Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
Matur og drykkir
Þ
etta er enginn heilsuborgari. Við kjósum að vita
ekkert hvað eru margar kalóríur í þessu. Það má
nú leyfa sér endrum og eins,“ segir Ásta Sveins-
dóttir einn af eigendum Roadhouse á Snorrabraut
en þar má finna sannkallaðan nammidagsborgara, The Cro-
nut hamborgara.
Borgarinn er ekki á matseðlinum en engu að síður hefur
hann slegið í gegn og má búast við að hann verði á kominn
á matseðilinn næst þegar Roadhouse sest niður og gerir
matseðil.
Borgarinn á ættir sínar að rekja til Bandaríkjanna enda
er staðurinn með amerískar rætur. Þar er bara spiluð am-
erísk tónlist og allt sem skreytir veggina er ekta amerískar
auglýsingar og veggmyndir. Engar eftirlíkingar. „Þessi
borgari hefur verið seldur í smá tíma í Bandaríkjunum. Við
erum búin að prófa að vera með kleinuhringja hamborg-
arann og hann tókst ofsalega vel. Næsta skref var því að
prófa þennan. Gunnar, meðeigandi minn, sá Cronut-
borgarann í fjölmiðlum og fórum að þróa hann með Örvari
í Nýja kökuhúsinu.“
Viðskiptavinir hafa margt að segja um matseðil Road-
house. Ef hugdettur kokksins og eigendanna slá í gegn fer
rétturinn inn á matseðilinn. „Við erum oft með hamborgara
utan matseðils. Ef þetta verður vinsæll borgari kemur hann
á næsta matseðil. The Cronut-borgaranum hefur verið tekið
gríðarlega vel. Hann hefur alltaf selst upp,“ segir Ásta al-
sæl með viðtökurnar. „Roadhouse er amerískur veitinga-
staður og við erum alltaf að leita leiða til að skapa eitthvað
og gera eitthvað skemmtilegt.“
Alúðin smakkast betur
Roadhouse er fallegur staður á Snorrabraut þar sem hjarta
og sál er lögð í matargerðina – jafnvel þótt þetta sé gælu-
verkefni eigendanna. „Við eigum aðra veitingastaði en við
elskum svona mat. Yfirkokkurinn er menntaður matreiðslu-
maður ásamt eigendunum Sigurði og Gunnari. Þá á Ásta
einnig sushi-stað í Reykjavík. „Svona matur er það sem ég
elska að borða á nammidögum.“
Á Roadhouse er flestallt gert frá grunni. Frönsku kart-
öflurnar eru handskornar, sósurnar heimagerðar og kjötið
reykt á staðnum. Heimagert smakkast betur – alúðin renn-
ur ljúflega niður. „Það er maður sem mætir hér klukkan
sex á morgnana og sker frönsku kartöflurnar. Það tók 11
daga að búa þær til eins og við vildum og á tímabili vorum
við alveg að bugast en það tókst að lokum og við erum
stolt af þeim enda engin aukaefni í þeim.“ Ásta segir að þó
að staðurinn sé gæluverkefni sé ást og alúð lögð í hvert at-
riði – stórt sem smátt. „Við erum að reyna að endurskapa
ameríska stemningu frá tímabilinu 1920-1980 sem er flott-
asta tímabil Bandaríkjanna. Þegar við vorum að fara að
opna fór ég á stúfana og fann ekta muni frá þessum tíma,
Við létum Leif Welding gera fyrir okkur bekki og hillur en
allt sem er á veggjunum, auglýsingar og myndir, er ekta.
Svo má ekki gleyma tónlistinni sem er aðeins frá Banda-
ríkjunum.“ Hver vill ekki borða undir ljúfum tónum Elvis
eða Buddy Holly.
Morgunblaðið/Kristinn
BETRA AÐ PANTA THE CRONUT BURGER MEÐ DAGS FYRIRVARA
Unaðsborgari á Snorrabraut
THE CRONUT BURGER FÆST Á ROADHOUSE NÚ Í SEPTEMBER. ÁSTA SVEINSDÓTTIR, EIGANDI ROADHOUSE, SEGIR AÐ BORGARINN SÉ ENGINN
KÓLESTERÓLKLUMPUR EN HANN SÉ EKKI FYRIR ÞÁ SEM VILJA BARA GRÆNT. ÞETTA ER HAMBORGARI FYRIR BRAGÐLAUKANA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson yfirkokkur og Ásta Sveinsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Cronut-brauð (fæst í Nýja kökuhúsinu)
skorið í tvennt
100% hreinn hágæða nautaborgari
1 sneið Óðalsostur
súrsaður rauðlaukur eftir smekk
heimagert beikon (þykkt beikon í sneiðum)
Roadhouse-majó/hvítlauksconfit-majó
100% hreint hlynsíróp
Aðferð:
Beikonið steikt, hamborgarinn saltaður eftir smekk og steikt-
ur. Ostur lagður á borgarann og látinn bráðna. Majónesi
smurt á Cronut-botninn og súrsaður rauðlaukur settur ofan
á. Síðan er hamborgarinn lagður á laukinn.
Beikon lagt ofan á og majó smurt þar á og svo er toppurinn
lagður ofan á og hlýnsírópi sprautað varlega yfir toppinn eftir
smekk.
Cronut-borgarinn