Morgunblaðið - 17.07.2013, Qupperneq 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi 544 5000
Hjallahrauni 4, Hfj 565 2121
Rauðhellu 11, Hfj 568 2035
Fitjabraut 12, Njarðvík 421 1399
Eyrarvegi 33, Selfossi 482 2722www.solning.is
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti
– UMBOÐSMENN UM LAND ALLT –
Þú paSSaR HaNN
VIÐ PÖSSUM ÞIG
Guðmundur Ívarsson Guð-mundsson utanríkisráðherrafæddist í Hafnarfirði 17. júlí
1909. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Magnússon, f. 26.10. 1879, d.
29. okt. 1960, skipstjóri þar, og kona
hans, Margrét Guðmundsdóttir, f.
20.3. 1878, d. 7.10. 1959, húsmóðir.
Kona Guðmundar var Rósa Ingólfs-
dóttir, f. 27.6. 1911, húsmóðir. For-
eldrar hennar voru Ingólfur Lár-
usson, skipstjóri í Reykjavík, og kona
hans, Vigdís Árnadóttir húsmóðir.
Guðmundur lauk stúdentsprófi frá
MR 1930, lögfræðiprófi frá HÍ 1934
og varð hæstaréttarlögmaður 1939.
Að loknu lögfræðiprófi gerðist hann
fulltrúi á málflutningsskrifstofu Stef-
áns Jóh. Stefánssonar alþingismanns
og Ásgeirs Guðmundssonar. Hann
varð meðeigandi Stefáns Jóhanns
1936 og rak málflutningsskrifstofuna
með honum til 1945. Þá var hann
skipaður sýslumaður í Gullbringu- og
Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafn-
arfirði.
Guðmundur varð utanríkis-
ráðherra undir stjórn Hermanns
Jónassonar 1956 til 1958 og svo aftur
1959 þegar viðreisnarstjórnin tók við
völdum. Guðmundur gegndi ráð-
herraembætti til ársins 1965 og varð
þá sendiherra í Stóra-Bretlandi og
Hollandi. Jafnframt varð hann sendi-
herra á Spáni og í Portúgal 1965 og í
Nígeríu 1971. Hann varð sendiherra í
Bandaríkjunum og jafnframt í Arg-
entínu, Brasilíu, Kanada, Mexíkó og á
Kúbu 1971-1973. Sendiherra í Sví-
þjóð, Finnlandi og Austurríki með
setu í Stokkhólmi 1973-1977 og sendi-
herra í Belgíu og Lúxemborg, hjá
Evrópubandalaginu og Atlantshafs-
bandalaginu 1977-1979.
Guðmundur var varaformaður Al-
þýðuflokksins 1954-1965. Hann var
1958 skipaður í sendinefnd Íslands á
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genf
um réttarreglur á hafinu. „Hann var
ráðherra og sendiherra á tímum
merkra ákvarðana í öryggismálum í
hafréttarmálum og kom hann þar
víða við,“ sagði í eftirmælum um hann
á Alþingi.
Guðmundur Í. Guðmundsson lést á
heimili sínu í Reykjavík 19.12. 1987.
Merkir Íslendingar
Guðmundur Í. Guðmundsson
85 ára
Magnús Bjarnason
80 ára
Kristbjörg Bernharðsdóttir
75 ára
Bragi Kristjónsson
Þorsteinn S. Þorsteinsson
70 ára
Ásgeir Þorvaldsson
Áslaug Garibaldadóttir
Guðmundur F. Jónasson
Guðmundur Pálmar
Ögmundsson
Hjördís Gréta
Traustadóttir
Sonja Hulda
Sigurjónsdóttir
Þórhildur Sigurðardóttir
Ægir Hafsteinsson
60 ára
Arndís Sigurlaug
Guðmundsdóttir
Ása Helga Ólafsdóttir
Áslaug Helgadóttir
Guðmundur Skúlason
Hjörtur Karl Einarsson
Matthildur G.
Gunnlaugsdóttir
Sigrún Guðjónsdóttir
Sigurður Hallgrímsson
Stefán Björnsson
Ævar Guðmundsson
50 ára
Ásta Björk Waage
Ewa Górecka
Guðmundur Atli
Pálmason
Hanna Sigríður
Magnúsdóttir
Jón Hermann
Sigurjónsson
Linda Björk Birgisdóttir
Loftur H. Steingrímsson
Ólafur Þór Gunnarsson
Óskar Friðrik Jónsson
Rósa Jóhanna
Guðmundsdóttir
Sigurður Sigurðsson
40 ára
Arnfinnur Valgeir
Sigurðsson
Ársæll Hersteinn
Guðleifsson
Einar Friðrik Brynjarsson
Erla Gunnarsdóttir
Fredrik Bolin
Gunnlaugur Helgason
Jónanna Bjarnadóttir
Jón Gunnar Bernburg
Margrét Árnadóttir
Pálmi Guðmundsson
Pétur Thomsen
Sigríður Gróa
Sigurðardóttir
Tómas Örn Snorrason
30 ára
Anita Gurung
Arna Rún Rúnarsdóttir
Ásgeir Einarsson
Ásthildur Helen
Gestsdóttir
Beth Waithera Njogu
Elísabet Ólöf
Þórðardóttir
Eyrún Erla
Vilhjálmsdóttir
Frida Carina Marlene
Carlsson
Guðmundur Ingi
Grétarsson
Karen Elva Smáradóttir
Lóa Björk Smáradóttir
Óskar Ingi Guðjónsson
Phuong Nhung Thi Nguyen
Róbert Birgir Gíslason
Þórarinn Pálsson
Til hamingju með daginn
50 ára Hanna er Reykvík-
ingur en býr í Mosfellsbæ.
Hún er viðskiptafræð-
ingur og hönnuður og
rekur verslunina Guð-
laugur A. Magnússon.
Maki: Bjarni Blöndal, f.
1973, ráðgjafi.
Foreldrar: Magnús Guð-
laugsson, f. 1943, d. 2013,
rak verslunina Guðlaugur
A. Magnússon, og Korn-
elía Óskarsdóttir, f. 1943,
d. 1994. Hún vann einnig í
versluninni.
Hanna Sigríður
Magnúsdóttir
40 ára Pétur er frá Álfta-
nesi og er ljósmyndari á
Sólheimum í Grímsnesi.
Maki: Karen Ósk Sigurð-
ardóttir, f. 1979, verkstjóri
á vefstofunni á Sól-
heimum.
Börn: Inger Erla, f. 1997,
Kristbjörg Harpa, f. 1999,
og Sigurður, f. 2009.
Foreldrar: Birgir Thom-
sen, f. 1946, prestur á
Sólheimum, og Erla
Thomsen, f. 1946, verkstj.
í kertagerð á Sólheimum.
Pétur
Thomsen
30 ára Ásthildur er
Grundfirðingur og er
doktorsnemi í bók-
menntafræði við HÍ.
Maki: Árni Sigurður
Björnsson, f. 1975, kenn-
ari í Árbæjarskóla.
Börn: Bryndís Rósa, f.
2005, og Ólöf Kristín, f.
2006.
Foreldrar: Gestur Hall-
grímsson, f. 1960, og
Bryndís Svavarsdóttir, f.
1962, bændur á Blöndu-
bakka í Hróarstungu.
Ásthildur Helen
Gestsdóttir
Nám og störf
Eftir grunnskólapróf úr Víghóla-
skóla í Kópavogi lá leiðin í Mennta-
skólann í Kópavogi, með árs hléi þar
sem hann dvaldist sem skiptinemi í
Ohio í Bandaríkjunum. Hann út-
skrifaðist úr MK 1984 og hóf nám í
læknadeild HÍ þá um haustið. Hann
lauk kandídatsprófi í læknisfræði
vorið 1990, fékk almennt lækninga-
leyfi á Íslandi 1991 og lauk sérnámi í
lyflækningum 1995 við University of
Connecticut í Bandaríkjunum. Hann
tók framhaldsnám í öldrunarlækn-
ingum frá sama skóla og lauk því
1997, tók sérfræðipróf í lyf- og öldr-
unarlækningum í Bandaríkjunum
1996 og 1998 og fékk sérfræðileyfi á
Íslandi 1997 í báðum greinum.
Ólafur hóf störf á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísafirði 1997 og á
Landspítalanum haustið 2000 og hef-
ur starfað þar síðan. Ólafur hefur
lagt sérstaka áherslu á líkamsrækt
og endurhæfingu eldra fólks, unnið
að rannsóknum á því sviði og einnig
kennt.
Virkur í félagsmálum
Ólafur hefur alla tíð tekið virkan
þátt í félagsmálum, bæði innan síns
fagfélags og víðar. Ólafur lauk 3.
stigi í söngnámi, og hefur sungið í
mörgum kórum, lengst í Dómkórn-
um, en söngurinn hefur vikið að
nokkru fyrir öðrum áhugamálum
allra síðustu ár. Golf, hjólreiðar og
hálendisferðir og hvers konar útivist
eru einnig meðal áhugamála.
Frá árinu 2002 hefur Ólafur tekið
virkan þátt í stjórnmálum og verið
félagi í Vinstrihreyfingunni -grænu
framboði frá upphafi. Hann hefur
verið bæjarfulltrúi í Kópavogi frá
2006 og oddviti vinstri grænna í
Kópavogi. Þá hefur Ólafur tekið sæti
á þingi, sem varaþingmaður árin
2009-2012, en sem kjörinn þingmað-
ur frá janúar-apríl 2013 og var þá
formaður umhverfis- og samgöngu-
nefndar. Samtals sat Ólafur á þingi í
yfir 20 mánuði síðasta kjörtímabil.
Fjölskylda
Kona Ólafs er Elínborg Bárðar-
dóttir heimilislæknir, f. 26.5. 1960.
Foreldrar hennar eru Ebba Þor-
steinsdóttir, f. 1927, d. 1987, og Bárð-
ur Auðunsson, f. 1925, d. 1999.
Börn Ólafs og Elínborgar eru
Helgi Hrafn, íþróttafræðingur og
nemi í Kópavogi, f. 1988, Hjalti Már
nemi, f. 1992 og Oddur Örn nemi, f.
1998.
Systkini Ólafs sammæðra eru Sig-
urbjörg Þorvarðardóttir, skrif-
stofumaður í Garðabæ, f. 1951; Sig-
urgeir Friðriksson, bifreiðastjóri í
Reykjavík, f. 1955, og Ásta Friðriks-
dóttir, skrifstofumaður í Reykjavík,
f. 1960. Systkini Ólafs samfeðra eru
Sigurður, vélvirki og bifreiðastjóri á
Ísafirði, f. 1950; Berta Kolbrún,
skrifstofumaður í Hafnarfirði, f.
1952; Sigurveig, sjúkraþjálfari á Ísa-
firði, f. 1953, og Bjarni Kristján, bif-
reiðastjóri í Reykjavík, f. 1966.
Foreldrar Ólafs eru Guðrún Ólafía
Sigurgeirsdóttir skrifstofumaður,
síðast gjaldkeri hjá Tollstjóranum í
Reykjavík, f. 5.7. 1932, d. 21.12. 2007,
og Gunnar Pétursson, bifreiðastjóri
á Ísafirði, f. 31.mars 1930. Fóst-
urfaðir Ólafs var Friðrik Hjaltason,
prentari í Reykjavík, f. 9.6. 1929, d.
12.9. 1999.
Úr frændgarði Ólafs Þórs Gunnarssonar
Ólafur Þór
Gunnarsson
Pétur Tryggvi Jóhannsson
b. og sjóm. í Sléttuhreppi
Petólína Elíasdóttir
húsfreyja í Sléttuhreppi
Pétur Tryggvi Pétursson
netagerðarm. á Ísafirði
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Gunnar Pétursson
bifreiðastj. á Ísaf., skíðam.
og ólympíufari
Elías Guðmundur
Sigmundsson
b. og sjóm. í Skutulsfirði
Steinunn Sveinfríður
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Skutulsfirði
Guðjón Guðbrandsson
b. og sjóm. á Neistastöðum
í Flóa
Helga Jónsdóttir
húsfr. á Neistast., síðar í Rvík
Sigurgeir Guðjónsson
húsasmíðam. í Rvík
Sigurbjörg Ólafsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðrún Ólafía Sigurgeirsd.
skrifstofukona í Kópavogi
Ólafur Ólafsson
bóndi í Akurey
Guðrún Sigmundsdóttir
húsfr. í Akurey í Landeyjum
Oddur
Pétursson
skíðamaður
og ólympíufari
Margrét Oddsdóttir
skurðlæknir og fyrsta
konan sem var prófessor í
handlækningum á Íslandi
Ólafur og Elínborg Í Aðalvík á fögr-
um sumardegi.