Morgunblaðið - 17.07.2013, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Fyrir nokkru var
undirritaður fríversl-
unarsamningur Sviss
og Kína. Það fór fram í
viðskiptaráðuneyti
Kínverja og undir
skrifuðu svissneskur
embættismaður og
Gao Hucheng við-
skiptaráðherra, að við-
stöddum Li Keqiang
forsætisráðherra, sem
fagnaði samningsgerðinni. Hann
segir áhuga vera á fríverslun við
önnur Evrópulönd, enda hafa slíkir
samningar m.a. staðið yfir við Evr-
ópusambandið, langstærsta við-
skiptaaðilann. Þar hefur staðið á
mannréttindamálum, og eins og við
þekkjum voru Norðmenn felldir úr
þeim leik eftir að hafa veitt kín-
versku skáldi og andófsmanni Nób-
elsverðlaun.
Öllu meira var við
haft við Ísland en Sviss
við slíka undirritun í
Beijing í apríl, enda
voru af okkar hálfu
mættir til leiks bæði
forsætis- og utanrík-
isráðherrar landsins.
Upplýsir Hjörtur J.
Guðmundsson í
Morgunblaðinu 12. júlí,
að þessi fögnuður Kín-
verja væri líklega til
kominn vegna þess að
2013 hafi Íslendingar
aldrei verið jafn fjarlægir ESB-
aðild.
Svo segir Hjörtur. Hins vegar
hafa aðrir leyft sér að sjá fríversl-
unarsamninginn í allt öðru sam-
hengi. Í apríl í fyrra fengum við
heiðurinn af stórfelldustu opinberu
heimsókn í sögu landsins. Hingað
kom þáverandi forsætisráðherra
Kína, Wen Jiabao, ásamt með utan-
ríkisráðherra, viðskiptaráðherra og
níu öðrum ráðherrum eða vararáð-
herrum í 100 manna sendinefnd.
Norðurskautið og þýðing þess var að
sögn aðalumræðuefnið og tilefni
tveggja samstarfssamninga. Þá gat
forseti Íslands fagnað ráðamönnum
úr ferðum sínum til Kína eftir hrun-
ið, en á þeim tíma birtust þeir sem
Íslandsvinir. Svo var reyndar ekki
áður, sérstaklega á hinum ömurlega
tíma í þeirra sögu sem kenndur er
við Maó.
Það er vandmeðfarið fyrir Kína að
rísa úr öskustónni og tryggja hags-
muni sína sem næstmesta viðskipta-
og efnahagsveldi heims. Þeir þurfa
að sjálfsögðu fullt siglingafrelsi á
hinum nýju, íslausu siglingaleiðum
norðurskautsins. En liður í því er
ekki að byggja og eiga sjálfir risa-
vaxna gámahöfn í Finnafirði, eins og
er með yfirráð skipafélags þeirra,
COSCO, á Pireaus í Grikklandi. Þeir
sækja í samkeppni við aðra um þátt-
töku í nýtingu auðlinda norður-
skautsins, á landi og hafsbotni. En
því fylgir ekki að Íslendingar selji
þeim land til þeirra umsvifa á Norð-
austurlandi, væntanlega undir flug-
völl og búðir til flutninga fjölmenns
starfliðs í námur á austur- og vest-
urströnd Grænlands. Í Lloyds List
má lesa að COSCO vilji samvinnu
við íslensk skipafélög. Samvinna er
sjálfsögð en ekki eignarhald á ís-
lenskum flutningafyrirtækjum. Og
megi ísbrjótur þeirra koma og fara
án þess að hafa Ísland að bækistöð
sinni.
Sá sem þetta skrifar er alls ekki
þeirrar skoðunar að Kína stefni að
heimsbyltingu og yfirráðum að hætti
Sovétríkjanna sálugu. En það verð-
ur að vera föst og ákveðin stefna Ís-
lendinga um alla tíð, að Kína fái ekki
varanlega aðstöðu á Íslandi. Stórt
sendiráð þeirra setur þau takmörk.
