Morgunblaðið - 17.07.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
„Það hefur verið meira að gera í
sumar en oft áður,“ segir Hermann
Helgason, einn eigenda skóversl-
unarinnar Kaupfélagsins, en svo
virðist sem vætusamt sumar og fáar
sólarstundir síðustu vikur hafi
mögulega ýtt undir fata- og skó-
verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Góð sala í fataverslunum
„Salan hefur verið mjög góð,
bæði í júní og þessar tvær vikur
sem liðnar eru af júlí,“ segir Her-
mann. „Svo virðist sem fólk sé
meira heimavið í sumar og sæki í
búðirnar í stað þess að leggja land
undir fót.“
Verslunin selur meðal annars
sandala og aðra sumarskó og telur
Hermann að heldur minna hafi selst
af skónum en oft áður. Þó er nokk-
uð um að viðskiptavinir kaupi skó af
þessu tagi áður en þeir halda í
ferðalög til útlanda.
„Við getum ekki kvartað yfir að-
sókn,“ segir Ellert Baldursson,
verslunarstjóri fataverslunarinnar
Debenhams í Kringlunni. „Það er
örugglega ekki minna að gera hjá
okkur í svona veðri eins og hefur
verið undanfarið.“
Hann segir að margir viðskipta-
vinirnir séu orðnir þreyttir á veðr-
inu. „Ég fæ margt fólk núna sem
kaupir sumarföt og er á leið í sum-
arfrí til útlanda daginn eftir,“ segir
Ellert.
„Það er búið að vera nóg að gera
í sumar og við getum alls ekki
kvartað,“ segir Elín Tinna Loga-
dóttir, verslunarstjóri fataversl-
unarinnar 66° Norður á Laugaveg-
inum. Hún segir ferðamennina ekki
hafa jafn miklar áhyggjur og marg-
ur Íslendingurinn af veðrinu í sum-
ar. „Þeir líta á þetta sem ævintýri,
þetta er bara hluti af því að upplifa
Ísland.“
Selja fleiri skópör
Fataverslun jókst um 9,1% í júní
miðað við sama mánuð í fyrra á
föstu verðlagi og jókst um 10,9% á
breytilegu verðlagi á sama tímabili.
Þetta kemur fram í skýrslu Rann-
sóknarseturs verslunarinnar um
sölu verslana í júnímánuði. Velta
skóverslunar jókst um 11,8% í júní
á föstu verðlagi og um 13,9% á
breytilegu verðlagi miðað við júní í
fyrra.
Morgunblaðið/Eggert
Bæta í skápinn Svo virðist sem margir kjósi heldur að eyða sumarfríinu í
fataverslunum en í útilegu. Kaupmenn hrósa happi yfir góðri sölu í sumar.
Aukin verslun
vegna vætutíðar
Skór og fatnaður hefur selst vel í
sumar Mikið að gera í verslunum
Fiskiðjuver HB Granda á Vopnafirði
hóf vinnslu á makríl og síld í byrjun
vikunnar. Um 160 til 170 manns
munu starfa við uppsjávarfrysti-
húsið í sumar að sögn Magnúsar Ró-
bertssonar vinnslustjóra. Þetta kem-
ur fram á vefsíðu HB Granda.
Þar af eru rúmlega 80 fastráðnir
starfsmenn en aðrir eru sum-
arstarfsmenn, m.a. margt skólafólk.
Að sögn Magnúsar er töluvert um
að brotfluttir Vopnfirðingar sækist
eftir vinnu þar yfir sumarmánuðina.
Faxi RE kom með fyrsta afla ver-
tíðarinnar síðastliðinn sunnudag og
var lokið við að vinna hann í fyrra-
kvöld. Vinnslan fór rólega af stað,
en Magnús segir það ávallt taka tíma
að stilla vinnslubúnaðinn og ná upp
fullum afköstum.
Samkvæmt upplýsingum HB
Granda í gær er Ingunn AK nú á
miðunum suðaustur af landinu og
Faxi var væntanlegur þangað síð-
degis í gær. Lundey NS var í Reykja-
vík og ekki farin til veiða.
160 til 170 manns í uppsjávarvinnslunni
mbl.is
alltaf - allstaðar
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Meiri verðlækkun!
Vertu vinur okkar á facebook
ÚTSALAN er hafin
40% afsláttur
af töskum
Útsalan á fullu
Allt að 70% afsláttur
NÆG BÍLASTÆÐI
litlar
stærðir
í úrvali
TOP
PVÖ
RUR
- TOP
PÞJÓ
NUS
TA
32.900 kr.
Tilboð
16.500 kr.
Mörkinni 6 - sími 588 5518
Opið virka daga kl. 10-18,
Lokað á laugardögum
topphusid.is