Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013 S kipulagðri glæpastarf- semi á Íslandi má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi eru það íslenskir hópar brotamanna; í annan stað svokölluð vélhjólagengi og í þriðja lagi brotahópar sem samanstanda af útlendingum bú- settum hérlendis. Starfsemi þess- ara hópa hverfist að langmestu leyti um innflutning, ræktun og viðskipti með fíkniefni. Íslensku hóparnir eru breyti- legir. Stundum vinna þeir saman að ákveðnum markmiðum, stund- um ekki. Verkaskipting er ekki alltaf skýr innan þessara hópa, þannig kemur meira að segja fyrir að höfuðpaurarnir komi nálægt meðhöndlun efna fyrir sölu. Það þekkist yfirleitt ekki erlendis. Lík- lega gamla íslenska lagið, að menn gangi jöfnun höndum í öll verk. Eins og erlendis gangast félagar í vélhjólagengjum hér á landi ekki við glæpastarfsemi, segjast þvert á móti vera löghlýðnir borgarar með mikinn áhuga á mótorhjólum. Lög- regla lítur þó á það sem yfirvarp enda sanni dæmin að Hells Angels og Outlaws séu fyrst og síðast skipulögð glæpasamtök. Hjólin séu aukaatriði. Nær fullvíst er talið að aðildarfélögunum hér á landi sé stýrt erlendis frá. Eftirlit hefur verið með vél- hjólagengjum í nokkur ár og ýms- ar aðgerðir því tengt innan lög- reglu. Ríkislögreglustjóri setti á stofn stýrihóp sem hefur það hlut- verk að samræma aðgerðir lög- reglu og þar inni eru tollyfirvöld líka. Þetta starf er ennþá með þessum hætti en árið 2011, þegar bæði Hells Angels og Outlaws á Ís- landi fengu aðild að alþjóða- samtökum þessara gengja, var sér- stökum fjármunum veitt til þess að berjast gegn þessum hópum og brotastarfsemi þeirra. Það gerðist eftir að lögregluyfirvöld kynntu ráðamönnum þá þróun sem var að eiga sér stað. Grunnþáttur í að- gerðum lögreglu hefur einmitt ver- ið breið samvinna lögregluembætta og tollyfirvalda. Löskuð eftir húsleitir Lögregla hefur gengið mjög hart fram gegn mótorhjólagengjunum, svo eftir hefur verið tekið. Þau eru enn sögð löskuð eftir húsleitir á síðasta ári, þar sem lagt var hald á mikið magn vopna. Hratt og vel gekk að finna þau vopn. Þá þykir öflugt eftirlit við landamæri Ís- lands til fyrirmyndar en fjölmörg- um erlendum félögum í téðum mót- orhjólagengjum hefur verið vísað frá landinu í Leifsstöð. Svo vel- heppnaðar hafa þessar aðgerðir verið að aðrar þjóðir hafa tekið þennan hátt upp, að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. „Það sem við heyrum að utan er að lögreglan sé að reynast þessum gengjum óþægari ljár í þúfu hér á landi en búist hafði verið við. Vegna aðgerða lögreglu hafa þessi gengi ekki náð neinu flugi og standa fyrir vikið illa gagnvart að- ildarfélögum erlendis,“ segir Karl Steinar. Erlendu brotahóparnir sem hasl- að hafa sér völl hér á landi á und- anförnum árum eru einkum skip- aðir Pólverjum, Litháum og Rússum. Ólíkt því sem þekkist annars staðar á hinum Norðurlönd- unum vinna þessir hópar gjarnan saman, Pólverjar gegna þá ákveðnu hlutverki í keðjunni, Litháar öðru og Rússar enn öðru. Ekki er alltaf ljóst hverjir eru ofar hverjum, jafnvel breytilegt eftir verkefnum. Þessir erlendu hópar eru þekkt- ari fyrir ofbeldi en hinir hóparnir, ekki síst innan hópanna sjálfra. Margir þessara erlendu brota- manna eru herþjálfaðir sem gerir þá að vonum ennþá hættulegri. Sumir eiga litríka brotaferla að baki. Séu þeir á hinn bóginn ekki eftirlýstir og/eða hafi afplánað sína dóma er engin heimild í lögum til að synja þeim um landvistarleyfi. Burðardýrin taka áhættuna Allir eiga þessir hópar það sam- merkt að vera í stöðugri leit að liðsauka, ekki síst mönnum til að vinna skítverkin