Morgunblaðið - 04.07.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
Þjónusta og síur
fyrir allar tegundir
af loftpressum
ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ
LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR
idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700
Gott ú
rval á
lager
ÞÝSKAR GÆÐA
PRESSUR
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mikill fögnuður ríkti á Tahrir-torgi í
Kaíró í gærkvöldi eftir að herinn í
Egyptalandi tilkynnti að Mohamed
Morsi hefði verið vikið úr embætti
forseta. Áður hafði Morsi virt að
vettugi frest sem herinn veitti hon-
um til að verða við kröfum mótmæl-
enda. Morsi hvetur stuðningsmenn
sína til að berjast gegn „ólöglegu
valdaráni“ hersins, að sögn eins af
helstu ráðgjöfum hans. Fyrr um
daginn voru hermenn sendir að mik-
ilvægum byggingum í Kaíró.
Herinn tilkynnti að forseti stjórn-
lagadómstóls Egyptalands yrði
þjóðhöfðingi landsins til bráða-
birgða. Umdeild stjórnarskrá lands-
ins hefði verið numin úr gildi og boð-
að yrði til kosninga. Mohamed
ElBaradei, einn leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, sagði áform hersins
samræmast kröfum hennar um að
efnt yrði til kosninga sem fyrst.
Dagblaðið Al-Ahram sagði að leið-
togar hersins hygðust mynda bráða-
birgðastjórn sem yrði við völd í allt
að ár. Stjórnarskrá landsins yrði
numin úr gildi og ný samin og borin
undir þjóðaratkvæði innan árs. Efnt
yrði síðan til forseta- og þingkosn-
inga þegar nýja stjórnarskráin tæki
gildi.
Sakaður um einræðistilburði
Ólgan í Egyptalandi hófst í nóv-
ember sl. þegar Morsi gaf út til-
skipun þar sem hann tók sér stór-
aukin völd. Tilskipunin kvað m.a. á
um að dómstólarnir gætu ekki
hnekkt ákvörðunum forsetans eða
leyst stjórnlagaþing landsins upp.
Forsetinn lét þó undan kröfum mót-
mælenda og stjórnarandstæðinga í
desember og féllst á að ógilda til-
skipunina.
Ný stjórnarskrá var samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu 15. desem-
ber með rúmlega 60% atkvæða. Am-
nesty International og fleiri mann-
réttindasamtök hafa gagnrýnt nýju
stjórnarskrána og telja að talsvert
vanti upp á að hún tryggi mannrétt-
indi. Samtökin gagnrýna meðal ann-
ars að í stjórnarskránni er ekkert
sérstakt ákvæði um jafnrétti
kynjanna og að tjáningarfrelsið sé
takmarkað með ákvæði sem eigi að
vernda íslam.
Morsi hefur einnig verið sakaður
um einræðistilburði gagnvart dóm-
stólum landsins frá því að hann tók
við forsetaembættinu fyrir ári.
Hann hefur ennfremur verið gagn-
rýndur fyrir að skipa vanhæfa
flokksbræður í valdamikil embætti.
Efnahagsmálin vega þyngst
Omar Ashour, egypskur stjórn-
málafræðingur sem hefur sérhæft
sig í rannsóknum á samtökum ísl-
amista, segir að mótmælin gegn
Morsi snúist um efnahagsmál frekar
en íslam.
Andstæðingar forsetans hafa
gagnrýnt hann fyrir að hafa ekki
blásið lífi í efnahaginn sem dróst
saman árið 2011 þegar ferðamönn-
um fækkaði vegna ólgunnar í land-
inu. Fawaz Gerges, forstöðumaður
Mið-Austurlandamiðstöðvar London
School of Economics, segir að stuðn-
ingurinn við forsetann hafi minnkað
meðal lágstéttar- og millistéttar-
fólks vegna óánægju með efnahags-
stöðnunina.
Þátttakendurnir í mótmælunum í
Egyptalandi síðustu daga hafa með-
al annars kvartað yfir fjölgun
ofbeldisglæpa, hækkun matvæla-
verðs og eldsneytisskorti sem er
rakinn til þess að gjaldeyristekjur
landsins hafa minnkað. Gengi
egypska pundsins hefur lækkað um
10% frá því að Morsi komst til valda.
Á meðal andstæðinga Morsis eru
gamlir stuðningsmenn Mubaraks,
stjórnarandstöðubandalag sem
nefnist Þjóðfrelsisfylkingin, gras-
rótarhreyfing ungs fólks sem er
óánægt með efnahaginn og venju-
legt fólk sem tengist ekki neinum
stjórnmálaflokki. Stjórnarandstaðan
er sundurleit og hefur mátt sín lítils
í kosningum gegn flokki Morsis,
Bræðralagi múslíma, öflugustu og
elstu stjórnmálasamtökum landsins.
Stuðningsmenn Morsis leggja
áherslu á að hann hafi tekið við
slæmu búi, meðal annars miklum
opinberum skuldum, og ósanngjarnt
sé að ætlast til þess að hann geti
leyst vandamál landsins á einu ári.
Hann eigi að fá tækifæri til þess að
gegna forsetaembættinu þar til
kjörtímabilinu lýkur árið 2016.
Stuðningsmennirnir kenna gömlum
bandamönnum Mubaraks um
vandamálin, segja þá taka þátt í
„samsæri Bandaríkjamanna og gyð-
inga“ um að grafa undan Bræðralagi
múslíma.
Morsi vikið
úr embætti
forseta
Herinn í Egyptalandi hyggst boða til
kosninga og afnemur stjórnarskrána
Ólga Mótmælendur í Kaíró krefjast þess að herinn
í Egyptalandi steypi Mohamed Morsi af stóli for-
seta. Mótmælendurnir söfnuðust saman á götu við
forsetahöllina í Kaíró eftir að Morsi lýsti því yfir í
fyrrakvöld að hann myndi ekki segja af sér. Frest-
ur, sem herinn hafði gefið Morsi til að verða við
kröfum mótmælenda, rann út í gær.
Stjórnmálaskýrendur í Egypta-
landi telja að yfirhershöfðingj-
anum og varnarmálaráðherranum
Abdel Fattah al-Sisi sé mikið í mun
að binda enda á stjórnmálakrepp-
una í landinu án þess að herinn
taki öll völd í sínar hendur eins og
á árunum 2011-2012 eftir að Hosni
Mubarak hrökklaðist úr embætti
forseta.
Mohamed Morsi, forseti Egypta-
lands, skipaði Sisi yfirhershöfð-
ingja og varnarmálaráðherra í
ágúst á síðasta ári í stað Husseins
Tantawis, gamals bandamanns
Mubaraks.
Sisi er trúrækinn múslími og á
þessum tíma komst á kreik orð-
rómur um að herinn, sem hafði áð-
ur barist gegn Bræðralagi músl-
íma, kynni að mynda bandalag
með Mohamed Morsi og öðrum
leiðtogum íslömsku samtakanna.
Aðdáandi Nassers
Sisi er 58 ára, tuttugu árum yngri
en Tantawi og þegar hann var skip-
aður yfirhershöfðingi var hann
yngsti maðurinn í nítján manna
Æðstaráði hersins. Sisi var lítt
þekktur á þessum tíma og talið var
að Morsi hefði skipað hann yfir-
hershöfðingja og varnarmála-
ráðherra vegna þess að hann væri
hliðhollur Bræðralagi múslíma.
Sisi er þó einnig mikill aðdáandi
Gamals Abdels Nassers, fyrrver-
andi forseta
Egyptalands,
eins og margir
aðrir foringjar í
hernum. Kamel
al-Sayyed,
stjórnmálafræð-
ingur við Kaíró-
háskóla, segir að
Sisi hafi reynt að
stuðla að þjóðar-
sátt í lok síðasta árs, þegar deila
um nýja stjórnarskrá stóð sem
hæst, en Bræðralag múslíma hafi
hafnað sáttaumleitunum hans.
Vill bæta ímynd hersins
Fréttaveitan AFP hefur eftir stjórn-
málamönnum og blaðamönnum,
sem hafa rætt við Sisi, að fyrir
honum vaki fyrst og fremst að
bæta ímynd hersins sem naut áður
mikillar virðingar meðal Egypta.
Vinsældir hersins eru taldar hafa
minnkað þegar herforingjastjórnin
var við völd eftir afsögn Mubaraks
í febrúar 2011 og þar til Morsi varð
forseti í júní á síðasta ári.
Sisi fæddist í Kaíró 9. nóvember
1954 og brautskráðist frá háskóla
egypska hersins með prófgráðu í
hernaðarvísindum. Hann stundaði
einnig framhaldsnám í Bretlandi
árið 1992 og í Bandaríkjunum árið
2006. Hermt er að hann hafi góð
sambönd í her Bandaríkjanna og í
Sádi-Arabíu.
Var álitinn á bandi íslamista
SNERIST GEGN FORSETANUM SEM SKIPAÐI HANN
Abdel Fattah
al-Sisi