Morgunblaðið - 04.07.2013, Side 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér kann að sýnast langt á milli
þess sem þú hefur og þess sem þig dreym-
ir um. Komdu þér í samband við viðkom-
andi og myndaðu vinalega stemningu svo
viðkomandi sé til í að hjálpa þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Dagurinn er fallegur, sama hvernig á
það er litið. Stundum þarf bara að segja
hvers maður óskar og það rætist.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það getur verið erfitt að verða
fyrir stöðugum kröfum frá öðrum. Temdu
þér jákvætt viðhorf til manna og málefna
og þá mun þér vel farnast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þennan dag ætti að nota til þess að
skipuleggja ferðir með fjölskyldunni.
Reyndu að vinna meira í einrúmi eftir því
sem líða tekur á daginn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert óvenju skapstygg/ur í dag en
gerir þér ekki grein fyrir ástæðu þess.
Hlustaðu og taktu þátt í samræðum en ekki
lofa neinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur þurft að sætta þig við
þrengingar á undanförnum árum. Gefðu
þér tíma til að greiða úr flækjunni og þá
leysast allir hlutir auðveldlega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að finna þér sálufélaga, ein-
hvern sem deilir með þér áhugamáli þínu
og horfir ekki í þann tíma sem það út-
heimtir. En það er samband þitt við
sjálfa/n þig sem færir þér hamingju.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er sannleikskorn í því að
hálfnað er verk þá hafið er. Allir munu virða
þig fyrir að standa upp fyrir málstað sem
þú trúir á, og sjá að þú hefur rétt fyrir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gættu þess að sýna ekki of
hörð viðbrögð við orðum eða athöfnum
annarra. Annars áttu á hættu að allt verði
eyðilagt fyrir þér og þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert nógu sjálfstæð/ur til þess
að láta ekki aðra vaða yfir þig á skítugum
skónum. Taktu þetta ekki persónulega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Já, þú sækist eftir fullkomnun.
Einhver tekur eftir breytingu í þér. Ein-
beittu þér að því að umgangast jákvætt
fólk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt hafa mikla ánægju af því
að fara í frí eða skemmtiferð. Komandi vik-
ur fela í sér vaxtarmöguleika. Stundum er
betra að vinna með en að reyna að koll-
varpa öllu.
Sigrún Haraldsdóttir bregður áleik í limru:
Ég innra finn örlítinn blús
upp þegar kyndi mitt hús
á höndum er köld
og hitinn í kvöld
er sýnist mér, sex gráður plús.
Helga Björnssyni stóð ekki á
sama:
Ástand þitt er ekkert grín
ekki í kroppnum friður.
Sýnist mér þú Sigrún mín
sért að kólna niður.
Davíð Hjálmar Haraldsson sér
aðra hlið á þessu knýjandi máli:
Veirurnar naga þig víða um lönd,
varnarlaus finnurðu bitið.
Sigrún er komin með helbláa hönd,
úr Hádegismóum barst smitið.
Sigrún er ekki sein til svars:
Gjarnan yfir gleðst mín önd
góðum lit og vænum,
bregður á mína bláu hönd
bjarma fagurgrænum.
Þá Ágúst Marinósson:
Bölið tel ég manna mest
meiriháttar refsivönd.
Að hafa flokkast fyrir rest
með frjálshyggjunnar bláu hönd.
Skúli Pálsson er hins vegar á
allt öðrum nótum. Hann grípur
blúsinn á lofti hjá Sigrúnu og segir
að helst þyrfti að syngja textann,
til dæmis við Muddy Waters og Ís-
landsvininn Pinetop Perkins. Þetta
er skemmtileg nýbreytni á Boðn-
armiði:
Ég raula minn rigningarblús
meðan regnið ber utan mitt hús
það setur að kvíða
því sumarið blíða
sæta og fríða
lætur eftir sér bíða
meðan árin hjá líða
ég raula minn rigningarblús
rassblautur tóm er mín krús
liggjandi víða
það er logn milli hríða
stund milli stríða
og stormurinn lemur mitt hús
meðan raula ég rigningarblús
ísskápur tómur
allt er barlómur
lífið þrældómur
ég er snúðugur svekktur og snauður
svo er vinnan í pati
og vinur minn Snati
er dauður
en kannski að lokum ég komi út í
plús
ef ég bara raula minn rigningarblús.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af helblárri hendi, barlómi
og rigningarblús
Í klípu
BÓTOXSPRAUTURNAR HENNAR MARÍU
BORGUÐU SIG SJÁLFAR Á NÓINU.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG GET EKKI HITT ÞIG Í ALLA VEGA
ÞRJÁR VIKUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann krefst
þess að fá að halda á
skíðunum þínum.
EF ÞÉR ER SAMA
ÞÓ ÞÚ MISSIR
KRÓKINN ÞINN.
… ÞÁ LEGG ÉG TIL
AÐ ÞÚ SKERIR Á
LÍNUNA.
HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ GERA
HRÓLFUR?
HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ GERA??
DOMINOS PIZZA
GÓÐAN DAG.
ÞETTA ER TIL
ÞÍNBan Ki-Moon, framkvæmdastjóriSameinuðu þjóðanna, gerði
stutt stopp á Íslandi fyrr í þessari
viku. Hann flutti athyglisverðan
fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands og hrósaði Íslendingum fyrir
að vera í fararbroddi í umhverfis- og
jafnréttismálum auk þess að hafa
mótað þjóðfélag, sem eftirsókn-
arvert væri til búsetu. Ban gaf kost á
fyrirspurnum að loknum fyrirlestri
sínum og voru þær af ýmsum toga,
ein um stöðu kvenna, önnur um Sýr-
land og sú þriðja um Ísraela og Pal-
estínumenn. Ban svaraði þessum
spurningum skilmerkilega og af
hreinskilni. Viðstaddir sperrtu þó
fyrst eyrun þegar einn fundarmanna
bar upp spurningu um skuldastöðu
íslenskra heimila, íslenskt réttar-
kerfi og mannréttindi. Þarna var
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna afhjúpaður. Hann sagði nokkur
almenn orð um að mannréttindi
væru algild en gat ekkert svar gefið
við spurningunni sjálfri. Eftir fyr-
irlesturinn heyrði Víkverji einn við-
staddra segja að það hefðu verið
mikil vonbrigði að Ban Ki-Moon
hefði vikið sér undan því að ræða
skuldastöðu heimilanna, sérstaklega
hefði verið fróðlegt að heyra hvað
hann hefði að segja um 110% leiðina
og hugmyndir framsóknarmanna
um almenna niðurfærslu skulda. Þá
er ljóst að mannréttindavinkillinn
verður enn um sinn hulinn þoku og
óvissu.
x x x
Víkverji er reyndar viss um að BanKi-Moon hefur áður fengið und-
arlegar fyrirspurnir og hefði tæp-
lega náð jafnlangt og raun ber vitni
ef hann réði ekki við að bjarga sér
við erfiðari kringumstæður en þetta.
Annars var ljóst af máli Bans að
draumur hans er að vegur Samein-
uðu þjóðanna verði meiri. Ítrekað
talaði hann um mikilvægi samtaka-
máttarins, ein þjóð, hversu voldug
sem hún væri, gæti ekki ráðið för,
allir þyrftu að leggjast á eitt. Þetta
voru kannski skilaboð til Íslendinga
um að þeir gætu haft áhrif í heim-
inum, en þó fremur til stórvelda
heimsins um að ráðskast ekki ein-
hliða með alla hluti. En eru þau að
hlusta á Ban Ki-Moon?
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn,
af öllu hjarta og tigna nafn þitt að
eilífu.
(Sálmarnir 86:12)