Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013 Líklega þurfti svolítinn kjark til að reima á sig eitt stykki svartan strigaskó og ganga til fundar við forseta Bandaríkjanna og önnur fyrirmenni. Forsætisráðherra Ís- lands, Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, hefur orð á sér fyrir að vera heldur sérvitur en jafnframt hugmyndaríkur maður og líklega var það að mæta í sitthvorum skón- um í takt við hans persónuleika. „Hann byrjaði að roðna og svo fór hann að verða fjólublár og blása út og mér var alveg hætt að lítast á þetta,“ sagði forsætisráðherrann í samtali við mbl.is í gær þegar hann lýsti vandræðum sínum vegna eymsla í fæti sem urðu til þess að hann komst ekki í spariskó nema á öðrum fæti. Í umfjöllun blaðsins í dag um ástandið á lyflækningasviði og víð- tæka óánægju lækna og heilbrigð- isstarfsfólks á Landspítalanum er vitnað í nýlega könnun sem leiddi í ljós að einungis 1% unglækna er ánægt með starfsaðstöðu sína. Bent er á það vantraust sem mynd- ast hefur milli lækna og stjórnenda á Landspítalanum. Óánægjan verður til þess að ársverkum hér á landi fækkar vegna starfa ís- lenskra lækna erlendis. Á sama tíma fær fólk ekki fastan heim- ilislækni vegna þess að ekki tekst að manna stöður í heilsugæslu. Kannski væri hægt að nota lýs- ingu forsætisráðherrans um ástandið í heilbrigðiskerfinu. Mæl- irinn er að verða fullur, heilbrigð- isstarfsfólk er orðið rautt af of- þreytu og blátt af reiði yfir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. Vandinn blæs út og notendum heil- brigðisþjónustunnar – sem finna á eigin skinni fyrir samdrætti í þjón- ustu spítalans og heilsugæslunnar – er alveg hætt að lítast á þetta. Sigmundur Davíð og ríkisstjórn- in ættu ef til vill að reima strigaskó á báða fætur og hlaupa aðeins hrað- ar í átt að lausn vandans. RABBIÐ Læknandi strigaskór Eyrún Magnúsdóttir „Og hamingjan hún var best af öllu sköpunarverkinu, blandað fegurð, ást og góðmennsku, varð af skærri, tærri hamingju,“ sagði skáldið. Markmiðið með hamingjuhádegi Reykjavíkurborgar og Hamingjuhússins er að eiga skemmtilega stund saman og stuðla að meiri hamingju og vellíðan borgarbúa. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá sem fær hamingjuhormónana í líkamanum til að flæða hraðar, s.s. tónlist, hlátur, söng og ýmsar gleði-uppákomur. Kunnir tónlistarmenn munu hjálpa borgarbúum að hlaða gleði-batteríin. Má þar nefna Valgeir Guðjónsson, Svavar Knút og Kristjönu Stefáns og Jakob Frímann Magnússon. Fastir liðir verða hamingju-nesti, vímugjafi dagsins og sérhverri dagskrá lýkur svo með dansgöngu eða „dance walk“. Meðal gesta í fyrsta hamingjuhádeginu var sjálfur borgarstjórinn, Jón Gnarr. AUGNABLIK Morgunblaðið/Rósa Braga TÆR HAMINGJA REYKJAVÍKURBORG OG HAMINGJUHÚSIÐ BJÓÐA BORGARBÚUM Í HAMINGJUHÁDEGI ALLA FÖSTUDAGA Í SEPT- EMBER Í TJARNARSAL RÁÐHÚSSINS. VEL LÁ VITASKULD Á MANNSKAPNUM Á FYRSTA FUNDINUM. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Hátíð bjórs- ins. Hvar? Duusgötu Keflavík. Hvenær? Laugardag frá 17.00-21.00. Nánar: Bruggmsiðjan, Steðji, Víking, og Ölgerðin halda upp á bjórhátíð í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Bjórhátíð Hvað? Fótbolti. Hvar? Um allt land. Hvenær? Frá 14-18. Nánar: Keppni í 1. deild og niður í 3. deild, karla og kvenna úti um allt land. Knattspyrnuveisla Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Segðu mér satt. Hvar? Rýmið, Akureyri. Hvenær? Laugardagur 20.00. Nánar: Nýtt íslenskt leikrit um leik og veruleika, sannleika og lygar. Ekkert hlé og ekki við hæfi barna. Bannað börnum Hvað? Söguhringur kvenna gerir listaverk fyrir Kaffitár. Hvar? Aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu. Hvenær? Kl.13.30 laugardag og sunnudag. Nánar: Allar konur velkomnar. Listaverk kvenna Hvað? Ipad dagur Nova. Hvar? Nova, Kringlunni. Hvenær? Laugardag kl.14-16. Nánar: Sunna Ben myndlistarkona teiknar myndir á spjaldtölvu af gestum og gangandi að kostnaðarlausu í Nova- búðinni. Tækniteiknun Hvað? Indiana Jones og leitin að týndu örk- inni. Hvar? Í sófanum heima. Hvenær? Laugardag kl. 21.05. Nánar: RÚV sýnir Indiana Jones- myndirnar og er byrjað á leit hans að týndu örkinni. Frábær fjölskyldu- skemmtun. Fjölskyldufjör *Myndvinnsla forsíðumyndar: RAX. Egg-vopnið á myndinni var haldlagt hér á landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.