Morgunblaðið - 17.07.2013, Qupperneq 14
100 ÁRA14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Drungalegt veður var og gekk á með
rigningarskúrum af austri sunnudag-
inn 17. júlí 1932, en þann dag átti að
afhjúpa styttu Leifs Eiríkssonar á
Skólavörðuholti. Betur fór þó en á
horfðist, því að það stytti upp um há-
degisbilið og hélst þurrt fram yfir at-
höfnina. Í frásögn Morgunblaðsins
segir að bæjarbúar hafi látið það „lítt
á sig fá, þó að ískyggilegt væri veður
og úrkomulegt.“ Skipti mannsöfnuð-
urinn þúsundum samkvæmt frásögn
blaðsins.
Umdeild staðsetning
Styttan var gjöf Bandaríkjamanna
til Íslendinga á Alþingishátíðinni
1930. Myndhöggvarinn Alexander
Stirling Calder gerði styttuna en
hann varð hlutskarpastur í sam-
keppni sem Bandaríkjastjórn efndi
til árið 1929. Þegar styttan var gefin
var tekið fram að hún kæmi til lands-
ins sumarið 1931 og yrði þá vonandi
fundinn viðeigandi staður. Sóttust
Bandaríkjamenn eftir því að henni
yrði valinn staður á Skólavörðuholti.
Þar hafði þá verið ráðgert að hafa op-
ið torg og veglega kirkju og voru ekki
allir sammála því að stytta Leifs ætti
heima þar hjá. Þó að ekki væru allir í
bæjarstjórninni samþykkir því var
ákveðið í apríl 1931 að setja styttuna
á Skólavörðuholtið. Hófust fram-
kvæmdir við fótstallinn upp úr því.
Styttan sjálf kom þó ekki til landsins
strax, því að í apríl 1932 var frétt í
Morgunblaðinu um að styttan af
Leifi hefði verið um veturinn á högg-
myndasýningu í Bandaríkjunum og
hlotið þar verðlaunapening úr gulli.
Þegar styttan var afhjúpuð 17. júlí
var búið að koma fyrir fánastöngum
og bekkjum fyrir gesti ríkisstjórn-
arinnar. Lúðrasveit Reykjavíkur lék
ýmis lög á meðan fólk streymdi að.
Klukkan tvö hófst svo athöfnin með
því að sendiherra Bandaríkjanna í
Danmörku, Frederick W.B. Coleman
flutti ræðu þar sem hann sagði að
hvert barn í Vesturheimi byrjaði á
sögu þjóðar sinnar með því að læra
um Leif Eiríksson og ferðalag hans
til Vesturheims. Styttan væri þakk-
lætisvottur Bandaríkjanna til afkom-
enda Leifs.
Enn eftir að gera tjörnina
Meðan sendiherrann talaði lýsti
heldur í lofti samkvæmt frásögn
Morgunblaðsins, en „jók jafnframt á
austankaldann, svo snarplega tók í
hjúpinn er sveipaður var utan um lík-
neski Leifs.“ Þegar Coleman lauk
máli sínu kippti hann í band sem hélt
hjúpnum utan um styttuna og féll
hann á svipstundu. Mannfjöldinn tók
ofan og laust upp ferföldu húrra-
hrópi. Í kjölfarið lék lúðrasveitin
þjóðsöng Bandaríkjanna.
Ásgeir Ásgeirsson, forsætisráð-
herra Framsóknarflokksins, tók því
næst til máls. Þakkaði hann Coleman
fyrir gjöfina sem myndi „eiga þátt í
að varðveita góðan hug og samúð
milli hinnar fámennu þjóðar, sem
þetta land byggir, og hinnar miklu
þjóðar Bandaríkjanna.“
Ásgeir vék svo máli sínu að stað-
setningu styttunnar og nánasta um-
hverfi hennar. Stytta Leifs hefði ver-
ið sett þar sem „hæst ber í
höfuðborginni, en þó í hálfgerðri
óbyggð. Umgerð náttúrunnar er
glæsileg, en mannanna verk eiga hér
eftir að vaxa,“ sagði Ásgeir og bætti
við að í kringum styttuna ætti eftir að
gera tjörn til samræmis við stallinn
sem væri stafn af skipi. Ásgeir benti
á að styttan væri gjöf til Íslands á
þúsund ára afmæli eina lýðveldis
Evrópu á sínum tíma frá fyrsta lýð-
veldi seinni tíma. Lauk hann ræðu
sinni á að biðja viðstadda um að
hrópa: „Bandaríkin lengi lifi!“ og
heyrðust mörg húrrahróp frá mann-
fjöldanum.
Knud Zimsen, borgarstjóri
Reykjavíkur, lauk athöfninni með
ávarpi sínu. Sagði hann uppbyggingu
Reykjavíkur hafa breytt mjög ásýnd
Skólavörðuholtsins. Þótt að enn væri
hrjóstrugt um að litast og fátt fagurt
af mannanna verkum myndi fram-
taksemi Reykvíkinga breyta því á
skömmum tíma. Afhjúpun Leifs-
styttunnar væri því bara upphafið að
frekari uppbyggingu. Styttan væri
„vottur þess, hverju áræði og þor
fær áorkað þegar það er samfara trú
og traust til Guðs.“ Lauk borg-
arstjóri erindi sínu á að biðja við-
stadda um að hrópa ferfalt húrra-
hróp um leið og hann óskaði þess að
vinátta og kærleikur ríkti meðal ein-
staklinga, þjóðfélagsflokka og allra
þjóða. „Enn kváðu við húrrahróp. Þá
ljek lúðrasveitin. Og mannfjöldinn
dreifðist.“
Vináttuvottur frá Vesturheimi
Stytta Leifs Eiríkssonar afhjúpuð fyrir 81 ári Upphafið að uppbyggingu Skólavörðuhæðar
Ráðgert að koma fyrir tjörn umhverfis styttuna Valinn staður þar sem hæst bar í Reykjavík
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Afhjúpunin Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra flytur ræðu við afhjúp-
unina. Mikil úrkoma var fyrr um daginn en bæjarbúar létu það lítt á sig fá.
Morgunblaðið/RAX
Skólavörðuholtið Leifsstyttan varð upphafið að uppbyggingu á Skóla-
vörðuholti. Byrjað var að reisa Hallgrímskirkju 1945 og var því lokið 1986.
Morgunblaðið fylgdist grannt með
afhjúpuninni. Stærstur hluti
blaðsins 17. júlí 1932 fór undir
umfjöllun um Leif. Auk viðtals við
Frederick W.B. Coleman, sendi-
herra Bandaríkjanna í Danmörku
og á Íslandi, birti blaðið tvær
langar greinar um Leif. Sú fyrri,
eftir Eggert Briem frá Viðey,
fjallaði um fæðingarstað Leifs
heppna, Eiríksstaði í Haukadal, og
fylgdi með uppdráttur af rústum
bæjarins. Reiknaði Eggert út að
Leifur hlyti að hafa fæðst á þess-
um stað, þar sem um haustið 999
voru liðin um 18 til 19 ár frá því
að foreldrar hans fóru frá Eiríks-
stöðum til Grænlands. Ef Leifur
hefði hins vegar verið á því reki
þegar hann vann afrek sín, og því
fæddur í Grænlandi, hefði þess
verið getið, líkt og um aðra forn-
menn er unnu afrek sín í æsku.
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður ritaði síðan grein um ævi
Leifs, sem var að hans mati „lýs-
andi dæmi þess hversu örlögin
bera suma menn áfram og færa
þeim ósjálfrátt atburði lífsins að
höndum“.
Það voru ekki bara Morgun-
blaðsmenn sem voru spenntir fyr-
ir afhjúpun Leifsstyttunnar. Á for-
síðu blaðsins var auglýsing frá
Björnsbakaríi þar sem við-
skiptavinir voru hvattir til þess að
biðja um kökuna „Leifur heppni“.
Tekið var fram að kakan fengist
bara í Björnsbakaríi eða Hressing-
arskálanum.
Ítarleg umfjöllun um ævi Leifs
MORGUNBLAÐIÐ
Úr Morgunblaðinu 17. júlí 1932.
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18
MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í YFIR 1
6 ÁR
S Ó LG L E R -
AU G U N
FÆRÐU HJÁ
OKKUR
MEÐ EÐA ÁN
STYRKLEIKA
NÝ
SENDING
SÓLGLERAUGU
OG UMGJARÐIR