Morgunblaðið - 04.07.2013, Qupperneq 11
snertingar á einkastaði séu bann-
aðar en áður en farið er að tala þann-
ig við börn þurfum við að vera viss
um að barnið viti hvað átt er við þeg-
ar rætt er um einkastaði. Það er líka
mikilvægt að börn upplifi ekki að
þau beri ábyrgð á ofbeldinu þrátt
fyrir að þau hafi verið frædd um það.
Við getum frætt börnin upp að vissu
marki og stundum ná börn sem eru
búin að fá fræðslu að stoppa ofbeldi.
En í aðstæðum þar sem barn er á
móti fullorðnum er hinn fullorðni
alltaf með yfirburðastöðu og þrátt
fyrir að barn viti hvernig á að bregð-
ast við ofbeldinu frýs það kannski og
getur ekki spornað við verknaðinum
og upplifir að þetta sé því að kenna.“
Þorbjörg þvertekur fyrir að heim-
urinn fari versnandi þó að vissulega
séu ógnir gagnvart börnum á netinu
bæði illviðráðanlegar og vaxandi.
„Ég held að við séum á réttri leið
hvað marga hluti varðar. Við eigum
okkur líka draum um að geta útvíkk-
að starfsemi Barnahúss þannig að
hún nái yfir alla þætti ofbeldis gegn
börnum.“
Morgunblaðið/Eggert
kynningaskyldu. Okkur ber að til-
kynna til Barnaverndarnefndar ef
við höfum áhyggjur af aðbúnaði
barna og ég tala nú ekki um ef börn
segja frá að brotið hafi verið gegn
þeim. Ef slík atvik eru ekki tilkynnt
er viðkomandi sem á hlýðir í raun að
brjóta lög. Á námskeiðinu er farið
yfir tilkynningaskylduna, viðbrögð,
ofbeldisfrásagnir, barnavernd-
arkerfið, réttarvörslukerfið og ýmsa
þætti sem skipta máli.“
Bókinni er skipt niður í nokkra
flokka, kynferðislegt ofbeldi, lík-
amlegt ofbeldi, andlegt ofbeldi og
vanræksla og er farið yfir hvern
flokk fyrir sig. Í bókinni er einnig
farið í gegnum þau lög sem snúa að
hagsmunum barna, bæði barna-
verndarlögin og almenn hegning-
arlög. „Fólk hefur oft ekki aðgang
að þessu nema í lagabálkum sem er
mjög erfitt að komast í gegnum en í
bókinni reynum við að gera þetta að-
gengilegt.“
Í skjóli nafnleyndar
Þorbjörg segir fólk stundum
smeykt við að tilkynna mál til
Barnaverndarnefndar eða leita ráða
hjá Barnahúsi. „Við þurfum alltaf að
hafa í huga hverra hagsmuna er ver-
ið að gæta. Erum við að gæta hags-
muna barnsins sem ef til vill býr við
óviðunandi aðstæður eða hræðumst
við það að einhver verði reiður út í
okkur? Þegar búið er að tilkynna þá
erum við í það minnsta sem ein-
staklingar búin að koma áhyggjum
okkar frá okkur. Það er vont að
horfa til baka tveimur, þremur árum
seinna og sjá að maður hefði getað
gert eitthvað. Það verður samt alltaf
að vera eitthvað hugvit og skynsemi
á bak við hverja tilkynningu. Stund-
um er þetta kristaltært, sumt er
óljósara og sumt er á gráu svæði,“
segir Þorbjörg.
Sé fólk í vafa getur það leitað
ráða hjá fagfólki. Fólk sem er að
vinna með börnum tilkynnir til
Barnaverndar í nafni starfsvett-
vangs síns en einstaklingar sem til-
kynna um nágrannabörn eða börn í
fjölskyldunni geta tilkynnt undir
nafnleynd. „Tilkynningaskyldan er
að mínu mati alveg gríðarlega mik-
ilvægt verkfæri og skilar þessum
málum í einhvern farveg. Svo getur
fólk verið misánægt með þetta ferli
og það eru auðvitað alltaf einhverjar
grýlusögur um að tilkynningar hafi
ekki skilað neinu og að það þýði ekki
að kæra. Fólk getur verið með alls
konar skoðanir á því en það verður
svolítið að leggja þetta til hliðar því
þarna er barn sem mögulega býr við
óviðunandi aðstæður.“
Fræðsla kemur ekki
veg fyrir ofbeldi
Áríðandi er að fólk fari ekki út í
of mikla rannsóknarvinnu ef grunur
leikur á að barn sæti ofbeldi. „Það er
að sjálfsögðu mikilvægt að hlusta og
taka eftir því sem barnið er að segja
og spyrja opinna spurninga en það
er ekki gott að yfirheyra barnið.
Þegar börn koma í viðtöl hjá fagfólki
skiptir máli að þau hafi ekki verið
spurð leiðandi eða óviðeigandi
spurninga.“ Fræðsla er lykilatriði
þegar kemur að ofbeldi gegn börn-
um en á sama tíma er mikilvægt að
fólk geri sér grein fyrir að fræðsla
kemur ekki endilega í veg fyrir of-
beldi. „Við þurfum að tala við börn
um hlutina eins og þeir eru og eigum
ekki endilega að vera að fegra þá eða
tala undir rós. Það er oft talað um að
„Stundum er
þetta kristal-
tært, sumt er
óljósara og sumt
er á gráu svæði.“
Tilkynningarskylda „Okkur ber að tilkynna til Barnaverndarnefndar ef við höfum áhyggjur af aðbúnaði barna og
ég tala nú ekki um ef börn segja frá að brotið hafi verið gegn þeim,“ segir Þorbjörg. Myndin er sviðsett.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
Fuglavernd, í samvinnu við Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur, verður
með fuglaskoðun í Heiðmörk í
kvöld. Lagt verður af stað stund-
víslega klukkan 20 frá Elliðavatns-
bænum og gengið meðfram vatn-
inu og um nágrenni þess. Fólk
getur búist við að sjá jaðrakan, óð-
inshana og himbrima ásamt öðrum
tegundum.
Edward Rickson mun leiða göng-
una. Allir velkomnir og munið að
taka sjónaukann og jafnvel fugla-
bókina með og vera vel klædd.
Fuglaskoðun í Heiðmörk í kvöld
Himbrimi Hann er sannarlega fallegur fugl sem gaman er að sjá í návígi.
Fuglaganga
Ljósmynd/Jakob Sigurðsson
Fjarðarkaup
Gildir 4.-6. júlí ...........................verð nú áður mælie. verð
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.798 2.298 1.798 kr. kg
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Kindafille úr kjötborði ................. 2.898 3.498 2.898 kr. kg
Hamborgarar, 2x115 g m/brauði 420 504 420 kr. pk.
Ísfugls kjúklingabringur .............. 1.998 2.293 1.998 kr. kg
Fjallalambs grillsneiðar .............. 1.479 1.849 1.479 kr. kg
Fjallalambs skyndigrill................ 1.898 2.379 1.898 kr. kg
Prins póló, 56x18 g ................... 998 1.498 18 kr. stk.
Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 248 348 248 kr. kg
Smjörvi, 300 g .......................... 231 289 231 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 4.-7. júlí verð nú áður mælie. verð
Fabrikku hamborgari, 2x120 g .... 999 1.145 999 kr. stk.
Fabrikku bbq svínarif.................. 1.499 1.789 1.499 kr. stk.
Hagkaups lærisneiðar Arabía ...... 2.379 3.399 2.379 kr. stk.
Holta kjúklingur, heill ................. 749 999 749 kr. kg
Holta texas leggir ....................... 699 999 699 kr. kg
Holta bbq vængir, 800 g ............ 418 697 418 kr. stk.
Holta buffaló vængir, 800 g ........ 418 697 418 kr. stk.
Holta úrb. skinnl. bringur ............ 2.099 2.799 2.099 kr. kg
SS lambalæri, frosið .................. 1.199 1.399 1.199 kr. kg
Krónan
Gildir 4.-7. júlí verð nú áður mælie. verð
Ungnautalund, erl. ..................... 3.499 4.998 3.499 kr. kg
Ungnauta entrecote, erl. ............. 2.989 4.598 2.989 kr. kg
Grísalund, erl. ........................... 1.598 2.298 1.598 kr. kg
Lúxus grísakótilettur ................... 1.298 2.198 1.298 kr. kg
Lúxus grísakótilettur, kryddaðar ... 1.298 2.198 1.298 kr. kg
Grísahnakki, úrb. erl. .................. 1.099 1.698 1.099 kr. kg
Lamba lærisneiðar..................... 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Nóatún
Gildir 5.-7. júlí verð nú áður mælie. verð
Lambafille m/fiturönd úr kjötb. ... 3.958 4.398 3.958 kr. kg
Ungnauta Rib Eye úr kjötb. ......... 4.256 4.729 4.256 kr. kg
Ungn.hamborg., 120 g úr kjötb. .. 249 289 249 kr. stk.
Holta kjúkl. grillbringur lime. ....... 2.293 2.698 2.293 kr. kg
SS grískar ,rísahnakkasneiðar..... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
Kartöflubátar krydd. í grillbakka .. 399 469 399 kr. pk.
Maískólfar, 4 stk. í grillbakka ...... 599 675 599 kr. pk.
Helgartilboð
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing