Morgunblaðið - 17.07.2013, Side 11
Morgunblaðið/Rósa Braga
Höfundurinn Hildur Þórðardóttir ætlaði upphaflega að skrifa bók fyrir fólk sem glímir við þunglyndi, kvíða og væg
geðhvörf en sá fljótt að bókin átti erindi við fleiri, þar sem við verðum öll fyrir ólíkum áföllum á lífsleiðinni.
hugsa upp á nýtt, hugsa jákvætt
og byggja sig upp.“
Andleg líðan ekki síður
mikilvæg en líkamleg
Hildur er spurð hvort að hún
telji að mikil þörf sé fyrir bók eins
og þessa. „Ég tel að þörfin sé
mjög mikil. Það hafa ekki komið út
margar bækur sem fjalla um til-
finningar, hins vegar er fjöldi bóka
á markaði þar sem fjallað er um
mataræði og hreyfingu. Það er
sannarlega þörf á að fjalla um til-
finningarnar og andlega líðan sem
er ekki síður mikilvæg en líkamleg
vellíðan.
Allir verða fyrir einhvers kon-
ar áföllum í lífinu og þá byrgja
sumir tilfinningar sínar inni. Kon-
ur um fertugt fá svo kannski allt í
einu kvíðaköst sem virðast koma
upp úr þurru. Kvíðaköstin stafa af
því að þær hafa alla tíð byrgt til-
finningar sínar inni. Þær hafa vilj-
að standa sig og ekki leyft sér að
vera reiðar og daprar. Þær hafa
ætlað að fara áfram á hnefanum
en fara svo allt í einu að upplifa
kvíðaköst vegna þess að tilfinning-
arnar vilja koma upp á yfirborðið.“
Lífsgæðakapphlaupið víkur
fyrir andlegri leit
Hildur segir að sér hafi geng-
ið vel að skrifa bókina. Þetta er
fyrsta bók hennar og hún gefur
hana út sjálf. „Ég fékk ekki útgef-
anda en kynntist fólki sem hefur
verið í sjálfsútgáfu sem gaf mér
góð ráð. Námskeiðahald sem ég
stóð fyrir kostaði útgáfuna. Mér
fannst mikilvægt að hafa bókina á
mannamáli. Mér finnst sjálfri leið-
inlegt að lesa bækur, til dæmis ís-
lenskar þýðingar, þar sem mál-
farið er svo upphafið að innihaldið
kemst ekki til skila. Bókin mín er
andleg sjálfshjálparbók og það
andlega er einfalt.“
Spurð hvort hún telji mikinn
andlegan áhuga ríkjandi hjá Ís-
lendingum segir hún: „Það er mik-
ill andlegur áhugi hjá Íslend-
ingum. Við erum framan af ævi
nokkuð upptekin af lífsgæðakapp-
hlaupinu en seinna á ævinni kemur
þörfin fyrir að andlega leit. Á lífs-
leiðinni verðum við öll fyrir áföll-
um sem knýja okkur til andlegs
þroska.“
Þess má að lokum geta að bók
Hildar mun einnig koma út sem
hljóðbók og auk þess stendur til
að þýða hana á ensku.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Bókin Eldað undir bláhimni sem til-
einkuð er skagfirskri matarmenningu
og gefin var út fyrir síðustu jól hefur
vakið mikla athygli bæði innanlands
og utan. Hún inniheldur rúmlega
fjörutíu uppskriftir og fjölda ljós-
mynda af skagfirskri matargerð,
náttúrufegurð og mannlífi. Útgefandi
bókarinnar hefur þekkst boð um að
taka þátt í alþjóðlegri keppni mat-
reiðslu- og vínbóka, Gourmand World
Cookbook Awards. Á hverju ári veitir
Gourmand þeim bókum sem þykja
skara fram úr í heimi matreiðslunnar
verðlaun, en alls eru 200 matreiðslu-
bækur og 50 vínbækur sem hafið
hafa keppni nú. Um tuttugu og sex
þúsund matreiðslubækur eru gefnar
út árlega í heiminum og er markmið
keppninnar m.a. að hjálpa lesendum
og ekki síður bóksölum að finna
bestu bækurnar úr öllum þeim fjölda.
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ritstýrði
bókinni og myndir eru eftir Pétur
Inga Björnsson og Óla Arnar Brynj-
arsson, útgefandi er Nýprent.
Skagfirsk matreiðslubók í alþjóðlega keppni
Fólkið á bak við bókina Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ritstjóri, Óli Arnar Brynj-
arsson, hönnuður og myndasmiður, og Pétur Ingi Björnsson ljósmyndari.
Skagfirsk matarmenning
vekur athygli erlendis
Þrátt fyrir vætusamt sumar hafa
Listhópar og Götuleikhús Hins húss-
ins haldið sínu striki á götum borg-
arinnar og skemmt gestum og gang-
andi. Á morgun klukkan 16-18 munu
hóparnir halda lokahátíðina Vængja-
slátt á göngugötunni á Laugavegi þar
sem ungt og hæfileikaríkt fólk sýnir
brot af afrakstri sumarsins.
Dagskráin er afar fjölbreytt og sýn-
ir vel frjóa og bjarta framtíð í íslensk-
um listaheimi. Slagverk flytur verk
fyrir tvo trommuheila. Sagitaria Raga
fremur gítargjörning. Sviðslistahóp-
urinn SUS sýnir verk þar sem mörk
og eiginleikar rýmisins eru kannaðir.
Ritsveinninn réttsýni sýnir eigin
verk. Stringolin fiðluleikari leikur
verk. Tómamengi hreyfir við áhorf-
endum með dansi og gjörningum.
Kasia flytur tónlist sem er eingöngu
eftir konur og Operation Creed vinn-
ur að götulistaverki. Götuleikhúsið
verður að sjálfsögðu á staðnum líka.
Lokahátíð Listhópa Hins hússins
Morgunblaðið/Rósa Braga
Listhópar Það verður fjölbreytt dag-
skrá á morgun í miðbænum.
Vængjasláttur á göngugötunni
á Laugavegi á morgun
Fýsískt leikhús Reynt að búa til lífsreynslu sem dansar á mörkum listgreina.
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
16
6
6
Giftingarhringar