Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 13
8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Kringlunni | Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Glær 49.000,-
Svartur 49.000,-
Kremaður/Gull 62.000,-
Silfur 74.000,-
BOURGIE
Hönnun: Ferruccio Laviani
Á þessari einstöku mynd er Bjarni Benediktsson forsætisráðherra með þeim Willy Brandt, kanslara Vestur-Þýskalands,
og Richard Nixon, forseta Bandaríkjanna. Myndin er tekin á 20 ára afmæli Atlandshafsbandalagsins í Washington. Bjarni
var einn fimmmenninganna sem upphaflega undirrituðu sáttmálann.
Ljósmynd/IPS
Á síðasta ári gengu þær forsætisráðherrar
Danmerkur og Íslands; Helle Thorning-
Schmidt og Jóhanna Sigurðardóttir kampa-
kátar um Þingvelli í opinberri heimsókn
danska forsætisráðherrans hingað til lands.
Jóhanna hafði tekið á móti samstarfssystur
sinni við Hakið á Þingvöllum.
Ljósmynd/Rúnar Óskarsson
Helmut Schmidt, kanslari Þýskalands, leggur höndina hlýlega á Geir Hallgrímsson forsætisráðherra á
Keflavíkurflugvelli árið 1977. Með þeim á þessum júlídegi voru eiginkonur þeirra; Erna Finnsdóttir og
Hannelore Schmidt.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ræðir við George Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og Carrington lávarð, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í upphafi ráðherra-
fundar Nato í Reykjavík árið 1987.
Morgunblaðið/Kristján Einarsson
Ólafur Thors, léttur í bragði, bendir Lyndon B. Johnson á ljósmyndarann í op-
inberri heimsókn varaforseta Bandaríkjanna hingað til lands árið 1963. John-
son tók við sem forseti eftir að Kennedy forseti var myrtur um tveimur mán-
uðum eftir heimsóknina til Íslands.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon