Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
Ferðalög og flakk
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • OP I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 O
REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJ
109.990
FULLTVERÐ: 119.990
AROS La-z-boy stóll. Grátt, brúnt
eða ljóst ákæði. B:85 D:90 H:107 cm.
EMPIRE La-z-boy stóll.
Áklæði fjóri litir. B:80 D:70 H:102 cm.
79.990
NÝR LA-Z-BOYSTÓLL
UTAH La-z-boy stóll. Áklæði
tveir litir. B:78 D:75 H:103 cm.
59.990
FULLTVERÐ: 89.990
SUMMIT La-z-boy stóll. Svart og
hvítt leður. B:80 D:95 H:10 cm.
169.990
NÝR LA-Z-BOYSTÓLL
NÝTT
«
«
NÝTT
«
«
NÝTT
«
«
Bestu
leiðarvísarnir
ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ SPYRJA VINI OG KUNNINGJA HVERT
OG HVERNIG Á AÐ FERÐAST SVO AÐ FERÐALAGIÐ VERÐI
FULLKOMIÐ. Á NETINU ERU FRÁBÆRAR VEFSÍÐUR SEM
SEGJA OKKUR ÞETTA ALLT.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Vefsíðan roughguides.com er ekki bara ljómandi góð vefsíða um áfanga-
staði heimsins heldur er þar að finna skrif um hvernig efnahagsástand og
stjórnmál standa í ýmsum löndum sem fjallað er um sem áfangastaði. Góða
grein er að finna þar núna um ýmislegt sem víst er að margir vita ekki um
Japan. Til dæmis er það kurteisi að slafra núðlunum þannig í sig að það
heyrist um allan veitingastaðinn.
Sérstaða Let’s Go Travel Guides er
sú að hún er skrifuð af ungu fólki,
fyrir ungt fólk. Vefslóðin er letsgo-
.com og þar er að finna mikið af
hagnýtum upplýsingum um hvernig
ferðast má ódýrt, finna góð tilboð
og „hipp og kúl“ áfangastaði. Á síð-
unni er gott og stórt safn mynd-
skeiða. Nýjasta greinin á síðunni er
snýr að Evrópu er um ýmsar
bragðtegundir á ítölskum ís sem
finna má í Flórens.
Margir Íslendingar kannast við tripadvisor.com enda yfir 33 milljónir
manna sem lesa síðuna daglega. Síðan er margtilnefnd sem besti leiðarvísir
ferðalanga á netinu. Gott aðgengi er að síðunni í gegnum snjallsíma. Auð-
velt er að skoða hvernig umsagnir helstu veitingastaðir og hótel í heim-
inum hafa fengið í gegnum tíðina hjá notendum. Besti veitingastaðurinn árið
2013 er að mati blaðamanna vefsíðunnar Le Bernardin í New York.
Ein þekktasta vefsíða ferðalangsins er án efa lonelyplanet.com. Það ratar
alla jafna í fréttirnar ef á vefsíðunni er minnst á Ísland sem ákjósanlegan
áfangastað enda er síðan ein sú mest lesna í heiminum. Síðan er svolítið
miðuð út frá breskum ferðalöngum enda í eigu Breta en er engu að síður
mjög hentug fyrir flesta Evrópubúa. Nýleg er grein um hvernig sumir flug-
vellir geta reynst hreinasta martröð að fara í gegnum.
FERÐAST MEÐ HJÁLP NETSINS
Arrivalguides.com er vefsíða sem hefur nú í ár verið tilnefnd til hinna bresku
Travolution Awards sem besta upplýsingaveita fyrir ferðalög. Á síðunni er hægt
að fletta upp tillögum að áfangastöðum eftir alls kyns leitartakmörkunum. Til
dæmis hvort þú ert að leita að fáfarinni strönd, fjölskylduvænum stöðum, áfanga-
stöðum þar sem mikið er af söfnum tengdum fornminjum og svo mætti lengi
telja. Bæði er hægt að skoða síðuna á sænsku og ensku og hægt er að hlaða nið-
ur stórum bæklingum um allar borgir heimsins. Einnig er hægt að hlaða niður
smáforriti í iPhone-síma. Meðal nýlegra úttekta síðunnar má nefna úttekt á októ-
berfestum – hvernig á að haga sér og klæðast á þeim bæversku hátíðum.