Morgunblaðið - 17.07.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
„Þjóðgarðar og starfsemi þeirra
geta skapað byggðarlögum nýja
möguleika. Hins vegar legg ég mikla
áherslu á að vandað sé til undirbún-
ings og mál unnin í sátt við heima-
menn á hverjum stað. Hagsmunir og
viðhorf eru ólík og þau þarf að brúa,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson um-
hverfisráðherra.
Gjörólíkir hagsmunir
Í Vesturbyggð er um þessar
mundir unnið að framgangi þess að
Látrabjarg og nærliggjandi svæði
verði gerð að þjóðgarði. Vinna við
deiliskipulag svæðisins stendur yfir
og frá hönnuðum koma hugmyndir
um bætta aðstöðu ferðamanna. Þá
var fyrir nokkrum misserum opnuð
starfsstöð á vegum Umhverfisstofn-
unar fyrir vestan og landverðir eru á
Látrabjargi, í Vatnsfirði og víðar.
Fyrir nokkrum árum var stofnað
til Vatnajökulsþjóðgarðs. Segir Sig-
urður Ingi að væntingar fólks til
þeirrar starfsemi hafi verið miklar
og þær hafi að sumu leyti gengið
upp. Þó ekki öllu, enda líti fólk t.d. í
Öræfum og norður í Kelduhverfi
ólíkum augum á
hlutina. Aðstæð-
ur á þessum
svæðum séu gjör-
ólíkar og hags-
munir sömuleiðis.
„Þessi sjónarmið,
sem snúa að
verndun, stjórn-
un og landnýt-
ingu verður að
brúa í allri undir-
búningsvinnu, svo þeir sem að mál-
inu koma verði samtaka,“ segir ráð-
herrann.
Munum fylgjast með
Umhverfisstofnun hefur með öðr-
um unnið að framgangi Látrabjargs-
málsins. Segist Sigurður Ingi munu
fylgjast með því starfi og hvernig því
vindi fram. „Þjóðgarðar eru til þess
fallnir að koma svæðum á kortið sem
skapar tækifæri í ferðaþjónustu og
víðar. Í ráðuneytinu munum við
fylgjast með hvernig fram vindur
vestra og greiða leiðina að settu
marki eftir því sem við á.“
sbs@mbl.is
Ólík sjónarmið
verður að brúa
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Þjóðgarðarnir koma landsvæðum á
kortið, segir umhverfisráðherra
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Fimm ríkisstofnanir voru fjórum
sinnum eða oftar á lista yfir stofn-
anir, í skýrslum Ríkisendurskoð-
unar um framkvæmd fjárlaga á ár-
unum 2005-2007, 2009, 2010 og
2012, sem eiga við uppsafnaðan eða
verulegan rekstrarvanda að stríða.
Stofnanirnar sem um ræðir eru
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum,
Flensborgarskóli, Landbún-
aðarháskóli Íslands, Hólaskóli –
Háskólinn á Hólum í Hjaltadal og
Námsmatsstofnun. Þrjár af þessum
stofnunum, þ.e. Landbún-
aðarháskóli Íslands, Hólaskóli –
Háskólinn á Hólum og Flensborg-
arskóli eru í skýrslu Ríkisend-
urskoðunar til Alþingis um fram-
kvæmd fjárlaga árið 2012 sagðar
standa í ítrekuðum hallarekstri.
Hallarekstur áhyggjuefni
„Ég ætla að leggja það til við
fjárlaganefnd að við förum að fyr-
irmælum Ríkisendurskoðanda um
að beina því til ráðherra að þeir
taki á þessu máli áður en komi til
beinna afskipta fjárlaganefndar,“
segir Vigdís Hauksdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokksins og formað-
ur fjárlaganefndar Alþingis. Spurð
að því hvort það sé ekki áhyggju-
efni að ár eftir ár séu sömu rík-
istofnanirnar að fara fram úr fjár-
lögum segir Vigdís svo vera.
„Það er náttúrlega bara tvennt í
stöðunni, að skera niður hjá sér og
spara í rekstri eða þá bara að taka
þá ákvörðun að skera halann af
þeim,“ segir Vigdís sem telur ófært
að hafa halla á fjárlögum ár eftir ár
ef um „gamlar syndir“ er að ræða.
„Við hljótum sem fjárlagavald að
geta sett þær kröfur á stofnanir að
þær haldi sig innan rammans, ann-
ars er náttúrlega ekki nokkur ein-
asta leið að gera áætlanir með fjár-
lög,“ segir Vigdís og bendir á að
svo virðist sem allir einhvern veg-
inn stóli á að fá yfirdrátt.
