Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 9
8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þ
að verður að krydda lífið aðeins,“
segir Ragna Lóa en fatnaður
hennar á hliðarlínunni í úrslita-
viðureign Fylkis og Grindavíkur
um hvort liðið færi upp í efstu
deild, vakti verðskuldaða athygli. Ragna
mætti til Grindavíkur með stóra og mikla
húfu og gerði svo betur í síðari leiknum, sem
fram fór í Árbænum. Þar dró hún fram sel-
skinnsjakka og bætti honum við húfuna góðu.
Fylkiskonur töpuðu ekki leik í A-riðli 1.
deildar og unnu svo Grindavík samanlagt 6:3
í leik um sæti í úrvalsdeildinni. Þær mæta
svo ÍA á laugardag í úrslitaleik um titilinn í
fyrstu deild en bæði lið hafa tryggt sér sæti
á meðal þeirra bestu. Ragna Lóa tók við
þjálfun Fylkis fyrir tímabilið og hefur því
náð frábærum árangri á sinni fyrstu leiktíð í
því starfi.
Ragna Lóa flutti heim til Íslands í fyrra
ásamt eiginmanni sínum Hermanni Hreið-
arssyni, þjálfara karlaliðs ÍBV, eftir nokk-
urra ára dvöl í Englandi. Það var þó ekkert í
spilunum að flytja aftur.
„Þetta ævintýri byrjar í raun þannig að við
komum til landsins í smá frí, vorum ekkert
að fara flytja til Íslands, en við fórum bara
aldrei til baka. Skildum bara eftir hús, bíla,
báta, föt og vini. Fótboltinn skyndilega heill-
aði og Ísland sömuleiðis. Það skall á okkur
smáheimþrá og við bara ákváðum að skella
okkur. Hemmi var einmitt úti að pakka bú-
slóðinni í vikunni. Ég bað hann samt að bíða
smá því ef ég hefði ekki farið upp með Fylki
hefði ég flutt aftur til Englands,“ segir
Ragna Lóa og hlær.
Hún segir að margar stelpur í Fylki eigi
ekkert heima í fyrstu deild og efniviðurinn í
félaginu sé góður. Því hafi stefnan verið sett
strax á að fara upp um deild. „Við höfðum
ekkert að gera í þessari deild. Stefnan var að
fara upp og að við yrðum að halda haus allan
tímann sem við gerðum og fórum upp með
glæsibrag.“
Ragna Lóa og hennar lið eiga einn leik eft-
ir gegn ÍA sem fer fram í dag (laugardag).
„Ég leyfi stelpunum að velja eitthvert dress
á mig. Þær völdu húfuna og selskinnsjakk-
ann sem ég var í. Jakkinn er af miklum
knattspyrnuættum, hann er nefnilega af
Færseth-ættinni. Pabbi hennar Olgu Fær-
seth (markadrottningar með KR og ÍBV) átti
þennan glæsilega jakka. Það var ákveðinn
kraftur í þessum jakka.
Mér er alltaf skítsama í hverju ég er en
þetta skemmti stelpunum í liðinu og ef mað-
ur getur gert þessar stelpur glaðar þá gerir
maður það.“
Ragna Lóa verður áfram með Fylki hvern-
ig sem leikurinn fer á laugardag og hún seg-
ist kunna vel við sig í Árbænum – þrátt fyrir
búslóðarleysi. „Við erum ekkert búin að
koma okkur fyrir en þetta fer allt vonandi að
smella saman.“
Ragna Lóa með aðstoðarmönnum sínum á hliðarlínunni. Þeir skörtuðu einnig höfuðfötum.
Ljósmynd/Einar Ásgeirsson
RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR ÞJÁLFARI FYLKIS
Í selskinni á hliðarlínunni
FYLKIR ER AFTUR KOMINN Í DEILD
ÞEIRRA BESTU Í KVENNABOLTANUM
EFTIR EINS ÁRS DVÖL Í 1. DEILD.
RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR,
ÞJÁLFARI LIÐSINS, MÆTTI Í ÚRSLITA-
LEIKINA GEGN GRINDAVÍK HELDUR
SKRAUTLEG TIL FARA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
* Við fórum bara aldrei til baka.Skildum bara eftir hús,
bíla, báta, föt og vini.
Fótboltinn heillaði og
Ísland sömuleiðis.
Hermann Hreiðarsson eiginmaður Rögnu Lóu.
Fylkisliðið er aftur komið í deild þeirra bestu undir stjórn Rögnu Lóu.
Faðir Olgu Færseth, Hallgrímur, átti selskinns-
jakkann sem Ragna Lóa klæddist á hliðarlínunni.
Fæst einnig í veFverslun stoðar
31ár
1982-2013
Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885
Opið kl. 8 - 17 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is
Þar sem
sérFræðingar
aðstoðaÞig
viðvalá
hlíFum
Við styðjum þig
STOÐ
P
O
R
T
hö
nn
un