málmur Gull er fallegt og verðmætt.
Heimslækkun
á gulli og silfri
Hæstu tilboð í lóðir í Úlfarsárdal og
Reynisvatnsási námu samtals 976
milljónum króna.
Þegar tilboðsfrestur rann út á
mánudag höfðu borist 23 gild tilboð í
19 lóðir í Úlfarsárdal með bygginga-
rétti fyrir 107 íbúðir eða 49% þeirra
lóða sem lausar voru. Í lausar lóðir í
Reynisvatnsási höfðu borist 39 gild
tilboð í 21 lóð með byggingarétti fyrir
53 íbúðir eða 58% lóða sem í boði
voru, segir í tilkynningu borgarinnar.
Tilboðin voru í flestum tilvikum ná-
lægt lágmarksverði.
Buðu millj-
arð í lóðir
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
„Við fengum ekki nægilegt magn til
að halda tveimur stöðvum gang-
andi,“ segir Magnús Ásgeirsson,
innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, en
N1 þurfti nýverið að loka annarri
metangasstöð sinni af tveimur, á
Tinhellu í Hafnarfirði.
Ástæðan er sú að eftir úrskurð
Samkeppniseftirlitsins frá desember
síðastliðnum, vegna samráðs um
verð á metangasi, var samið upp á
nýtt við Sorpu og N1 fær nú umtals-
vert minna af metangasi en áður.
Fram til þess var N1 eini kaupand-
inn að metangasi frá Sorpu.
N1 hefur þegar fjárfest umtals-
vert í búnaði til flutnings metangass-
ins, og voru lögð rör til stöðvarinnar
þar sem gasinu var dælt í gegn.
Hann segir hluta N1 nú vera smá-
vægilegan, en nægi þó til að halda
hinni stöð fyrirtækisins, við Bílds-
höfða, gangandi um sinn.
Í útboðinu varð Olís hlutskarpari
og tryggði sér rétt til sölu um 1.500
rúmmetra af metani á ári. Ársfram-
leiðslan er rúmlega 2.000 rúmmetrar
á ári og er Olís því með um 75% met-
ansins í sölu hjá sér. Samningur var
svo gerður við N1 um þann hluta
sem eftir var, eða um 500 rúmmetra
á ári.
Samningurinn er til tveggja ára
og er Olís þegar búið að opna met-
angasstöð í Mjóddinni og segir aðra
stöð á Reykjavíkursvæðinu vera í
bígerð.
Nánast allt lendir á einni hendi
„Útboðið var þannig gert að þetta
gat allt lent á einni hendi, en það má
velta því fyrir sér hversu skyn-
samlegt það sé til lengri tíma litið af
Sorpu að framkvæma útboðið með
þeim hætti,“ segir Jón Ólafur Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri sölu-
sviðs hjá Olís. Hann segir það hins
vegar vera Sorpu að ákveða hvernig
að því sé staðið, þeir séu nú búnir að
tryggja sér meirihlutann af fram-
leiðslunni og sjái einungis um að
tryggja að eigendur metanbifreiða
eigi greiðan aðgang að metangasi
næstu árin.
Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu, segir að eitt
skilyrði þeirrar sáttar sem Sorpa
gerði við Samkeppniseftirlitið sé að
skipta sér ekki af dreifingu á smá-
sölumarkaði. Hann segir útboðið
hafa verið tilraun í samræmi við
sáttina, en reynslan þurfi að skera
úr um hvernig því verði best háttað
til framtíðar. Þá segir hann að reynt
hafi verið að tryggja að salan yrði
ekki aftur öll á einni hendi og nefnir
sem dæmi að ákveðið hafi verið að
ganga fram hjá Metanorku ehf., sem
var næsthæst í útboðinu, þar sem
stöð á þeirra vegum hafi ekki verið
tilbúin til afgreiðslu. N1 var hins
vegar með tilbúnar stöðvar og gat
því haldið sölunni við. Hann segir
það vera undir fyrrgreindum aðilum
komið að berjast á markaði.
Ráðandi staða
færðist frá
N1 til Olís
N1 sá alfarið um sölu á metangasi
Olís er nú með 75% hlutdeild
Morgunblaðið/Ómar
Metan Um 1.300-1.400 bifreiðar á
Íslandi ganga fyrir metangasi.
Skipting á markaði
» Árlega eru rúmlega 2.000
rúmmetrar af metangasi
framleiddir.
» Olís sér um sölu 1.500 rúm-
metra og er með 75% mark-
aðshlutdeild.
» N1 sér um sölu 500 rúm-
metra og er með 25% mark-
aðshlutdeild.
» N1 sá áður alfarið um sölu
metangass.
Á fallegum sumardögum léttist lundin og er stutt í gleði og hlátur. Þeir
sem á því eiga kost reyna að verja sem mestum tíma utandyra og þá er gott
að hafa aðgang að náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Þegar sólin yljar manni fullmikið er fátt betra en að kæla sig hressilega
niður og það gerðu þær Anna Margrét Ólafsdóttir og Brynja Pála Bjarna-
dóttir með stæl þegar þær stukku hönd í hönd fram af litlum fossi í
Elliðaánum.
Stokkið til móts við
sumarið í Elliðaárdalnum
Morgunblaðið/Eggert
Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur í gær
Sumarþingi verð-
ur frestað í dag
og hefst ekki að
nýju fyrr en í
september, að
sögn Kristjáns L.
Möller, 1. vara-
forseta Alþingis.
„Þinginu verður
frestað og munu
þingmenn næst
koma saman 10. september. Þá
verða sex þingdagar, frá 10.-12.
september og svo frá 16.-18. sept-
ember,“ segir hann.
Frumvarpi til breytinga á þing-
skapalögum var dreift á Alþingi í
gær en samkvæmt því verður sam-
komudegi nýs þings frestað frá 10.
september til 1. október. Er það gert
til að skapa meira ráðrúm til að und-
irbúa fjárlagafrumvarp, skattalaga-
breytingar og aðrar ráðstafanir í
ríkisfjármálum, segir í greinargerð.
Aðspurður segist Kristján aðeins
vita til þess að eitt mál verði á dag-
skrá á septemberþinginu en það er
nýtt lagafrumvarp um Hagstofu Ís-
lands, en ekki náðist að klára málið
fyrir þingfrestun.
Kosið í stjórnir
Einnig mun þingið kjósa til nýrrar
stjórnar RÚV í dag, en Alþingi sam-
þykkti í gær breytingar á lögum um
Ríkisútvarpið. Í breytingunum fólst
meðal annars að stjórn Ríkis-
útvarpsins verður kjörin af Alþingi,
en einnig verður stjórnarmönnum
fjölgað úr sjö í níu.
Þá verða einnig kosningar til
bankaráðs Seðlabanka Íslands,
Þingvallanefndar o.fl. agf@mbl.is
Þingi frest-
að fram í
september
Hefst að nýju
10. september
Kristján L. Möller