Að lokum þetta: Fríverslun við
Kína stuðlar að hagkvæmum við-
skiptum, sem þó hafa lítið að segja
um alla afkomu okkar. Það sama
yrði ekki sagt um samninginn um
fríverslun og fjárfestingar milli Evr-
ópusambandsins og Bandaríkjanna,
sem viðræður hófust um í Wash-
ington í síðastliðinni viku. Nýtt
svæði efnahagssamskipta frjálsra
lýðræðisríkja beggja vegna Atlants-
hafsins, mun leiða til aukinnar at-
vinnu og samkeppnishæfni og þar
með getu til að styðja þróun opinna
og frjálsra þjóða. Ísland getur verið
með á þeim vettvangi sem aðild-
arumsækjandi að Evrópusamband-
inu
Eftir Einar
Benediktsson »En það verður
að vera föst og
ákveðin stefna Íslend-
inga um alla tíð, að
Kína fái ekki varanlega
aðstöðu á Íslandi.
Einar Benediktsson
Höfundur er fyrrverandi sendiherra.
Fríverslun við Kína
Ekki er ofmælt, að
meðal margra vinstri
sinnaðra stjórnmála-
manna hérlendis ríki
meiri kærleikur, um-
hyggja og virðing
gagnvart múslímskum
innflytjendum og
trúarbrögðum þeirra
en gagnvart flestum Ís-
lendingum. Múslímar
eru bæði kröfuharðir
og fyrirferðarmiklir í
íslensku samfélagi.
Nægir þar að nefna
einn helsta talsmann
þeirra, Salman Ta-
mimi, sem er á köflum
yfirlýsingaglaður, án
þess að finna rök fyrir
málflutningi sínum.
Minnir um margt á
andlega félaga sína úr
íslenskri vinstri hreyf-
ingu. Nú síðast jafnaði hann saman
kristnum Íslendingum við erlenda ísl-
amista varðandi ofbeldi og fyrirlitn-
ingu á konum! Svona rétt eins og
kúgun kvenna sé ekki eitt af helstu
sérkennum í boðskap og iðkun ísl-
amstrúar. Í þeirri trú eru kvenlegar
aðstæður til ásta lítillækkaðar og fjöl-
kvæni heimilað. Og helsta sælan að
loknu þessu jarðlífi, a.m.k. ef karl-
maður fórnar lífinu fyrir málstaðinn,
er kynlíf með fjölda kvenna!
Lærum af reynslunni
Þorri borgarfulltrúa gengur erinda
íslam á kostnað þjóðmenningar okkar
og öryggis. Ekki bara borgarfulltrúar
Samfylkingarflokkanna og VG, held-
ur einnig borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins, sem virðast ekki standa
fyrir neitt, nema eigin skammtíma-
hag. Reynsla bræðraþjóða okkar á
Norðurlöndum og raunar flestra
vestrænna þjóða af innflutningi og
áhrifum múslíma er slæm. Íslam er
miklu ósveigjanlegri og hættulegri en
aðrar öfgastefnur, enda grundvölluð
á skilyrðislausri hlýðni við öfgafullan
boðskap. Boðskap, sem er grundvall-
aður á vitrun manns, sem var eins
ólíkur Kristi og hugsast getur.
Reynsla
Filippseyinga og
Vestmanneyinga
Filippseyskir vinir mín-
ir eiga ekki orð yfir stöðu
mála í Reykjavíkurborg.
Þeir þekkja múslíma af
hernaði þeirra og ofbeldi
m.a. á Mindanao-
eyjaklasanum. Múslímar
byrja nefnilega að taka
völdin í sínar hendur, áður
en þeir eru komnir í
meirihluta. Lærum af
reynslunni og sögunni. Er
það ekki ógeðfellt, nú 40
árum eftir goslok í
Heimaey, að setja trú-
bræður þeirra, sem
frömdu fjöldamorð í eynni
árið 1627, í sérstakt önd-
vegi? Og ætla að láta þá
verða að sérstöku vöru-
merki og tákni Reykjavík-
urborgar! Lái mér hver
sem vill, þegar ég, sem á
föðurætt í Vestmannaeyjum, lýsi
minni dýpstu vanþóknun á Samfylk-
ingar- og Gnarrliðinu í borgarstjórn.
Eftir Ólaf F.
Magnússon
»Múslímar
eru bæði
kröfuharðir og
fyrirferð-
armiklir í ís-
lensku sam-
félagi.
Ólafur F. Magnússon
Höfundur er læknir og fv. borg-
arstjóri.
Reykjavík 2013
og Vestmanna-
eyjar 1627
mbl.is
alltaf - allstaðar
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Margar gerðir
af innihurðum
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA