Morgunblaðið - 17.07.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
M
ig hefur lengi lang-
að að skrifa and-
lega sjálfshjálp-
arbók,“ segir
Hildur Þórðar-
dóttir. „Ég var í sjálfboðaliðastarfi
hjá Hugarafli, var þar vikulega
með tíma í hópheilun og mig lang-
aði til að segja þátttakendum svo
margt sem ég hafði ekki tíma til
að segja þeim. Svo ég ákvað að
skrifa bók og segja það allt sem
mér fannst að þyrfti að segja.
Upphaflega var þessi bók hugsuð
fyrir fólk sem glímir við þung-
lyndi, kvíða og væg geðhvörf. En
þegar ég byrjaði að skrifa hana sá
ég að hún átti erindi við fleiri.“
Étur okkur að innan ef við
þykjumst vera glöð
„Í bókinni held ég því fram að
allar tilfinningar séu réttmætar og
það sé mikilvægt að gera sér grein
fyrir tilfinningunum og fá útrás
fyrir þær en byrgja þær ekki inni.
Neikvæðar tilfinningar eru alveg
jafn réttmætar og jákvæðar, þær
eru bara hugsaðar til skamms
tíma. Þegar við erum reið þá eig-
um við að veita þeirri orku útrás
og framkvæma og breyta. Við eig-
um að nýta kraftinn í reiðinni til
að gera það sem við þurfum að
gera í staðinn fyrir að byrgja reið-
inni inni og segja við okkur sjálf
að við megum ekki vera reið held-
ur alltaf að vera jákvæð og glöð.
Það étur okkur smám saman að
innan ef við erum alltaf að þykj-
ast vera glöð og prúð, stillt og
jákvæð.
Bókin fjallar líka um hug-
ann. Við erum með æðra sjálf
og lægra sjálf og lægra sjálf-
ið er röddin sem dregur
okkur niður, segir að við
séum ekki nógu góð og til-
tekur allt sem er að okkur
eða lætur okkur upphefja
okkur sjálf á kostnað ann-
arra. Þetta er rödd sem
hljómar alltaf í kollinum
á okkur, nema við
ákveðum að kveða hana
niður. Þeir sem hlusta
of mikið á lægra sjálfið
þurfa að læra að
Þarft að fjalla
um tilfinningar
Taumhald á tilfinningunum – leið til betra lífs er ný bók eftir Hildi Þórð-
ardóttur, heilara og þjóðfræðing. Bókin skiptist í nokkra kafla: Æðra og lægra
sjálf, Tilfinningar og geðlíkami, Hugurinn, Þunglyndi og Andlegt líf.
Kvíði Fólk á það til að fá kvíðaköst sem stafa af innibyrgðum tilfinningum.
Þegar farið er áfram á hnefanum brjótast tilfinningarnar stundum fram.
Sam-
kvæmt
Hildi eru nei-
kvæðar til-
finningar jafn rétt-
mætar og jákvæðar.
Eflaust vita margir bókmennta-
áhugamenn af síðunni brainpick-
ings.org en þar eru meðal annars
fjölmörg bókmenntaverk tekin fyrir,
kynnt og gagnrýnd. Búlgarski
bloggarinn Maria Popova stendur á
bak við síðuna en hún er meðal
annars penni fyrir Wired UK og The
Atlantic. Á síðunni má finna gott
bókasafn þar sem netverjar geta
kynnt sér nýjar bækur. Auk þess má
finna eldri bækur, fjölda skemmti-
legra tilvitnana og útdrátta.
Síðan nýtur mikilla vinsælda og
meira en milljón gestir heimsækja
hana mánaðarlega. Popova fær
einnig aðstoð fjölda gestapenna
sem skrifa áhugaverðar greinar um
hitt og þetta. Einnig er hægt að
hlusta á hálfgert útvarp síðunnar
þar sem einkar ljúf lög, sem gjarn-
an má hlusta á samhliða lestri, eru
spiluð.
Vefsíðan www.brainpickings.org
AFP
Bókmenntir Margt er að finna á síðunni, þar á meðal bókadóma og greinar.
Bókmennta- og listdómasíða
Nú fer að líða að tónleikum listahá-
tíðarinnar LungA sem haldin er á
Seyðisfirði. Listasmiðjurnar fara
senn að klárast og á laugardaginn
munu tónleikarnir reka smiðshöggið
á hátíðina. Tónleikarnir hafa skipað
sér sess með vinsælustu viðburðum
síðustu ára hér á landi enda vinsæll
viðkomustaður góðra tónlistar-
manna.
Í ár eru það sveitirnar FM Belfast,
Ghostigital, Mammút, Úlfur Úlfur,
Grísalappalísa, Vök og danska sveitin
Rangleklods sem spila á hátíðinni og
munu tónleikarnir fara fram á tveim-
ur sviðum. Þegar hljómsveitirnar
hafa lokið sér af mun síðan plötu-
snúður sjá um að halda mann-
skapnum hressum það sem eftir lifir
nætur. Hægt er að nálgast miða á
midi.is en samkvæmt nýjustu veð-
urspám á að vera ágætis veður á
Austfjörðum um helgina og því um að
gera að skella sér á tónleikana.
Endilega…
… skellið ykkur á tónleika
List Margt er um að vera á Seyðisfirði en tónleikarnir verða á laugardaginn.
Viðfangsefnið verður draumar og
þrár og rýnt verður í undirmeðvitund-
ina í gegnum rödd og líkamsbeitingu
á námskeiði í fýsísku leikhúsi sem
haldið verður dagana 18.-21. júlí
næstkomandi. Hrefna Lind Lár-
usdóttir sem er nú að klára masters-
nám í sviðslistum í Naropa-
háskólanum í Colorado stendur fyrir
námskeiðinu og verður það haldið í
leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi á
Snæfellsnesi. Námskeiðið sem ber
heitið Kviksyndi drauma þinna er
hluti af lokaverkefni Hrefnu Lindar og
mun hún meðal annars miðla vinnu-
aðferðum sem hún hefur lært á leik-
listarbóndabænum Double Edge
theater. Á Kviksyndi drauma þinna er
unnið með leiktækni Jerzy Grotowski
og raddþjálfun sem byggist á hug-
myndum Roy Harts. Þátttakendur
verða beðnir um að beina athygli
sinni að draumum sínum og halda
litla drauma-
dagbók sem und-
irbúning fyrir
námskeiðið. Unn-
ið verður með
spuna til að fram-
kalla ómeðvitaðar
myndir sem birt-
ast í undirmeðvit-
undinni. Áhuga-
samt fólk á sviði
lista, hvort sem
það er á sviði myndlistar, sviðslistar
eða tónlistar, er hvatt til að sækja
námskeiðið. Vinnustofan gengur út á
tilraunamennsku þar sem reynt er að
afhjúpa sjálfið, varpa fram spurn-
ingum og búa til lífsreynslu sem
dansar á mörkum listgreina. Enn eru
nokkur laus pláss. Hægt er að skrá
sig og fá nánari upplýsingar með því
að senda póst á netfangið hrefnasm-
unk@gmail.com.
Námskeið í fýsísku leikhúsi á Snæfellsnesi um næstu helgi
Kviksyndi drauma þinna
í Frystiklefanum á Rifi
Hrefna Lind
Lárusdóttir
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
„Þegar við erum reið þá eigum
við að veita þeirri orku útrás
og framkvæma og breyta.“
20% afsláttur
Gildir í júlí
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.