Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 37
Fáðu fréttirnar með Feedly Þegar Google ákvað að loka hinni vinsælu RSS-þjónustu sinni Goggle Reader hófst kapphlaup um hylli RSS-notenda. Flestir virðast hafa snúið sér að Feedly, sem sameinar flesta kosti Google Reader, auk er auk þess prýð- isvel hannað. Hægt að fá sem smáforrit í flestar gerðir síma. Náðu tökum á pósthólfinu þínu Á netinu er netfangið þitt nánast eins og kennitalan þín. Það fylgir þér í gegnum allt, og er yfirleitt það fyrsta sem þú þarft að gefa upp þegar þú skráir þig fyrir hverskonar þjón- ustu á netinu. Afleiðingin er sú að pósthólfið þitt er iðulega uppfullt af fréttabréfum sem þú hefur engan áhuga á að lesa, en það getur verið tímafrekt að afskrá sig fyrir öllum þessum pósti. The Swizzle er þjónusta sem hjálpar þér að ná tökum á pósthólfinu. Þú getur safnað fréttabréfum í eina vikulega póst- sendingu, eða afskráð þig af póst- listanum beint af síðunni. Hand- hægt og þægilegt. Gerðu símann þinn að þínum eigin Tasker er lítið forrit fyrir Andro- id sem notendur geta notað til að sérsníða hegðun símans að eigin þörfum á vegu sem iPhone- notendur getur einungis dreymt um. þú getur slökkt á gagnaflutn- ingum á ákveðnum tíma, slökkt hljóðinu á meðan síminn er á hvolfi, eða látið hann byrja að spila tónlist um leið og heyrn- artólum er stungið í samband, svo eitthvað sé nefnt. Notaðu símann sem hallamál Nú hefurðu enga af- sökun lengur fyr- ir að láta mynd- ir hallast eða hengja upp skakkar hillur. Hægt er að fá hallamáls- forrit í allar gerðir snjallsíma, sem sjá til þess að þú þarft aldr- ei að láta reyna á smiðsaugað aftur. Safnaðu spjallinu á einn stað Ef þú notar Skype, Gmail eða Facebook, eða jafnvel allt þrennt, þekkirðu væntanlega að vera með vefspjall í gangi á fleiri en einum stað í einu. Það má leysa með einföldum hætti með Imo.im sem safnar öllum tenglunum þínum á einn stað. Kosturinn við Imo er að það er hægt að fá það sem smáforrit í flesta snjallsíma líka. Lærðu meira með iTunes U Þú þarft ekkert stúdentspróf til að sækja háskólafyrirlestra hjá iTunes U, þar sem má nálgast meira en 500.000 háskólafyr- irlestra um allt frá stjarneðl- isfræði til kynjafræði frá virtustu háskólum heims, ásamt bókum og myndböndum og ýmsu kennslu- efni. Hægt að nálgast í gegnum iTunes á öllum tölvum, og fáan- legt sem sér forrit fyrir iOs tæki. *SMS lifir góðu lífi þrátt fyr-ir að það sé ekki jafn áber-andi samskiptamáti og það var fyrir nokkrum árum síðan. 8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Smáralind | Sími 512 1330 Laugavegi 182 | Sími 512 1300 Lækkuð verð iPhone iPhone 5 Verð frá: 109.990.- iPhone 4/4S Verð frá: 64.990.- 1.000 kr. símnotkun á mán. í 6 mán. fylgir iPhone 4 hjá NOVA 1.000 kr. símnotkun á mán. í 12 mán. fylgir iPhone 4S hjá NOVA Tveimur árum eftir andlát frum- kvöðulsins Steves Jobs, sem lést úr krabbameini 2011, er orðin til kvikmynd sem byggð er á ævi hans. Myndin heitir einfaldlega Jobs og þar er fjallað um upphaf stórveldis hans, tæknirisans Apple. Jobs fór ekki hefðbundna leið háskólamenntunar heldur stofnaði fyrirtæki sitt ásamt tölvuséníinu Steve Wozniak eftir að hafa flosn- að upp úr skóla. Eins og frægt er orðið varð fyrsta Machintosh- tölvan úr smiðju þeirra félaga til í bílskúr. Jobs var aðeins 56 ára þegar hann lést en áhrif hans á tækni- heiminn munu eflaust lifa margar mannsævir. Sýn Steves Jobs á tölv- ur, tækni og hönnun umbylti í raun því hvernig fólk umgengst al- geng tæki í daglegu lífi. Jobs hafði trú á einfaldleikanum og vildi gera tæknina aðgengilega en lagði jafn- framt ríka áherslu á vandaða hönnun. Stórleikarinn Ashton Kutcher fer með hlutverk sjálfs Steves Jobs í myndinni en Josh Gad leikur Wozniak. Myndin var frumsýnd á föstudag og er sýnd í Smárabíói en meðal annarra leikara má nefna Dermot Mulroney, James Woods, Lesley Ann Warren og Matthew Modine. LEIKIN MYND UM ÆVI STEVES JOBS Ævi frum- kvöðuls á hvíta tjaldið Steves Jobs er minnst sem eins áhrifamesta frumkvöðuls tækniheimsins. Mynd um ævi hans er nú komin út og er sýnd í bíóhúsum landsins. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.