og taka þar af leiðandi mestu áhættuna, svo sem að flytja fíkniefni milli landa. Svo- kölluð burðardýr. Burðardýrin eru oftar en ekki sjálf í neyslu og hafa stofnað til skulda sem þau geta ekki staðið skil á. Að gerast burð- ardýr er ein leiðin til að hreinsa skjöldinn. Þessu athæfi fylgir að vonum mikil áhætta, til að mynda sitja þó- nokkrir Íslendingar í fangelsum er- lendis eftir misheppnaðar tilraunir til að smygla fíkniefnum yfir landa- mæri. Það er, eins og dæmin sanna, ekki öfundsvert hlutskipti. Þeir sem eru í sölu og dreifingu fíkniefna á Íslandi eru gjarnan í neyslu sjálfir. Fyrir vikið eru þeir meðfærilegt verkfæri í höndum yf- irmanna sinna. Standi þeir sig ekki í stykkinu eiga þeir á hættu að skuldir þeirra hækki, jafnvel margfaldist á augabragði. Þar að baki liggja geðþóttaákvarðanir. Og borgi menn ekki er þeim hótað og þeir jafnvel beittir ofbeldi. Dugi það ekki snúa lánardrottnarnir sér gjarnan að ástvinum viðkomandi. Oftast nær duga hótanir en þeim tilvikum þar sem hnefar eru látnir skipta fer fjölgandi, það staðfestir lögregla. Hugmyndaflugi böðlanna eru þá fá takmörk sett. Auk þess að fá skýr fyrirmæli um að borga skuldir sínar er hin- um skuldugu iðulega harðbannað að gera lögreglu viðvart. Annars hljóti þeir verra af eða þeirra nán- ustu. Fælingarmáttur hótana af þessu tagi er mismikill. Sumir þolendur voga sér ekki að hafa samband við lögreglu, aðrir gera það. Karl Steinar segir lögreglu hvetja fólk til að gera sér viðvart sé því hótað líkamsmeiðingum enda sé stigið inn í slík mál af fullum þunga. „Reynslan sýnir að eftir að lög- regla er komin inn í slík mál er hótunum ekki fylgt eftir. Lögregla er það eina sem þessir ofbeld- ismenn og kúgarar óttast.“ Hann segir lögreglu kosta kapps um að vernda fólk fyrir hót- unum og til þess séu ýmsar leiðir. Eitt af úrræðunum sem þekkist erlendis í alvarlegustu málunum er svokölluð vitnavernd, þar sem einstaklingar eru hreinlega látnir „hverfa“. Taka þá upp ný nöfn og koma sér fyrir á nýjum og fjar- lægum stað, þar sem þeir njóta verndar. Lagaumhverfið gerir ráð fyrir slíku úrræði hér á landi en aðstæður hafa ekki kallað á það. Smæð þjóðfélagsins býður varla upp á það heldur. Farnir að hugsa stærra Þeir sem til þekkja eru sammála um að undirheimar Íslands séu að taka hröðum breytingum, líkist sí- fellt meira því sem tíðkast á meg- inlandi Evrópu. Angi af því sé ekki bara aukin harka heldur líka vopnaburður. Þá þykir ljóst að helstu ger- endur í undirheimum Íslands séu farnir að hugsa stærra en áður, það er út fyrir landsteinana. „Kaupmannahafnarmálið“ sem kom nýverið upp þykir skýrt dæmi um það. Þar er um að ræða stórt fíkniefnamál á danskan mælikvarða, þar sem lykilmenn eru íslenskir. Fleiri mál má tína til: „Skútu- málin“ svokölluðu, þar sem reynt var að smygla miklu magni af Harkan vex UMSVIFIN OG HARKAN Í UNDIRHEIMUM ÍSLANDS ERU AÐ AUKAST. VOPNABURÐUR FÆR- IST Í VÖXT OG HUGMYNDAFLUGI BÖÐLANNA VIRÐAST ENGIN TAKMÖRK SETT ÞEGAR HEIMTUR ERU HAFÐAR Í FRAMMI. LÖGREGLA HEFUR AÐ VONUM ÁHYGGJUR AF ÞRÓUN MÁLA EN TELUR SIG RÁÐA VIÐ VERKEFNIÐ. ÁRANGUR VELTI ÞÓ Á FJÁRVEITINGUM OG MANNAFLA. ÞAR KOMI TIL KASTA STJÓRNVALDA Í ÞESSU LANDI. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Kannabismarkaðurinn á Íslandi er löngu orðinn sjálfbær. Lögregla hefur ekki undan að loka verksmiðjum. Markaðnum er líkt við botnlausa hít. Ljósmynd/lögreglan Amfetamín er vinsælasta fíkniefnið á götunni. Kókaín er líka að koma aftur en það hvarf svo að segja eftir efna- hagshrunið. Eins e-pillur. Morgunblaðið/Júlíus Ú́ttekt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.