Þá gagnrýnir Vigdís fyr-
irkomulag fjáraukalaga. „Þegar bú-
ið er að samþykkja fjárlögin koma
alltaf fjáraukalög sem eiga að leysa
ákveðinn rekstrarvanda ríkisstofn-
ana. Þá eru raunverulega þingmenn
að samþykkja fjárlög á röngum for-
sendum og ekki með allar upplýs-
ingar hjá sér þegar þau eru sam-
þykkt,“ segir Vigdís og bætir við:
„Þess vegna legg ég áherslu á að
fjárlögin séu sem næst raunveru-
leikanum til að þessi útdæling í
fjáraukalögum þurfi ekki alltaf að
koma til.“
Skólinn var stækkaður
Að sögn Einars Birgis Steinþórs-
sonar, skólameistara Flensborg-
arskóla, var skólinn stækkaður
gríðarlega á árunum 2005-2006 en
við það fjölgaði nemendum skólans
úr tæplega 500 upp í rúmlega 800.
„Það sem gerist þegar að skólinn
stækkar svona er að hvorki reikni-
líkanið né annað grípur það neitt
voðalega vel og fjölgunin í skól-
anum var bæði meiri og hraðari en
reiknað var með, þannig að skól-
anum var sífellt gert að bæta við
sig nemendum eftir á,“ segir Einar
Birgir sem bendir jafnframt á að
skólinn hafi á þessum tíma einnig
boðið upp á nýtt nám, þ.e. náms-
braut fyrir fatlaða nemendur. „Hún
er því miður rekin með halla og það
hefur ekki batnað í hruninu og
þetta er forgangsþjónusta af hálfu
ráðuneytisins alveg hreint eins og
nýnemarnir,“ segir Einar Birgir
sem bendir á að skólinn geti ekki
skorið niður forgangsþjónustu.
„Búið að skera allt út“
Þá segir hann einu valkostina
vera þá að skerða aðra þjónustu
innan skólans og segja upp starfs-
fólki. „Yfir 80% af rekstarkostn-
aðinum eru laun og það er búið að
skera allt út sem hægt er að skera
út,“ segir Einar Birgir sem bætir
við að miðað við óbreytt fjárframlög
sé því miður ekkert annað í stöð-
unni en að skerða þjónustuna og
fækka starfsfólki á þeim sviðum
sem ekki hafa forgang.
Fimm stofnanir ítrekað í vanda
Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir ófært að hafa halla á fjárlögum ríkisins ár eftir ár
Skólameistari Flensborgarskóla segir skerta þjónustu og uppsagnir vera eina valkostinn að óbreyttu
Morgunblaðið/G. Rúnar
Dökkar horfur Skólameistari Flensborgarskóla segir skólann ekki geta skorið niður hjá sér forgangsþjónustu.
„Fjárlaganefnd er í fríi sam-
kvæmt þingsköpum, eins og
aðrar nefndir þingsins, til tí-
unda ágúst. Þannig að ég kem
til með að leggja þetta fyrir
næsta nefndarfund að þessu
verði beint til ráðherranna,“
segir Vigdís Hauksdóttir og
bendir á að ráðherrarnir séu
núna í þeirri vinnu að leggja
fram drög að sparnaðartillögum
við fjármálaráðueytið.
„Þá hljóta þeir líka jafnframt
að taka tillit til þessara upplýs-
inga sem koma fram í þessari
skýrslu ríkisendurskoðanda frá
því í gær,“ segir Vigdís og bætir
við að í ljósi þess að Ríkisend-
urskoðun nafngreinir í skýrsl-
unni ákveðnar stofnanir hljóti
þeir ráðherrar sem hafa umsjón
með þeim sjálfkrafa að gera
kröfu til þeirra um að þessu
verði kippt í lag.
Lagt fyrir
næsta fund
FJÁRLAGANEFND Í FRÍI
Uppsafnaður eða verulegur vandi 2005 - 2007,
2009 og 2012
Þær ríkisstofnanir sem oftast eiga við vanda að stríða
Heimild: Ríkisendurskoðun
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 5 skipti
Flensborgarskóli 4 skipti
Landbúnaðarháskóli Íslands 4 skipti
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum í Hjaltadal 4 skipti
Námsmatsstofnun 4 skipti
Vigdís
Hauksdóttir
Einar Birgir
Steinþórsson
Handverksbakarí
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ
Aldagamlar aðferðir í bland
við nýjar til að gefa hverju
brauði sinn karakter.
Úrval af hollum og góðum brauðum
unnum úr gæða hráefnum.
Við bökum 100% speltbrauð,
heilkornabrauð, gerlaus brauð,
ítölsk brauð, hvítlauksbrauð,
kúmenbrauð, sigtibrauð o.fl. o.fl.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is