Morgunblaðið - 17.07.2013, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Undanfarnar vikur hefur hópur sjálf-
boðaliða á vegum samtakanna
SEEDS verið að störfum í Selárdal
við endurgerð og viðgerðir á styttum
og byggingum listamannsins Sam-
úels Jónssonar. Unnið hefur verið við
viðgerðirnar nokkur sumur í röð, en
vonast er til þess að hægt verði að
koma þar upp aðstöðu fyrir ferðafólk
og gistiaðstöðu fyrir lista- og fræði-
menn. Brotið var upp úr styttunum
og húsin voru illa farin, þau höfðu
verið óvarin fyrir veðri og vindum í
fjölda ára.
„Þetta eru einstakar byggingar og
eins og úr öðrum heimi,“ segir Ólafur
J. Engilbertsson sem er í stjórn fé-
lags um endurreisn listasafns Sam-
úels, en félagið var stofnað árið 1998
og starfar að endurreisn og viðhaldi á
verkum Samúels.
Bjó til steypu úr fjörusandi
Samúel reisti kirkju og hús undir
listasafn á Brautarholti í Selárdal þar
sem hann var bóndi. Hann útbjó eigin
steypublöndu til framkvæmdanna úr
fjörusandi og sementi og úr því mót-
aði hann einnig stytturnar sem prýða
staðinn.
Sjálfboðaliðarnir vinna undir leið-
sögn þýska myndhöggvarans Ger-
hards König og hefur vinnan gengið
vel, að sögn Ólafs, en verkið hefur
staðið yfir á hverju sumri frá árinu
2004. Núna er viðgerð við stytturnar
að mestu lokið og búið að gera við
listasafnshúsið að mestu leyti að ut-
an, en það er enn afar illa farið að inn-
an. Þá er búið að gera við kirkjuna
þannig að hún heldur núna vatni,
nema turninn sem nú er verið að
þétta. Rafmagn og vatn hefur nú ver-
ið lagt á svæðið.
Auk kirkjunnar og listasafnsins er
íbúðarhús Samúels á staðnum. Það
var ónýtt og nú stendur bara grunnur
þess. Til stendur að reisa það að nýju
í upphaflegri mynd og að þar verði
aðsetur lista- og fræðimanna.
Við verðum að varðveita þetta
Ólafur segir erfitt að segja til um
hvenær framkvæmdum ljúki, fjár-
magn sé af skornum skammti. Feng-
ist hafa styrkir frá Framkvæmda-
sjóði ferðamannastaða og
Menningarráði Vestfjarða, auk gjafa
frá velviljuðum einstaklingum en
meira þarf til. „Við vonumst til þess
að íbúðarhúsið verði fokhelt fyrir vet-
urinn og vonumst eftir meira fjár-
magni til að geta haldið áfram. Við
verðum með söfnunardagskrá á höf-
uðborgarsvæðinu í haust til að kynna
verkefnið og safna fé. Þetta er svo
sérstakur staður, svo ólíkur öllu öðru,
og við verðum að varðveita þetta.“
Selárdalur er svo sérstakur staður
Nú hillir undir lok viðgerða á verkum og híbýlum listamannsins með barnshjartað Lista- og
fræðimenn fá athvarf í húsi Samúels í Selárdal Menningarverðmæti sem verður að varðveita
Ljósmynd/Ólafur J. Engilbertsson
Vaskir sjálfboðaliðar Viðgerðir á verkum Samúels hafa að stórum hluta verið unnar af sjálfboðaliðum SEEDS.
Samúel Jónsson fæddist árið
1884 og lést 1969. Listsköpun
hans hófst eftir að hann fór á
ellilaun, en á síðustu æviárum
sínum byggði hann kirkju í Sel-
árdal, gerði líkön af frægum
byggingum, steinstyttur af
mönnum og dýrum, málaði
listaverk og smíðaði ramma ut-
an um þau. Undir verkin smíðaði
hann listasafn. Undraheimur
varð til í afskekktri sveit.
Samúel var sjálfmenntaður
listamaður og hefur list hans
helst verið skilgreind sem naív-
ismi. Hann hefur verið nefndur
listamaðurinn með barns-
hjartað vegna þeirra einlægni
sem einkennir verk hans.
UNDRAHEIMUR Í AFDÖLUM
Samúel Listamaðurinn með líkan
sitt af Péturskirkjunni í Róm.
Einlægur og
listfengur
Ljósmynd/Ragnar Páll
MERK
JAVAR
A Á G
ÓÐU V
ERÐI
Í SAL FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS - MÖRKINNI 6
SKÓR - SPORTFATNAÐUR -BARNAFÖT - SUNDFÖT - TÍSKUFÖT O.FL.
SPORTÍS
LAGE
RHRE
INSUN
!
5.JÚLÍ - 1.ÁGÚST
ÓTRÚLEG VERÐ - NÝJAR VÖRUR DAGLEGA!
OPIÐ MÁN.-FÖS: 12 - 18 - LAU.11-16
SPOR
TÍS
30 - 70% AFSLÁTTUR!
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS