Morgunblaðið - 17.07.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Ungmennaráð
Seltjarnarness,
sem er setið af
ungmennum á
aldrinum 16-20
ára, heldur ár-
legt harm-
onikkuball fyrir
eldri borgara í
dag kl. 13.30 til
16 á plani Björg-
unarsveitarinnar
Ársæls við smábátahöfnina á Sel-
tjarnarnesi. Þetta er í fjórða sinn
sem ballið fer fram. Veitingar
verða í boði og mun Örvar Krist-
jánsson harmonikkuleikari leika
undir dansi.
Nikkuball fyrir eldri
borgara á Nesinu
Örvar Kristjánsson
mun þenja nikkuna.
Svonefnd Porthátíð verður haldin
við Flóru í Hafnarstræti 90 á Ak-
ureyri á morgun. Hljómsveitirnar
Buxnaskjónar og Þorsteinn Kári
troða upp og ef til vill bætast fleiri
bönd í hópinn með stuttum fyrir-
vara. Vínilplötusnúðurinn Arnar
Ari þeytir plötum og býr til villtar
blöndur, allt frá Schubert til Sigur
Rósar og frá Kardimommubænum
til Kamarorghesta, segir í tilkynn-
ingu. Portmarkaður verður einnig í
gangi, en hátíðin stendur yfir milli
kl. 12 og 18. Flóra er verslun,
vinnustofur og viðburðastaður
Kristínar Þóru Kjartansdóttur, fé-
lagsfræðings og garðyrkjukonu.
Listrænn ráðunautur er Hlynur
Hallsson myndlistarmaður.
Hátíð Mikið verður um að vera við Flóru á
Akureyri á morgun, milli kl. 12 og 18.
Porthátíð í Hafnar-
stræti á Akureyri
Úthlutað hefur verið 2.750.000 kr.
úr Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan
til fimm verkefna. Gróður fyrir fólk
í landnámi Ingólfs fékk 1 milljón til
landgræðslu í austanverðum
Sveifluhálsi, Björgunarsveit Hafn-
arfjarðar fékk 500 þúsund til kaupa
á fjarskiptabúnaði, Hjálparsveit
skáta í Kópavogi fékk 500 þúsund
til endurnýjunar á beltum á snjóbíl,
Landsbjörg fékk 500 þúsunda kr.
framlag í landssöfnun félagsins og
Bókasafn Hafnarfjarðar fékk 250
þúsund í lestrarátak barna. Þetta
var önnur úthlutun sjóðsins í ár.
Straumsvík Álverið styrkir ýmis verkefni.
2,7 milljónir úr sam-
félagssjóði Alcan
STUTT
Stjórnir Kínversk-íslenska menn-
ingarfélagsins og kínversku Esper-
antósamtakanna bjóða til athafnar
laugardaginn 20. júlí nk. kl. 15 á
jarðhæð ráðstefnu- og tónlistar-
hússins Hörpu. Þar afhenda fulltrú-
ar kínversku Esperantósamtak-
anna og Shandongfylkis
Kínversk-íslenska menningarfélag-
inu veglega styttu af Konfúsíusi frá
fylkisstjórninni. Um leið verður
opnuð sýning á myndum frá Kína,
sem verður í Hörpu til 22. júlí.
Afhenda styttu af
Konfúsíusi í Hörpu
Made by
Germans
Er�itt að velja
í búðinni?
Reyndu hana heima í 100 daga.
Bosch hefur nú sett á markað nýja
uppþvottavél, sem er búin frábærri tækni
og á hagkvæmu verði. Hún kallast Meister-
Stück. Þessi uppþvottavél hefur engan
óþarfa heldur aðeins nákvæmlega það sem
til þarf. Allt til að gera þig ánægða(n).
(Ef svo ólíklega vill til að þú verðir ekki
ánægð(ur) með vélina geturðu einfaldlega
skilað henni.) Lestu meira um MeisterStück
uppþvottavélina á www.bosch.is.
Sala á laxveiðileyfum hefur glæðst í
kjölfar þess að laxveiði hefur farið vel
af stað. Þó er fyrirséð að salan verði
mun dræmari í ár en hún hefur verið
undanfarin ár. „Ég man ekki eftir
jafn dræmri sölu í þessum geira og
hún hefur verið á þessu ári,“ segir
Bjarni Júlíusson, formaður Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Þegar lax-
veiðitímabilið hófst hafi menn áætlað
að ekki hafi tekist að selja veiðileyfi á
íslenska laxveiðimarkaðnum fyrir
sem nemur um einum milljarði króna.
Hver stöng í dýrari ám er seld á um
100-200 þúsund kr. en hún fer á 20-50
þúsund kr. í minni ám. „Þegar menn
sáu að laxveiðin yrði góð, tók salan
ágætlega við sér. Lausasalan er fín en
það er fjarri því að heildarsalan sé
góð,“ segir Bjarni. Hann telur að
ástæðan kunni að liggja í því að menn
skipuleggi gjarnan sumarið fyrirfram
og því ekki margir sem ákveði að fara
í laxveiði með stuttum fyrirvara.
Hann segir að verð hafi lækkað lítil-
lega í kjölfar dræmrar sölu. Lækk-
anir séu þó ekki stórkostlegar. „Það
eru engar útsölur í gangi. Í þessu
samhengi er rétt að benda á að verðið
var í sögulegu hámarki árið 2012.“
Jón Þór Júlíusson hjá veiðifélaginu
Hreggnasa, telur að almennt hafi
verð á markaði ekki lækkað mikið en
það helgist meðal annars af því hve
veiðin hefur verið góð. „Öll stemning
hefur verið mjög jákvæð að und-
anförnu enda veiðin frábær. Fyrir
vikið hefur sala veiðileyfa tekið við
sér á ódýrari svæðum en hún er
ennþá mjög þung á dýrari svæðum,“
segir hann. Hann á ekki von á því að
fjárfestingar veiðifélaga í veiðileyfum
í ár muni koma til með að skila sér til
baka. „Skaðinn er „skeður“ ef horft
er til sölu á dýrum veiðileyfum. Það
er alveg sama hve mikið þú selur upp
frá þessu, það verða alltaf töluverð af-
föll.“ vidar@mbl.is
Sala laxveiðileyfa glæðist
Aukning í sölu laxveiðileyfa eftir góðar aflatölur Lausasala þykir góð en
heildarsalan dræm Litlar verðlækkanir Tap veiðifélaga fyrirsjáanlegt