Morgunblaðið - 17.07.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Einhver minnsta fræðigrein Há-skóla Íslands og þótt víðar
væri leitað fékk að áliti þeirra sem
hana ástunda mikla viðurkenningu
á dögunum.
Svokallað Rann-sóknasetur um
smáríki fékk það
sem kallað er önd-
vegisstyrkur frá
Evrópusambandinu
og mun næstu þrjú
árin starfa sem
Jean Monnet önd-
vegissetur.
Þetta er ekki fyrsti stuðningurEvrópusambandsins við þessa
smáfræðastofnun en lýsir því engu
að síður hve mikilvægt starf sam-
bandið telur að þar sé stundað.
Og skyldi engan undra.
Þessi smáfræði hafa verið notuðóspart til að reyna að sann-
færa Íslendinga um að áhrif Ís-
lands innan Evrópusambandsins
yrðu gríðarleg og þar með að Ís-
land ætti að kappkosta að gerast
aðili að sambandinu.
Fræðin hafa því verið af-skaplega smágerð og talsvert
minni en svo að þau standi undir
nafni sem slík, ekki síst innan
veggja háskóla sem segist vilja
vera í fremstu röð.
Og ekki stækka fræðin við aðvera orðin svo fasttengd
spena helsta viðfangsefnisins.
Að vísu fór ekki mikið fyrirgagnrýninni hugsun fyrir
öndvegisstyrkinn, en dettur ein-
hverjum í hug að hún aukist eftir
þetta?
Baldur
Þórhallsson
Öndvegissetur Evr-
ópusambandsins
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:49 23:20
ÍSAFJÖRÐUR 3:18 24:01
SIGLUFJÖRÐUR 2:59 23:46
DJÚPIVOGUR 3:10 22:58
SCREEN- OG
RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil
en þú vilt samt geta séð út
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Hildur Hjörvar
hhjorvar@mbl.is
„Ég er nú bara búinn að taka upp
handa sjálfum mér en það stendur
til að byrja kartöfluupptöku hér í lok
vikunnar,“ segir Birkir Ármanns-
son, kartöflubóndi í Brekku í
Þykkvabæ. Þær fregnir bárust frá
Þykkvabæ í síðustu viku að kartöflu-
upptaka þar væri síðar á ferðinni í ár
en venjulega vegna vætu og kulda,
en upptakan er nú loks hafin og má
landinn því vænta ferskra kartaflna í
verslanir.
„Það viðrar ágætlega en mætti
auðvitað vera meiri sól og hiti; við
tökum síðar upp vegna veðursins,“
útskýrir Birkir. „Í fyrra tókum við
upp í fyrra fallinu, byrjuðum 4. júlí,
en það var sérstaklega gott ár. Það
er svolítið langt síðan við fengum
svona skilyrði. Í hittifyrra fengum
við frost í maí en nú hefur ekki verið
neitt frost, sprettan bara verið hæg-
ari.“
Hjalti Egilsson á Seljavöllum í
Hornafirði segir veðrið þar hins veg-
ar hafa verið kartöflubændum í hag
og uppskeruna í ár vera aðeins fyrr
á ferðinni en í fyrra. Hjalti tók
fyrstu gullaugakartöflurnar upp í
fyrradag og sendi þær til Reykjavík-
ur í gær. Hann gerir ráð fyrir að
senda 2-3 tonn af kartöflum frá sér á
dag á uppskerutímanum.
Uppskeran óútreiknanleg
Birkir segir ómögulegt að segja til
um hvernig uppskeran verði. „Það
er auðvitað einn og hálfur mánuður
eftir í sprettu en ef það hlýnar meira
og verður ekki svona votviðrasamt
þá má búast við góðri uppskeru.“
Óskar Kristinsson, kartöflubóndi í
Dísukoti í Þykkvabæ, tekur í sama
streng. „Það er erfitt að segja til um
hvernig uppskeran verður en hún er
að minnsta kosti góð af þeim kart-
öflum sem við setjum undir plast.
Júlímánuður er sá kaldasti síðan
1983, sem tefur helling fyrir. Þetta
er sennilega uppskera í meðallagi,
svona á að líta.“
Óskar sendi fyrstu kartöflurnar á
markað í gærmorgun og segir þær
hafa litið ljómandi vel út, en það
voru fljótsprottnar og mjölmiklar
premiere-kartöflur. „Nú verða
ferskar kartöflur á hverjum degi, ef
ekkert óvænt kemur upp á.“
Birkir segir landsmenn mega bú-
ast við nýjum kartöflum út sumarið.
„Nú tökum við upp á hverjum degi
og uppskeran fer samdægurs í búð-
ir. Svo byrjum við að taka upp í
geymslurnar í byrjun september og
verðum að fram í október.“
Loks uppskera í Þykkvabæ
Þykkvabæjarkartöflur heldur seint á ferðinni vegna veðurs Veðrið í
Hornafirði kartöflubændum hagstætt Nýjar kartöflur fram á haust
Morgunblaðið/Golli
Kartöflur Glæný uppskera er af
flestum talin herramannsmatur.